DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Falling Sand Cardigan

Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, röndum og I-cord. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 249-2

#fallingsandcardigan

DROPS Design: Mynstur ks-216
Garnflokkur A + A + A + A eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-150-175-175 g litur 42, mandla
75-75-75-75-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-75 g litur 54, ljós sandur
50-50-50-50-50-50 g litur 56, marsipan

Ef prjóna á stykkið í einum lit þá þarf:
225-250-275-300-325-350 g

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

TÖLUR:
DROPS TALA NR 511: 5-5-5-6-6-6 st.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 4 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroffi í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9-9-9½-8½-9-9 cm millibili.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir laskalínulykkju í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Frá röngu er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN LASKALÍNULYKKJU:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR LASKALÍNULYKKJU:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan í lykkjubogann þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.

KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

RENDUR:
Rendur eru prjónaðar þannig:
12-12-14-14-16-16 umferðir með 4 þráðum í litnum natur
2 umferðir með 3 þráðum í litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan
4 umferðir með 3 þráðum í litnum marsipan + 1 þræði í litnum natur
2 umferðir með 2 þráðum í litnum natur + 2 þráðum í litnum marsipan
2 umferðir með 1 þræði í litnum natur + 2 þráðum í litnum marsipan + 1 þræði í litnum mandla
2 umferðir með 4 þráðum í litnum marsipan
2 umferðir með 1 þræði í litnum ljós sandur + 2 þráðum í litnum marsipan + 1 þræði í litnum natur
4 umferðir með 2 þráðum í litnum marsipan + 2 þráðum í litnum ljós sandur
2 umferðir með 3 þráðum í litnum sandur + 1 þræði í litnum marsipan
2 umferðir með 4 þráðum í litnum ljós sandur
2 umferðir með 2 þráðum í litnum natur + 2 þráðum í litnum ljós sandur
4 umferðir með 3 þráðum í litnum ljós sandur + 1 þræði í litnum mandla
2 umferðir með 1 þræði í litnum mandla + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan + 1 þræði í litnum ljós sandur
4 umferðir með 3 þráðum í litnum natur + 1 þræði í litnum mandla
2 umferðir með 2 þráðum í litnum mandla + 1 þræði li litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan
4 umferðir með 1 þræði í litnum mandela + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan + 1 þræði í litnum ljós sandur
2 umferðir með 2 þráðum í litnum mandla + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós sandur
4 umferðir með 2 þráðum í litnum mandla + 2 þráðum í litnum ljós sandur
2 umferðir með 3 þráðum í litnum mandla + 1 þræði í litnum ljós sandur
Prjónað er til loka með 4 þráðum í litnum mandla

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Hálsmál og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og er prjónað ofan frá og niður.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 79-81-81-89-89-95 lykkjur á hringprjón 5,5 með 4 þráðum DROPS Kid-Silk í litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað frá réttu þannig: KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – munið eftir útskýringu að ofan. Prjónið stroff svona í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan – prjónaðar eru RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Stykkið er núna mælt héðan!

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 10-10-10-12-12-14 lykkjur sléttprjón (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-11-11-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-21-21-25-25-27 lykkjur sléttprjón (bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-11-11-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-10-10-12-12-14 lykkjur sléttprjón og endið með 7 kantlykkjum að framan eins og áður. Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, er nú lokið. Laskalínulykkjur halda áfram í sléttri lykkju frá stroffi.

Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 14-14-18-18-16-17 sinnum = 191-193-225-233-217-231 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki.
Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 2-4-2-2-8-8 sinnum á fram- og bakstykki (1-2-1-1-4-4 sinnum á ermum).

Nú hefur verið aukið út alls 16-18-20-20-24-25 sinnum á fram- og bakstykki og 15-16-19-19-20-21 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 203-217-237-245-265-279 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 20-23-25-26-30-31 cm frá eftir kant í hálsmáli.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Prjónið 34-36-38-40-44-47 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 41-43-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 53-59-63-67-75-79 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 41-43-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-36-38-40-44-47 lykkjur sem eftir eru eins og áður (framstykki). Stykkið er mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 133-143-151-163-179-193 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 20-19-19-20-18-19 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-26-30-26-28 lykkjur = 151-165-177-193-205-221 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 7 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMAR:
Setjið 41-43-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 7, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 47-49-55-57-59-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Haldið áfram með úrtöku í hverjum 7-5-3½-3-2½-2 cm alls 6-7-9-10-10-12 sinnum = 35-35-37-37-39-39 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 41-39-38-36-33-32 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð og aukið út 5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 40-40-42-42-46-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af. Ermin mælist alls 45-43-42-40-37-36 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2024
Uppfærsla á tölum.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.10.2024
Efnismagn hefur verið uppfært.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 249-2

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Michaela skrifaði:

Ich habe eine Frage, das Knopfloch muss doch am Ende einer Rückreihe gestrickt werden, damit es auf der rechten Jackenseite liegt und nicht in einer Hinreihe? Laut Ihrer Anleitung wird es am Ende einer Hinreihe gestrickt. Das kann ich nicht nachvollziehen. Vielen Dank für eine kurzfristige Antwort.

