Pauline skrifaði:
Bonjour, Je veux faire la salopette pour un peu plus grand que 1/3 mois mais pas 6/9 mois . Avec des aiguilles 3.25 j'augmente la grandeur un peu pour le rib mais pour le pantalon 4.50 mm , seras ce trop grand.
29.09.2024 - 05:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Pauline, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; essayez de tricoter votre échantillon avec d'autres aiguilles si vous le souhaitez et recalculez si vous obtenez ainsi les bonnes mesures. Sinon, basez vous simplement sur le schéma des mesures et choisissez la taille la plus adaptée en fonction d'un vêtement du bébé dans la taille souhaitée. Bon tricot!
30.09.2024 - 09:08
Annelise Schultz skrifaði:
Jeg vil gerne købe ovennævnte i str. 12 md. Men jeg kan ikke printe mønsteret, mangler en printer, garnet skal marineblåt, kan I levere det, samt et trykt mønster? Venlig hilsen Annelise
03.09.2024 - 11:45DROPS Design svaraði:
Hej Annelise, klik på Bestil i opskriften og så beder du om en opskrift når du bestiller garnet, så vil butikken løse det :)
06.09.2024 - 09:54
Nicoline Krabbe Nielsen skrifaði:
Hej Jeg er ny i strikning og forstår ikke hvordan jeg "forskyder omgangen" når for- og bagstykke skal stikkes sammen? Kan I give mig en helt udførlig forklaring på hvordan jeg gør? Ikke bare "flyt mærket". Hvordan strikkes hele den første omgang efter at der er slået masker op mellem for og bagstykke? Er muligvis lidt tungnem men kan simpelthen ikke få det til at give mening. På forhånd tak. Mvh. Nicoline
17.08.2024 - 11:57DROPS Design svaraði:
Hej Nicoline, når du forskyder omgangen sætter du 1 mærke midt bagpå (imellem de 2 midterste retmasker), du kan strikke om til der hvor omgangen starter, eller så klipper du tråden og starter ved mærket og strikker nøjagtig som beskrevet :) Når du skal skifte til rundpind 4, så gør du det midt bagpå (ved det nye mærke).
21.08.2024 - 09:57
Karolina skrifaði:
Hallo, in der Anleitung steht im Abschnitt Rumpfteil: bei einer Länge von xx cm ab dem Zusammensetzen der Teile wird die Arbeit für die Beine geteilt. Laut dem Diagramm wird es 4 cm nach dem Zusammensetzen geteilt. Welche Angabe ist richtig? Vielen Dank
04.05.2024 - 15:33DROPS Design svaraði:
Liebe Karolina, die 4 cm in der Skizze sind nur für die Taille, die Arbeit misst 12 bis 26 von dem Zusammensetzen der Teile bis Verteilung für die Beine. Viel Spaß beim Stricken!
06.05.2024 - 08:04
Kristina skrifaði:
Der står under 'Ryg og forstykke', at man skal "Forskyd omgangen så den starter midt bagpå". Hvordan forskydes omgangen?
13.03.2024 - 20:06DROPS Design svaraði:
Hej Kristina, du flytter mærket, så du kan udgå fra det når du begynder at strikke forkortede pinde fra mærket midt bagpå :)
18.03.2024 - 15:00
Sophie skrifaði:
Hallo, In der Anleitung wird bei dem Bein-Abschnitt auf einen Abnahmetipp verwiesen. Leider kann ich ihn in der Anleitung nicht finden. Könnt ihr mir dabei weiterhelfen? LG
03.02.2024 - 23:16DROPS Design svaraði:
Liebe Sophie, danke für den Hinweis, es wird wie bei diesem Video abgenommen. Viel Spaß beim stricken!
