DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dream Plan Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð 0 – 4 ára.

DROPS Baby 45-1
DROPS Design: Mynstur me-084-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200 (200-250) g litur 47, salvíugrænn

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 5-6-6-6-(6-6) st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni / 42 umferðir á hæð með garðarpjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-5 (5-5) næstu hnappagötum með ca 4-4-4½-5 (5½-6½) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 65-73-73-79 (83-85) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stroffið mælist 2 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Setjið 1 prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni og 1 lykkju í sléttprjóni (kantur að framan), 7-9-9-11 (11-11) lykkjur í garðaprjóni (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9-9 (11-11) lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-21-21-23 (23-25) lykkjur í garðaprjóni (bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9-9 (11-11) lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7-9-9-11 (11-11) lykkjur í garðaprjóni (framstykki) og prjónið 1 lykkju sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan).
Nú hafa verið sett 4 prjónamerki í stykkið og aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki fyrir laskalínu (alls 8 lykkjur fleiri).

Prjónið áfram í þessu mynstri sem búið er að setja niður, uppslátturinn er prjónaður í garðaprjóni á framstykkjum og bakstykki og í sléttprjóni á ermum – uppslátturinn á ekki að prjónast snúinn, það eiga að myndast göt.
Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4-6-6-6 (8-9) sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) 7-7-8-9 (9-9) sinnum.
Nú hafa verið auknar út alls 11-13-14-15 (17-18) sinnum og það eru 153-177-185-199 (219-229) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓFNESTUNA!
Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14) cm frá prjónamerki í hálsmáli, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni og 1 lykkju í sléttprjóni (kantur að framan), 19-23-24-27 (29-30) lykkjur í garðaprjóni, setjið næstu 31-35-37-39 (45-47) lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8 (6-6) lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 41-49-51-55 (59-63) lykkjur í garðaprjóni, setjið næstu 31-35-37-39 (45-47) lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8 (6-6) nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 19-23-24-27 (29-30) lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 103-119-127-137 (141-147) lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstur sem búið er að setja niður (lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum eru prjónaðar í garðaprjóni).
Þegar stykkið mælist 11-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 8-6-12-10 (16-20) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið yfir ystu 6 lykkjurnar í hvorri hlið) = 111-125-139-147 (157-167) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 2-3-3-3 (3-3) cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 31-35-37-39 (45-47) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af þeim 6-6-8-8 (6-6) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 37-41-45-47 (51-53) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja og byrjið umferð við prjónamerki (mitt undir ermi).
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2½ (3-4) cm millibili alls 2-3-5-5 (5-5) sinnum = 33-35-35-37 (41-43) lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 9-11-12-14 (18-22) cm frá skiptingu, aukið út um 5-5-5-5 (3-5) lykkjur jafnt yfir = 38-40-40-42 (44-48) lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-3-3 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 11-13-15-17 (21-25) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Dream Plan Cardigan

JoWheelerknits

Dream Plan Cardigan

Magdalena, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Helle Clausen wrote:

Is it possible to have the recipe in Danish?

24.04.2024 - 12:45

DROPS Design answered:

Sure Mrs Clausen, you can always edit language by clicking on the scroll down menu next to the printer icon, you will then get the pattern in Danish. Happy knitting!

24.04.2024 - 13:02

country flag Hanne Hassan wrote:

Hej drops\r\nEr ved bærestykke efter hver 2 pind 6 gange \r\nStår der (derefter på hver 4 pind (hver anden \r\nPind 7 gange

17.04.2024 - 23:32

country flag Rieber wrote:

Gibt es auch eine Anleitung für die Hose?

21.03.2024 - 09:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rieber, hier finden Sie die Anleitung für die Hose. Viel Spaß beim Stricken!

21.03.2024 - 15:49

country flag Bääbi wrote:

Ich würde gerne Dream Plan Cadigan Strickanleitung in der Garngruppe A stricken. wie kann ich das umrechnen.

07.02.2024 - 14:23

DROPS Design answered:

Liebe Bääbi, hier finder Sie unsere Jacke für Garngruppe A, sicher kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

08.02.2024 - 08:24

country flag Anke wrote:

Welchen Durchmesser sollen die Knöpfe haben? Ich konnte den Originalknopf nicht mehr finden. Danke.

23.11.2023 - 12:37

DROPS Design answered:

Liebe Anke, diese Knöpfe sind 15 mm - siehe hier. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2023 - 15:40

country flag Marilyn Davies wrote:

I'm trying to download free pattern but it's not coming through,what am I doing wrong??

03.11.2023 - 09:23

DROPS Design answered:

Hi Marilyn Davies! Sometimes internet connection interferes downloading. Try again later. Instead of printing you can save it as PDF document. Happy knitting!

03.11.2023 - 12:56

country flag Anni Larsen wrote:

Hvorfor skal der tages 16 m ud ved str 2 når du næsten er færdig og nået til rib

22.06.2023 - 13:45

DROPS Design answered:

Hej Anni, det gør vi for at ribben ikke skal trække arbejdet for meget sammen, i og med vi går et pindenummer ned til ribben :)

22.06.2023 - 13:49

country flag Hélène Gervais wrote:

Si je comprends bien ce modèle ne se tricotte pas en rond malgré les aiguilles ciculaires, il y aura donc des coutures pour assembler le gilet

13.05.2023 - 18:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gervais, il n'y aura pas de couture car on va tricoter l'empiècement de haut en bas, puis diviser pour mettre les manches en attente et terminer le dos et les devants jusqu'en bas du gilet, et on tricote ensuite les manches séparément en rond. Bon tricot!

15.05.2023 - 13:27

country flag Gunilla Holmgren Schmieg wrote:

Jag har klurat ut själv hur det menas.

03.04.2023 - 12:30

DROPS Design answered:

Toppen Gunilla :)

13.04.2023 - 10:58

country flag Gunilla Holmgren Schmieg wrote:

Tänkte sticka denna tröja storlek 1/3 månader. Är det verkligen rätt att det ska vara ojämt antal maskor? Det ska ju stickas 5 maskor i vardera kant i rätstickning plus 1 rätmaska i varje kant. Då har jag ju ojämt antal maskor när jag stickar resårstickning.

02.04.2023 - 16:04

DROPS Design answered:

Hej Gunilla, hvis du har ujævnt antal masker får du en vrang på hver side mod retmasken foran :)

13.04.2023 - 10:37