Anja skrifaði:
Ik brei nu in patroon A1 maat L en heb net de 11e regel gebreid waarbij 3 averecht, 3recht gebreid wordt en de 1e rechter steek over de 2 laatste heen gehaald wordt. Ik heb nu dus nog 5 steken per herhaling op de pen staan, hoe kan ik dan in de volgende 12e regel 6 steken recht breien als er nog maar 5 zijn?
19.03.2024 - 08:03DROPS Design svaraði:
Dag Anja,
In de naalden die volgen heb je geen 'last' van dat je een herhaling van 6 steken moet hebben omdat je dan recht of averecht breit over de hele naald. Na de meerderingen op pijl 3 en pijl 4 zit je weer op een meervoud van 6 steken en kun je het patroon voortzetten.
20.03.2024 - 10:56
ANTONELLA skrifaði:
Buongiorno, segnalo che la somma delle maglie al Motivo A1 Freccia 1 taglia L è errato. Avviate 150 maglie + 36 aumenti sprone ferro 1 +18 aumenti Motivo A1 Freccia 1 Totale 204 maglie e non 246 come indicato. Grazie e attendo Vostra gentile risposta
13.02.2024 - 16:07DROPS Design svaraði:
Buonasera Antonella, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il modello, ora il numero di aumenti è corretto. Buon lavoro!
13.02.2024 - 21:57
Sarinna skrifaði:
Wildflower Meadow
18.01.2024 - 18:44
Veronica Ekengren skrifaði:
Pink Dream Sweater
18.01.2024 - 16:15
Quilting Bee#quiltingbeesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-26 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-140-150-152-158-166 lykkjur á hringprjón 3. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn inn að röngu og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 6 cm. Setjið 1 merki fyrir miðju að aftan, mæla á berustykki frá þessu merki. BERUSTYKKI. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 34-36-36-38-40-42 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 170-176-186-190-198-208 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-4-5-5-5-6 cm frá merki, aukið út 34-40-42-44-48-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 204-216-228-234-246-258 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 4-5-6-7-7-8 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 34-36-38-39-41-43 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Ör-1: Aukið út 18-18-18-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 222-234-246-258-270-288 lykkjur Ör-2: Aukið út 18-26-24-22-25-32 lykkjur jafnt yfir = 240-260-270-280-295-320 lykkjur. Ör-3: Aukið út 18-22-24-32-35-34 lykkjur jafnt yfir = 258-282-294-312-330-354 lykkjur. Ör-4: Aukið út 24-24-36-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 282-306-330-348-366-390 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 329-357-385-406-427-455 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan A.2 hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.2, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Ör-5: Aukið út 21-21-28-35-42-35 lykkjur jafnt yfir = 350-378-413-441-469-490 lykkjur. Ör-6: Aukið út 10-14-11-23-27-30 lykkjur jafnt yfir = 360-392-424-464-496-520 lykkjur. Ör-7: Aukið út 4-4-4-12-16-20 lykkjur jafnt yfir – passið uppá að útaukningin skiptist þannig að gatamynstrið haldi sér = 364-396-428-476-512-540 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 19-20-21-22-24-25 cm frá merki. Prjónið sléttprjón þar til berustykkið mælist 20-21-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 55-60-64-71-78-84 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 72-78-86-96-100-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 110-120-128-142-156-168 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 72-78-86-96-100-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 55-60-64-71-78-84 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 240-260-280-308-340-368 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki, mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-20-20-21-21-21 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 56-62-68-72-78-90 lykkjur jafnt yfir = 296-322-348-380-418-458 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 72-78-86-96-100-102 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-88-98-108-114-118 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4-4-3-3-2-2 hverri umferð alls 8-10-14-18-19-20 sinnum = 66-68-70-72-76-78 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-41-41-40-38 cm frá skiptingunni. Það eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 80-84-86-90-94-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 46-45-45-45-44-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður 1/3 af stroffið í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með einu spori í hvorri hlið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quiltingbeesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.