15.01.2025 - 20:13

DROPS Design svaraði:

Liebe Michaela, die Jacke wird von oben nach unten gestrickt, dh die Hinreihen beginnen mit dem linken Vorderteil und enden mit dem rechten Vorderteil, damit die Knopflöcher beim rechten Vorderteil liegen, wird man sie am Ende einer Hinreihe stricken. Viel Spaß beim Stricken!

16.01.2025 - 09:10

country flag ISABELLE skrifaði:

Bonjour, j'ai tricoté cette veste qui est magnifique, mais malheureusement elle s'est beaucoup détendue, surtout au niveau du col. Avez vous un conseil à me donner pour y remédier ? Même le lavage ne la fait pas revenir comme avant. Merci par avance pour votre réponse

27.12.2024 - 13:42

DROPS Design svaraði:

Bonjour Isabelle, vous pouvez peut-être essayer avec cette technique - votre magasin pourra avoir une autre idée ou suggestion, n'hésitez pas à lui demander, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

02.01.2025 - 13:21

country flag Charlotte skrifaði:

Ich habe eine kurze Frage: Mit den Reihen in dem Streifenmuster sind jeweils eine Hin- und Rückreihe gemeint, oder? Ansonsten bin ich schon vor der Trennung des Rumpfteils und der Ärmel durch über die Hälfte des Musters durch… Vielen Dank!

30.11.2024 - 09:03

DROPS Design svaraði:

Liebe Charlotte, ja genau, bei den Streifen meinen z.B. 2 Reihen 1 Hin + 1 Rückreihe; Viel Spaß beim Stricken!

02.12.2024 - 08:42

country flag Chris Totty skrifaði:

“ Continue increasing for raglan every 2nd row, but every other increase is only on the front and back pieces, i.e. increase on the front and back pieces every 2nd row and on the sleeves every 4th row, alternately 4 and 8 increased stitches. Increase like this 2-4-2-2-8-8 times on the body (1-2-1-1-4-4 times on the sleeves).”. Does it mean that on size L , after the 18 times increases from raglan , there will be 4 more rows?

24.11.2024 - 02:04

DROPS Design svaraði:

Dear Chris, that's right, after the 18 increases from the raglan you will work 4 more rows, where you increase 1 time only in the body (=4 stitches) and 1 time in both the body and sleeves ( = 8 stitches). Happy knitting!

24.11.2024 - 23:02

country flag Annemarie Schenkels skrifaði:

Mooi dat het in nederlands geschreven is.

07.11.2024 - 18:26

country flag Tina skrifaði:

Hoe werk je de draden netjes weg\r\nVind de boord rommelig op deze manier met al die uitstekende draden

24.10.2024 - 13:19

country flag Elena skrifaði:

Bună ziua, Lucrez acest model deosebit și vreau să mă asigur că nu greșesc. La introducerea culorilor, după cele 14 rânduri tricotate cu culoarea de bază cod 01, natural, trebuie să lucrez 2 rânduri (3 fire culoare 01 + 1 fir culoare 56). Ce înseamnă exact aceste 2 rânduri? Un rând pe față plus unul pe dos? Sau 2 rânduri pe față plus 2 pe dos? Vă mulțumesc foarte mult pentru răspuns. Cu stima, Elena

16.10.2024 - 14:57

country flag Marie-Christine Spiers skrifaði:

J'aimerais tricoter le modèle "Falling Sand" avec un fil et non 4 comme prévu. Pourriez vous m'indiquer quelle laine choisir pour avoir un rendu équivalent ? Merci pour votre réponse.

27.09.2024 - 17:57

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Spiers et pardon pour le retard de la réponse; vous pouvez remplacer 4 fils Kid-Silk par 1 fil du groupe de fils E - utilisez notre convertisseur pour voir la nouvelle quantité correspondante. Notez que la texture en sera automatiquement modifiée. Bon tricot!

28.10.2024 - 13:27

country flag Audrey skrifaði:

À quel tour de poitrine correspond chaque taille svp ? Merci Audrey

11.09.2024 - 21:00

DROPS Design svaraði:

Bonjour Audrey, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page, vous trouverez ainsi la taille correspondante - retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

12.09.2024 - 09:32

country flag Astrid Larsen skrifaði:

Kan Falling Sand Cardigan strikkes nedenfra og opp?

08.09.2024 - 16:42

DROPS Design svaraði:

Hei Astrid. Det kan den. Bare husk å lese godt igjennom oppskriften først, slik at du vet hvordan du f.eks skal øke istedenfor å felle, hvordan du vil strikke stolpen med i-cord osv. mvh DROPS Design

09.09.2024 - 12:56