Roswitha Gerlach skrifaði:
Hallo liebes drops Team, der Pullover soll in Runden gestrickt werden. Im Diagramm ist aber von Hin und Rückreihen die Rede. Wie passt das zum Rundstricken? Demnach stricke ich eine Reihe rechts, die nächste mit linken Maschen. Wenn im Diagramm erwähnt usw. Danke für eine Rückmeldung und freundliche Grüße, Roswitha
10.05.2025 - 13:34DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Gerlach, der Pullover wird von unten nach oben zuerst in Runden gestrickt, dann wird man Maschen für die Armlöcher abketten und Rücken- / Vorderteil separat in Hin- und Rückreihen gestrickt. Wenn man in Runden strickt, strickt man immer Hin-Reihen: lesen Sie jeder Reihe rechts nach links; wenn Sie dann in Hin- und Rückreihen weiterstricken lesen Sie die Rückreihen links nach rechts. Viel Spaß beim Stricken!
12.05.2025 - 07:52
Daniela skrifaði:
Buongiorno sono arrivata al collo ma non riesco a capire i cm da lavorare.
11.11.2024 - 10:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Deve lavorare per 13 cm. Buon lavoro!
17.11.2024 - 20:06
Rybka skrifaði:
Jade Delight Sweater
21.01.2024 - 14:34
Veronica Ekengren skrifaði:
Seabreez Sweater
18.01.2024 - 16:10
Svanhildur skrifaði:
Blæja
18.01.2024 - 13:18
Svanhildur skrifaði:
Blæja
18.01.2024 - 13:18
Mint to Be Sweater#minttobesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri, skáhallandi öxl, tvöföldum kanti í hálsmáli og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 222-246-264-282-306-336 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið stroff eftir MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stroffið ca 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur jafnframt því sem í fyrstu umferð er fækkað um 38-46-48-50-58-64 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-232-248-272 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, prjónið frá byrjun umferðar þannig: Fellið af 1-5-5-9-9-11 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 1 lykkju sléttprjón, haldið áfram með A.2 yfir næstu 88-88-96-96-104-112 lykkjur (framstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón og fellið af 2-10-10-18-18-22 lykkjur fyrir handveg, prjónið 1 lykkju sléttprjón, haldið áfram með A.2 yfir næstu 88-88-96-96-104-112 lykkjur, prjónið 1 lykkju sléttprjón (bakstykki) og fellið af síðustu 1-5-5-9-9-11 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Hvort stykki ernú prjónað fram og til baka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 90-90-98-98-106-114 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju sléttprjón í hvorri hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur að loka máli, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli, JAFNFRAMT er fellt af fyrir skáhallandi öxl í hverri umferð frá handvegi. Fellið af 7-7-8-8-9-10 lykkjur alls 3 sinnum, eftir það eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: Setjið til baka de 90-90-98-98-106-114 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í sléttprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur að loka máli, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingunni, setjið miðju 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (= 35-35-38-38-41-45 lykkjur fyrir hvora öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum = 31-31-34-34-37-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingunni, fellið af fyrir skáhallandi öxl í hverri umferð frá handvegi. Fellið af 7-7-8-8-9-10 lykkjur alls 3 sinnum, eftir það eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Endurtakið á hinni öxlinni. ERMAR: Fitjið 66-66-72-78-78 lykkjur á hringprjón 3,5. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið mynstur þar til stykkið mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm (endið eftir 1 umferð sléttprjón í mynstri). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið síðan í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 18-16-20-18-22-20 lykkjur jafnt yfir = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar og látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 4½-4-3-2½-2½-2 cm alls 8-9-10-11-12-12 sinnum = 64-68-72-76-80-82 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 46-45-44-43-42-39 cm. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka frá merkiþræði mitt undir ermi, þar til ermin mælist 47-48-47-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-3-3-5-5-7 cm efst á erminni. Fellið af. FÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermer í við fram- og bakstykki efst, klaufin efst á ermi er saumið við botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5 og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 108 til 132 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði við miðju að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 13 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið e.t.v. niður með nokkrum sporum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #minttobesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.