DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Moonrise Cardigan

Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með axlarsæti, tvöföldum kanti í hálsmáli, klauf í hliðum og I-cord. Stærð XS - XXL.

DROPS 249-30
DROPS Design: Mynstur ks-218
Garnflokkur A + A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
225-250-275-300-350-375 g litur 01, natur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 5-5-5-6-6-6 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 3 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (kantur að framan = 8 lykkjur).
UMFERÐ 1: Prjónið 3 fyrstu kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 4. og 5. kantlykkjur að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan mælist 9-9-10-8-10-9½ cm, síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 17½-26-34½-43 cm.
S: 18-27-36-45 cm.
M: 18½-28-37½-47 cm.
L: 16-24-32-40-48 cm.
XL: 18-26-34-42-50 cm.
XXL: 18-26½-35-43½-52 cm.
(= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í fyrstu umferð frá kanti í hálsmáli).

ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku á ermum og úrtöku á axlarsæti):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við úrtöku á ermum):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við mitt undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrst eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig upp að handvegi þannig að það myndist klauf í hvorri hlið, við handveg er stykkið lagt til hliðar. Ermar eru síðan prjónaðar í hring upp að handvegi, síðan eru stykkin sett inn á sama hringprjón. Á berustykki er lykkjum fækkað fyrir ermar og axlarsæti. Prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. Í lokin er stykkið saumað saman í hliðum eins og útskýrt er í mynstri.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70-78-82-86 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 17-17-18-22-21-21 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan og kantlykkjur) = 45-49-52-56-61-65 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykjum í garðaprjóni að hlið og 8 kantlykkjum að framan við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, næsta umferð er frá röngu og felldar eru af fyrstu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg = 42-46-48-52-56-60 lykkjur eftir. Prjónið út umferðina eins og áður. Klippið þráðinn. Geymið stykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70-78-82-86 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 17-17-18-22-21-21 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan og kantlykkjur) = 45-49-52-56-61-65 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykjum í garðaprjóni að hlið og 8 kantlykkjum að framan við miðju að framan.
Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, næsta umferð er frá röngu og felldar eru af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg = 42-46-48-52-56-60 lykkjur eftir. Klippið þráðinn. Geymið stykkið.

BAKSTYKKI.
Fitjið upp 106-118-126-134-150-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 30-34-36-36-42-46 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur = 76-84-90-98-108-116 lykkjur.
Síðan er prjónað sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorir hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 70-78-82-90-98-106 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring.
Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-16-14-18-16-18 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur.
Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón.
Þegar ermin mælist 11-10-11-11-12-11 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING og endurtakið útaukningu í hverjum 4½-4-2½-2-1½-1½ cm alls 6-7-9-12-13-13 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 37-36-35-35-34-32 cm. Það eru eftir ca 25-27-29-30-32-34 cm að kanti í hálsmáli – mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd.
Fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg mitt undir ermi (fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 48-52-56-62-64-66 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið.

BERUSTYKKI:
Nú er prjónað í sléttprjóni (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) jafnframt því sem í fyrstu umferð eru sett 4 merki í stykkið, merkin eru sett á milli 2 lykkja og merkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir ermar og axlarsæti.
Byrjið frá réttu í hægra framstykki, síðan er prjónuð ermi, bakstykki, ermi og vinstra framstykki. Prjónið þannig:
Prjónið 46-48-50-51-52-54 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú hægra framstykki), setjið 1. merki hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 2. merki hér, prjónið 78-82-86-88-90-94 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú bakstykki), setjið 3. merki hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 4. merki hér, prjónið 46-48-50-51-52-54 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú vinstra framstykki) = 250-274-290-318-338-358 lykkjur.
Látið 4 merkin fylgja áfram með, þau eru notuð þegar fækka á lykkjum við hvert og eitt þessara merkja.
Prjónið 1-0-0-1-0-0 cm sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan. Nú á að prjóna úrtaka á ermi eins og útskýrt er að neðan.

ÚRTAKA ERMI-1:
Lestu allan kaflann áður en prjónað er áfram! ATH: Úrtakan er ekki gerð með þessum hætti í stærð S, prjónið frá ÚRTAKA ERMI-2 í þessari stærð.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur á ermum eins og útskýrt er að neðan.
Fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 2. og 4. merki – lesið ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykkjum og bakstykki verður sá sami).
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 0-1-2-7-8-9 sinnum = 250-266-274-262-274-286 lykkjur.

