Kath Lenglet skrifaði:
Je vous remercie pour votre réponse, toujours en attente. Cordialement Catherine
20.09.2024 - 18:02
Kath Lenglet skrifaði:
Oui d' accord. Aussi, j' ai lu "augmentations épaules....", donc on reprend un nouveau fil, on augmente les 4 mailles et cela 18 fois ts les tours. Et ensuite 2 tours en augmentant seulement après marqueur 2 et avant marqueur 3. Est-ce exact ? Ensuite on tricote "augmentations manches" ? A quel moment on tricote le point fantaisie ? D'avance merci Catherine.
20.09.2024 - 09:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, vous coupez le fil à la fin de la réhausse et tricotez désormais à partir du 1er fil marqueur, vous joignez le fil à cet endroit et tricotez 18 tours (tailles M, L et XL en augmentant 2 m pour le devant et 2 m pour le dos. Le point fantaisie commence 4 tours après la réhausse, autrement dit, lorsque vous tricotez le 5ème tour des augmentations épaules/manches marteau, vous tricotez le point fantaisie. Vous augmentez ensuite seulement pour les manches (4 m) puis pour l'empiècement (8 m ). Bon tricot!
20.09.2024 - 16:30
Catherine LENGLET skrifaði:
Bonjour, Pour ce modèle ; je ne comprends pas lorsque vous dites augmentation épaules/manches : -- comment savoir si c'est une augmentation inclinée à droite ? ou à gauche ?? D'avance merci Catherine
19.09.2024 - 15:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lenglet, augmentez comme indiqué sous AUGMENTATIONS -2 (sur l'endroit):, en augmentant comme indiqué après ou avant les fils marqueurs indiqués, les augmentations seront inclinées comme elles doivent l'être. Bon tricot!
19.09.2024 - 16:03
Megan skrifaði:
But you haven’t answered my question why the other patterns with saddle shoulders do not start rounds from Marker 1. What is the difference between starting here and mid-back? If I start from mid-back, could I still follow the pattern?
12.09.2024 - 16:34DROPS Design svaraði:
Dear Megan, this is a designer's choice, just. a different way to work this pattern compared to some others you might have already read. Happy knitting!
13.09.2024 - 08:24
Megan skrifaði:
This is following my previous questions. For the pattern of Glacier Water and some others with saddle shoulders, you seem to start rounds from mid-back. For this pattern, if I move the stitches onto the right needle, do I knit them in the next round? Why does this make a difference? Plus, why do I need to cut the strand after the short rows?
11.09.2024 - 17:22DROPS Design svaraði:
Dear Megan, you need to cut the yarn after the elevation because the elevation rows start on mid back but the increases for saddle shoulders start before 1st marker thread; this means rounds start with stitches for saddle shoulder (you will increase before the marker-thread-1 at the end of the rounds. Happy knitting!
12.09.2024 - 09:28
Megan skrifaði:
Hi, Is there another pattern(s) that incorporates an elevation but does not use saddle shoulder technique? Like a raglan sweater? Thanks.
10.09.2024 - 20:18DROPS Design svaraði:
Dear Megan, sure they are some, but no tags yet; for raglan jumpers worked top down you can work the elevation on mid back as shown in this video. Happy knitting!
11.09.2024 - 09:56
Megan skrifaði:
I have two questions. 1, why does the pattern call for “cut the strand” when the elevation is done? I used German short row method. 2, “The round now starts just after marker-thread 1, (stitches between mid-back and marker-thread 1 are moved onto the right needle).” Do you “move” the stitches by knitting them onto the right needle? Why does it make a difference to start the round after Marker 1?
10.09.2024 - 20:00DROPS Design svaraði:
Dear Megan, the short rows start on mid back but the next section will start just after the first marker-thread, ie you will now work in the round from 1st marker thread and not from mid back anymore. Just slip the stitches from mid back to 1st marker thread as if to purl on the right needle without working them. Happy knitting!
11.09.2024 - 09:54
Megan skrifaði:
In the section on Elevation: “increase 1 stitch AFTER marker-thread 1 and BEFORE marker-thread 4,” is this an error? This will change the number of stitches for the saddle shoulders.
22.08.2024 - 20:30DROPS Design svaraði:
Dear Megan, from RS you will increase before marker thread-1 (and after marker thread 4) but when working from WS on next row you will increase after marker-thread 1 and before marker thread 4; you are increasing the number of stitches on back piece there (between markers). Happy knitting!
