Sabine skrifaði:
Ich würde diesen Pullover gerne nur mit 3 Fäden stri und Nadelstärke 6 oder 7 nehmen, damit der Pullover etwas luftiger wird. Ginge das?
08.04.2025 - 22:45DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, solange Sie die richtige Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe haben, kann das wahrscheinlich gehen. Viel Spaß beim Stricken!
09.04.2025 - 08:32
Valérie skrifaði:
Bonjour, Je souhaiterais faire ce joli pull. Toutefois pensez vous que ce serait possible de resserrer le bas des manches ? Mais comment m'y prendre ? En sautant l'étape des augmentations avant les cotes 1/1 ? Merci pour vos conseils
09.02.2025 - 18:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Valérie, pour des bordures de manches plus serrées, vous pouvez effectivement soit juste ne pas augmenter (mais ajustez votre nombre de mailles pour qu'il soit pair), ou bien diminuer en fonction de la largeur souhaitée pour les côtes. Bon tricot!
10.02.2025 - 11:08
Julia Klaveness skrifaði:
Goedenavond, ik zou graag beginnen met het breien van een ‘makkelijke’ patroon voor een trui omdat het mijn eerste keer is. Ik vind de DROPS Design: Patroon ks-219 erg mooi. Kan dit ook zonder rondbreinaald? Hebben jullie ook patronen zonder rondbreinaald maar gewoon met 2 naalden? Hartelijke groet, Julia
11.01.2025 - 21:46DROPS Design svaraði:
Dag Julia,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Helaas is dit niet voor alle patronen geschikt
13.01.2025 - 21:10
Tone skrifaði:
Dersom man erstatter Drops kid slik (4 tråder) med Drops Snow (1 tråd), skal man fortsatt holde seg til anbefalte pinnetykkelse nr 7.
26.11.2024 - 14:59DROPS Design svaraði:
Hei Tone, Ja, pinnestørrelse blir som anbefalt. men det er lurt å strikke en prøvelapp for å sjekke strikkefastheten din før du begynner, og eventuelt justere pinnestørrelsen hvis nødvendig. God fornøyelse!
27.11.2024 - 06:58
Wil skrifaði:
Goedemorgen, ik ben niet met dit patroon aan het breien. Raglan en Pas is voor mij nog te moeilijk. Maar ik heb het kleurverloop overgenomen uit het patroon, ook met kidsilk maar met 3 draden. Vandaar dat ik ook al die draadjes aan de achterkant heb. Jammer dat er zo weinig patronen zijn met aangebreide mouwen. Maar misschien komt dat nog :) Het patroon vind ik overigens prachtig!!
11.11.2024 - 10:31
Wil skrifaði:
Goedemorgen,.. ik weet niet of ik tips mag door geven. Maar bij een breiwerk met Kidsilk en waar dan de draden wisselen van kleur, is het handig om de draadjes die je afgeknipt hebt, een paar steken mee te breien. Zodat in de volgende naald geen draden vastgeknoopt hoeven te worden. Misschien is het al een keer opgemerkt, maar ik vind dit een prima oplossing!
08.11.2024 - 11:33
Elizabeth Marie Knudsen skrifaði:
I forbindelse med å bytte garn i oppskriften fra å bruke 4 tråder Kid Silk til Flora så lurer jeg på om man bør strikke med dobbel tråd Flora siden begge kvalitetene har 210 løpemetere?
22.10.2024 - 09:59DROPS Design svaraði:
Hej Elizabeth, for at få strikkefastheden som står i opskriften skal du strikke med 4 tråde DROPS Flora som har samme tykkelse som DROPS Kid-Silk - begge tilhører garngruppe A :)
23.10.2024 - 15:15
Eve skrifaði:
Bonjour. Combien faut-il de pelotes de laines Brushed Alpaca Silk pour tricoter ce modèle en taille S ? Merci pour votre réponse.
09.10.2024 - 22:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Eve, utilisez notre convertisseur pour calculer la nouvelle quantité nécessaire (choisissez bien Kid-Silk, et 2 fils car on tricote ici en double) en utilisant la quantité indiquée pour un pull uni. Bon tricot!
10.10.2024 - 09:18
Anne Laurent Verhoeven Lenneberg skrifaði:
Bonjour, Comment s'y prendre pour tricoter en 4 fils quand on ne dispose que d'une seule pelote ? Existe-t-il des accessoires pour séparer la pelote en 4 ? Merci d'avance. Anne
01.10.2024 - 14:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, dans ce modèle, ce sera facile, chaque pelote Kid-Silk pèse 25 g; pour tricoter avec 4 fils, on peut utiliser 1 fil de l'intérieur + 1 fil de l'extérieur de 2 pelotes pour tricoter avec 4 fils par ex; jouez ainsi avec les fils du début/fin de pelote ou bien divisez: une pelote en 2 ou en 3 (NB: calculez sur 25 g au lieu de 50 g dans la vidéo en raison du poids d'1 pelote Kid-Silk. Bon tricot!