ÚRTAKA ERMI-2:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan.
Fækkið um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. merki – lesið ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami).
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-15-15-10-12-13 sinnum = 198-206-214-222-226-234 lykkjur (það eru 14-14-14-16-16-16 lykkjur eftir á ermi). Eftir úrtöku fyrir ermi mælist ca 14-16-17-18-20-22 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Síðan er lykkjum fækkað fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan.

AXLARSÆTI-1:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. merki – munið eftir ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á framstykkjum og bakstykki (fjöldi lykkja á ermum verður sá sami).
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-5-5-5-5 sinnum = 166-174-174-182-186-194 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Stykkið mælist ca 44-46-47-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti.
Klippið þráðinn, setjið 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á sitt hvorn þráðinn þar til síðar = 150-158-158-166-170-178 lykkjur.
Nú byrjar úrtaka fyrir hálsmál, JAFNFRAMT heldur úrtaka fyrir axlarsæti áfram, lestu því ÚRTAKA HÁLSMÁL og AXLARSÆTI-2 áður en þú prjónar áfram!

ÚRTAKA HÁLSMÁL:
Byrjið frá réttu, fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 8-10-10-11-12-14 lykkjur 1 sinni, fellið af 3 lykkjur 1 sinni og fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 3 sinnum.

AXLARSÆTI-2:
Haldið áfram að fækka um 8 lykkjur fyrir axlarsæti í annarri hverri umferð 7-7-7-7-7-7 sinnum til viðbótar (það hefur verið fækkað alls 11-11-12-12-12-12 sinnum fyrir axlarsæti) og næsta umferð er prjónuð frá röngu.

Á EFTIR SÍÐUSTU ÚRTÖKU:
Það eru 62-66-66-72-74-78 lykkjur í umferð (14-14-14-16-16-16 lykkjur á hvorri ermi, engar lykkjur á framstykkjum og 34-38-38-40-42-46 lykkjur á bakstykki). Berustykkið mælist ca 25-27-29-30-32-34 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg og peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn, nú á að prjóna frá réttu á hægri kanti að framan.
Byrjið frá réttu mitt að framan. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN yfir 8 kantlykkjur að framan af þræði, prjónið upp ca 16-18-18-19-20-22 lykkjur meðfram hægri kanti í hálsmáli, prjónið slétta lykkju út umferðina, prjónið upp ca 16-18-18-19-20-22 lykkjur meðfram vinstri kanti í hálsmáli, prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN yfir 8 kantlykkjur að framan af þræði = ca 110-118-118-126-130-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður), jafnframt er fækkað um 0-4-4-4-4-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í brugðnu prjóni = 110-114-114-122-126-130 lykkjur.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3,5 og prjónið stroff frá réttu þannig:
Prjónið 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 8 kantlykkjur að framan eins og áður.
Haldið svona áfram með stroff í 5 cm.
Í byrjun á næstu 2 umferðum er fækkað um 7 ystu kantlykkjur að framan í hvorri hlið og stroffið heldur áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið aðeins laust af þegar kantur í hálsmáli mælist ca 10 cm. Brjótið uppá stroffið að innanverðu á stykki og saumið niður. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsaumana – byrjið efst við handveg og saumið í ysta lið á ystu lykkju þannig að saumurinn verði flatur, þar til eftir er sú lengd að óskaðri klauf í hvorri hlið (það verður sýnilegur kantur með 8 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki). Saumið op undir ermum við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Valérie wrote:

Bonjour combien me faut de laine pour le tricoter en daisy + kid silk? merci pour la réponse

10.03.2024 - 19:00

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, calculez le métrage total nécessaire pour votre taille et divisez-le en 3, le tiers de ce métrage correspond à la quantité kid-Silk (= à rediviser par le métrage d'une pelote Kid-Silk pour avoir le nombre de pelotes), et divisez le métrage restant (les 2/3) par le métrage d'une pelote Daisy. Pensez ensuite à bien vérifier et à bien conserver la bonne tension. Bon tricot!

11.03.2024 - 09:39

country flag Samia Shafqaat wrote:

Cloud cardigan

20.01.2024 - 08:37

country flag Marlies Van Dijk wrote:

Lekker fluffy

18.01.2024 - 21:51

country flag Karin wrote:

White summer

18.01.2024 - 21:15

country flag Michèle wrote:

Nuage coton

18.01.2024 - 16:21