23.08.2024 - 08:02
Katharina skrifaði:
Grüezi, ich stricke meinen ersten Top-down Pullover mit Drops Air und habe Probleme bei den Sattelschulterzunahmen. Es gibt rechts geneigte und links geneigte Zunahmen (Zunahmetipp- 2). Ich bin nicht sicher, ob ich immer alle Zunahmen gleich stricken muss oder einmal rechts und einmal links geneigt, zB. nach dem Markierungsfaden links geneigt und vor dem Markierungsfaden rechts geneigt? Vielen Dank für Ihre Hilfe.
29.04.2024 - 19:46DROPS Design svaraði:
Liebe Katharina, Anleitung wird korrigiert, nach der Markierung nehmen Sie nach links zu und vor der Markierung nehmen Sie nach rechts zu. Viel Spaß beim Stricken!
28.05.2024 - 13:41
Ann skrifaði:
Hey, the specifics of increasing seem to be missing here--while each of the methods are explained, the type of increase for each specific increase is not mentioned. If you're looking to make this, you will need to carefully watch the videos as well as reading the pattern and reading the diagram. This pattern could really use some errata
18.02.2024 - 19:37
Oatfield#oatfieldsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu fyrir axlarsætir og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-7 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir í útaukningu): Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (frá réttu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri á eftir merkiþræði: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri á undan merkiþræði: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (frá röngu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri á eftir merkiþræði: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri á undan merkiþræði: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkju í umferð með því að fækka um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður og allt stykkið (fyrir utan upphækkun), er prjónað í hring á hringprjóna. Þegar kantur í hálsmáli og berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-86-90-94-96-100 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air eða DROPS Big Merino. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 18-16-16-20-22-18 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 102-102-106-114-118-118 lykkjur. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð (= mitt að aftan) og setjið 1 merki í 52-52-54-58-60-60 lykkju í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá merki sem var sett í mitt að framan. Merkin eru einnig notuð til að telja út frá hlið hvar mynstrið á að byrja, eins og útskýrt er aðeins neðar í mynstri. Að auki eru settir 4 merkiþræðir í stykkið þannig: Merkiþræðirnir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir axlarsæti. MERKIÞRÁÐUR 1: Byrjið mitt að aftan, teljið 18-18-19-19-20-20 lykkjur meðtalin lykkja með merki 1 (= ½ bakstykki), setjið 1. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. MERKIÞRÁÐUR 2: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur á eftir 1. merkiþræði (= axlalykkjur), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. MERKIÞRÁÐUR 3: Teljið 35-35-37-37-39-39 lykkjur á eftir 2. merkiþræði (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. MERKIÞRÁÐUR 4: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur á eftir 3. merkiþræði (= axlalykkjur), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju. Það eru 17-17-18-18-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. merkiþræði (= ½ bakstykki). Látið 4 merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, það á að auka út við hvern af þessum merkiþráðum. Nú er prjónuð upphækkun aftan í hnakka eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN: Öll upphækkunin er prjónuð fram og til baka í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Byrjið mitt að aftan, prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 15-15-17-17-19-19 lykkjur brugðið – þegar stykkinu er snúið myndast lítið gat – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina GERMAN SHORT ROWS – leitaðu í myndböndunum okkar. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 23-23-26-26-29-29 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 31-31-35-35-39-39 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 39-39-44-44-49-49 lykkjur slétt – að auki er aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. merkiþræði – lesið ÚTAUKNING-2 (útaukna lykkjan kemur sem viðbót við lykkjufjölda í upphækkun), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 47-47-53-53-59-59 lykkjur brugðið – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. merkiþræði og á UNDAN 4. merkiþræði – lesið ÚTAUKNING-3 (munið að útauknar lykkjur koma sem viðbót), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka að miðju að aftan – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 4. merkiþræði, klippið þráðinn. Nú hafa verið auknar út 2 lykkjur á undan 1. merkiþræði og 2 lykkjur á eftir 4. merkiþræði (séð frá réttu), þ.e.a.s. það eru 4 lykkjur fleiri á bakstykki en á framstykki = 106-106-110-118-122-122 lykkjur á prjóni. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Síðan byrjar umferðin strax eftir 1. merkiþráð (færið lykkjur sem eru á milli mitt að aftan og 1. merkiþræði, yfir á hægri prjón). Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir axlarsætis útaukningu og prjónað er í hring á hringprjóna – jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti, prjónið mynstur á framstykki og bakstykki. Lestu kaflann ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI og MYNSTUR að neðan, áður en prjónað er áfram! ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón og aukið út 4 lykkjur fyrir axlarsæti í fyrstu umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. merkiþræði og aukið út á UNDAN 1. og 3. merkiþræði – munið eftir ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út á sama hátt í hverri umferð alls 16-18-18-18-20-20 sinnum. Síðan eru prjónaðar 2 umferðir þar sem einungis er aukið út í hvorri hlið á framstykki, þannig að það verða jafn margar lykkjur á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á EFTIR 2. merkiþræði og á UNDAN 3. merkiþræði í báðum umferðum = 174-182-186-194-206-206 lykkjur í umferð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur í umferð á hvorri öxl og 71-75-77-77-83-83 lykkjur á framstykki/bakstykki). Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-9-9-10-10 cm frá þar sem merki var sett mitt að framan. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er aðeins neðar í mynstri. MYNSTUR: Jafnframt þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í sléttprjóni á eftir kanti í hálsmáli og upphækkun hefur verið prjónuð til loka, byrjar mynstrið. A.1 er einungis prjónað á framstykki og bakstykki, á ermum er prjónað sléttprjón. Prjónið þannig: Prjónið sléttprjón yfir axlalykkjur og á framstykki er byrjun mynsturs talið út frá merki mitt að framan – sjá tákn í A.1 sem merkir miðju að framan / miðju að aftan, teljið út að hlið (að 2. merkiþræði) eins langt og hægt er að axlarsætis útaukningu og byrjið mynstrið. ATH: Það er best að forðast «hnútamynstur» alveg við axlarsætis útaukningu, skiptið e.t.v. út þessum lykkjum með sléttprjóni, síðan er prjónað A.1 eins langt og hægt er að axlarsætis útaukningu í annarri hlið (að 3. merkiþræði) og prjónið síðustu lykkjur í sléttprjóni þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir axlarsætis lykkjur og prjónið mynstur á bakstykki á sama hátt og á framstykki. Haldið svona áfram hringinn. Útauknar lykkjur frá axlarsætis útaukningu og síðar frá berustykkis útaukningu, eru prjónaðar jafn óðum inn í mynstur, en passið uppá að það komi ekki «hnútamynstur» alveg við útaukningar. ÚTAUKNING ERMAR: Þegar útaukningu fyrir axlarsætis útaukningu er lokið, aukið út 4 lykkjur fyrir ermar í næstu umferð þannig: Aukið út 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. merkiþræði og aukið út á UNDAN 2. og 4. merkiþræði – munið eftir ÚTAUKNING-2! Það er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-13-15-13-13-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-2-0-0-0-0 sinnum = 234-242-246-246-258-246 lykkjur. Stykkið mælist ca 20-22-23-21-22-19 cm frá þar sem merkið var sett á framstykki. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Takið frá 4 merkiþræðina frá útaukningu á ermum og setjið 1 merki í ystu lykkju í hvora hlið á framstykki og bakstykki (4 ný merki). Það eru 71-75-77-77-83-83 lykkjur á framstykki/bakstykki ásamt lykkjum með merki í og 46-46-46-46-46-40 lykkjur á hvorri ermi. Í næstu umferð eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði fyrir og á eftir hverjum 4 lykkjum með merki í. Nú er lykkjum aukið út á framstykki, bakstykki og báðum ermum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á framstykki/bakstykki og í sléttprjóni á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-0-1-3-5-12 sinnum og síðan í hverri umferð alls 1-2-3-5-3-0 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 242-258-278-310-322-342 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 21-23-25-26-28-30 cm frá þar sem merki var sett á framstykki og ca 26-28-30-32-34-36 cm frá öxl. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Setjið fyrstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (= allar lykkjur á milli 1. og 2. merkiþráða), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 73-79-85-93-99-107 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (= allar lykkjur á milli 3. og 4. merkiþráða), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 73-79-85-93-99-107 lykkjur (= bakstykki). Takið frá öll merki og merkiþræði í stykkinu. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrri sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-174-190-206-222-242 lykkjur. Setjið 1 nýtt merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 6-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið sléttprjón fram að merki – umferðin byrjar héðan og er prjónuð í hring. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið undir hvorri ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-20-19-19-19 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu nokkrar umferðir sléttprjón eftir umferð með «hnútar». Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 16-20-22-24-24-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 174-194-212-230-246-270 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-50-54-62-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 8-6-4-2½-2½-2 cm alls 4-5-7-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 35-34-32-30-30-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4-4-4-5-5-5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum í umferð 1 = 52-54-56-58-58-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 39-38-36-35-35-33 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oatfieldsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.