01.10.2024 - 16:32
Nina Holmquist skrifaði:
Har målt, og strikkefastheten stemmer. Jeg strikker med 4 tråder. Genseren i str. L måler 39 cm. fra halskant og ned. Da har ikke mer garn igjen. Dvs. at jeg skal strikke 11cm. til….Den andre genseren har jeg kjøpt 2 nøster ekstra med garn, så der får jeg ikke målt, den er ferdig.
28.08.2024 - 09:32DROPS Design svaraði:
Hej Nina, tusind tak for information - vi lader Design se på garnforbruget!
28.08.2024 - 12:03
Falling Sand#fallingsandsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN lykkju með merki: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn) og prjónið uppsláttinn slétt. Á EFTIR lykkju með merki: Prjónið uppsláttinn snúið slétt. RENDUR: Rendur eru prjónaðar þannig: 12-12-14-14-16-16 umferðir með 4 þráðum í litnum natur 2 umferðir með 3 þráðum í litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan 4 umferðir með 3 þráðum í litnum marsipan + 1 þræði í litnum natur 2 umferðir með 2 þráðum í litnum natur + 2 þráðum í litnum marsipan 2 umferðir með 1 þræði í litnum natur + 2 þráðum í litnum marsipan + 1 þræði í litnum mandla 2 umferðir með 4 þráðum í litnum marsipan 2 umferðir með 1 þræði í litnum ljós sandur + 2 þráðum í litnum marsipan + 1 þræði í litnum natur 4 umferðir með 2 þráðum í litnum marsipan + 2 þráðum í litnum ljós sandur 2 umferðir með 3 þráðum í litnum sandur + 1 þræði í litnum marsipan 2 umferðir með 4 þráðum í litnum ljós sandur 2 umferðir með 2 þráðum í litnum natur + 2 þráðum í litnum ljós sandur 4 umferðir með 3 þráðum í litnum ljós sandur + 1 þræði í litnum mandla 2 umferðir með 1 þræði í litnum mandla + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan + 1 þræði í litnum ljós sandur 4 umferðir með 3 þráðum í litnum natur + 1 þræði í litnum mandla 2 umferðir með 2 þráðum í litnum mandla + 1 þræði li litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan 4 umferðir með 1 þræði í litnum mandela + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum marsipan + 1 þræði í litnum ljós sandur 2 umferðir með 2 þráðum í litnum mandla + 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós sandur 4 umferðir með 2 þráðum í litnum mandla + 2 þráðum í litnum ljós sandur 2 umferðir með 3 þráðum í litnum mandla + 1 þræði í litnum ljós sandur Prjónað er til loka með 4 þráðum í litnum mandla ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-68-76-76-80 lykkjur á hringprjón 5,5 með 4 þráðum DROPS Kid-Silk í litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er sett 1 merki í byrjun umferðar (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu merki. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI. Prjónaðar eru RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: 10-10-10-12-12-14 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-11-11-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-21-21-25-25-27 lykkjur sléttprjón (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni upppá prjóninn, prjónið 11-11-11-11-11-11 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 9-11-11-13-13-13 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, er nú lokið = 72-76-76-84-84-88 lykkjur. Laskalínulykkjur halda áfram í sléttri lykkju frá stroffi. Haldið áfram í sléttprjóni og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 14-14-18-18-16-17 sinnum (ásamt útaukningu í fyrstu umferð) = 176-180-212-220-204-216 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 2-4-2-2-8-8 sinnum á fram- og bakstykki (1-2-1-1-4-4 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 16-18-20-20-24-25 sinnum á fram- og bakstykki og 15-16-19-19-20-21 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 188-204-224-232-252-264 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 20-23-25-26-30-31 cm frá eftir kant í hálsmáli. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið 27-29-31-33-37-40 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 41-43-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 53-59-63-67-75-79 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 41-43-49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 26-30-32-34-38-39 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (hálft bakstykki). Stykkið er mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 118-130-138-150-166-178 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 20-19-19-20-18-19 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-26-30-26-28 lykkjur = 136-152-164-180-192-206 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 41-43-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 7, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 47-49-55-57-59-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku í hverjum 7-5-3½-3-2½-2 cm alls 6-7-9-10-10-12 sinnum = 35-35-37-37-39-39 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 41-39-38-36-33-32 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð og aukið út 5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 40-40-42-42-46-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 45-43-42-40-37-36 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fallingsandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.