Reindeer Dance Sweater#reindeerdancesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, marglitu mynstri með hreindýrum. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-35 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að merkiþræði að miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-118-122-128-132 lykkjur með litnum marsipan í DROPS Daisy yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er stroffið prjónað eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkantinum. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt að aftan). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-34-38-40-44 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 142-146-152-160-168-176 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-4-4-5-5-6 cm frá prjónamerki mitt að framan, aukið út 42-46-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 184-192-200-208-224-232 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm frá prjónamerki, prjónið mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan – lesið LEIÐBEININGAR og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Prjónið A.1 alls 23-24-25-26-28-29 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út eins og útskýrt er að neðan: ÖR-1: Aukið út 40-48-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 224-240-248-256-280-288 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 32-40-40-48-48-56 lykkjur jafnt yfir = 256-280-288-304-328-344 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 24-32-32-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 280-312-320-344-368-392 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 16-16-24-24-24-32 lykkjur jafnt yfir = 296-328-344-368-392-424 lykkjur. ÖR-5: Aukið út 8-4-4-16-8-12 lykkjur jafnt yfir = 304-332-348-384-400-436 lykkjur. Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón með litnum marsipan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-51-53-58-62-69 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 92-102-106-116-124-138 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 46-51-53-58-62-69 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-236-256-280-308 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á stykki – mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn með litnum marsipan þar til stykkið mælist 29-29-30-30-30-30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 42-42-46-52-58-60 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 242-262-282-308-338-368 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Setjið 60-64-68-76-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum marsipan = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-3-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-4.-2½.-2½.-2. hverjum cm alls 5-6-9-12-13-14 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 40-38-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚTAUKNING = 70-72-74-76-78-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 46-44-44-42-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #reindeerdancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.