05.02.2024 - 08:45
Swantje skrifaði:
Der Oberall ist toll und die Anleitung sehr verständlich. Mir fiel auf, dass kein ‚ABNAHMETIP‘, auf welchen zur Anleitung des Beines hingewiesen wird, vorhanden ist. LG
24.01.2024 - 17:42
Good Times Overall#goodtimesoverall |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar buxur með axlaböndum fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 45-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt (merkið situr mitt á milli þessa lykkja), 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í stroffprjón þannig: Á UNDAN MERKI: Uppslátturinn er prjónaður slétt/brugðið í aftari lykkjuboga á uppslætti. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón (þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn) og prjónið uppsláttinn slétt/brugðið í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig áður en stykkin eru sett saman og fram- og bakstykkið er síðan prjónað í hring. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð fyrir sig, í hring á sokkaprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 30-30-34-38 (42-42) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroffprjón með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * yfir næstu 8-8-12-12 (16-16) lykkjur, 2-2-0-2 (0-0) lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, setjið 1 merki mitt á milli þessa 2 lykkja, 1 lykkja brugðið, 2-2-0-2 (0-0) lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-12-12 (16-16) lykkjur og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Nú er fellt af fyrir hnappagötum í næstu umferð frá réttu og aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við merki, þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (hnappagat), haldið áfram í stroffprjóni og aukið út 1 lykkju hvoru megin við merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (hnappagat) og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram í stroffprjóni (uppslátturinn fyrir hnappagöt er prjónaður brugðið í næstu umferð). Útaukning hvoru megin við merki er prjónuð jafnóðum snúið inn í stroffprjón, þ.e.a.s. í stærð 0/1 - 1/3 - 12/18 mánaða er fyrsta útaukning prjónuð snúið slétt frá röngu og í stærð 6/9 mánaða, 2 ára og 3/4 ára er fyrsta útaukning prjónuð snúið brugðið frá röngu. Aukið nú út í hverri umferð frá réttu alls 9-9-11-13 (15-15) sinnum = 48-48-56-64 (72-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-8-10 (12-12) cm, geymið stykkið og prjónið bakstykkið. BAKSTYKKI: Fyrst eru prjónuð 2 axlabönd þannig: AXLABAND: Fitjið upp 8 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist ca 13 til 17 cm. Geymið stykkið og prjónið annað axlaband á sama hátt. Nú eru axlaböndin sett saman fyrir bakstykki í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir axlabandið sem síðast var prjónað þannig: 8 lykkjur í garðaprjóni, fitjið upp 14-14-18-22 (26-26) lykkjur, prjónið garðaprjón yfir 8 lykkjur í hinu axlabandinu = 30-30-34-38 (42-42) lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu þannig: 8 lykkjur garðaprjón 14-14-18-22 (26-26) lykkjur brugðið, 8 lykkjur garðarpjón. Prjónið stroffprjón með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðapróni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * yfir næstu 8-8-12-12 (16-16) lykkjur, 2-2-0-2 (0-0) lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, setjið 1 merki mitt á milli þessa 2 lykkja, 1 lykkja brugðið, 2-2-0-2 (0-0) lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-12-12 (16-16) lykkjur og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki á sama hátt og á framstykki. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út á sama hátt og á framstykki = 48-48-56-64 (72-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-8-10 (12-13) cm, prjónið bakstykki saman með framstykki og lykkjur fitjaðar upp á milli stykkja frá réttu þannig: Prjónið yfir bakstykki eins og áður, fitjið upp 8-12-12-8 (8-12) lykkjur, nú er prjónað yfir lykkjur á framstykki eins og áður, fitjið upp 8-12-12-8 (8-12) lykkjur = 112-120-136-144 (160-168) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Færið umferðina til þannig að byrjun sé mitt að aftan (þ.e.a.s. á milli 2 miðju lykkju slétt á bakstykki). Prjónið stroff hringinn þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt. Setjið 1 merki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 12-10-18-18 (26-26) lykkjur jafnt yfir = 100-110-118-126 (134-142) lykkjur. Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni. Til að flíkin passi betur eru buxurnar prjónaðar hærri að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Byrjið frá réttu og prjónið 9-10-11-10 (11-11) lykkjur slétt fram hjá merki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-20-22-20 (22-22) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 27-30-33-30 (33-33) lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram með því að prjóna yfir 9-10-11-10 (11-11) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 54-60-66-80 (88-88) lykkjur, snúið og prjónið til baka að miðju að aftan. Nú er stykkið prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-23-29-31 (31-30) cm frá þar sem stykkin voru sett saman (mælt mitt að framan), skiptist stykkið fyrir skálmar þannig: Fellið af fyrstu 3-4-5-6 (6-6) lykkjur, prjónið 44-47-49-51 (55-59) lykkjur slétt, fellið af næstu 6-8-10-12 (12-12) lykkjur, prjónið 44-47-49-51 (55-59) lykkjur slétt og fellið af síðustu 3-4-5-6 (6-6) lykkjur. Klippið þráðinn. Setjið lykkjur í annarri hlið á stykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið skálmar eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! SKÁLM: = 44-47-49-51 (55-59) lykkjur. Skiptið lykkjum niður á 4 sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón hringinn – setjið 1 merkiþráð að innanverðu á skálm. Þegar skálmin mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 3-4-5-6 (6-8) cm millibili alls 3-3-3-3 (4-4) sinnum = 38-41-43-45 (47-51) lykkjur. Þegar skálmin mælist 13-14-17-20 (25-34) cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 6-7-5-7 (9-9) lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-52 (56-60) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 5 cm. Setjið lykkjur frá hinni skálminni á sokkaprjóna 4 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma (þ.e.a.s. lykkjur sem felldar voru af mitt að aftan eru saumaðar við lykkjur sem felldar voru af mitt að framan). Saumið tölur í axlabönd. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goodtimesoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.