FRANÇOISE LELARGE skrifaði:
Bonjnour, Puis-je faire se modèle avec la laine alpaga + kid-silk merci
20.01.2024 - 11:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lelarge, vous pouvez car vous aurez le même échantillon en largeur, toutefois la texture sera différente, moins dense qu'en tricotant avec Merino Extra Fine (groupe B) et Kid-Silk. Faites un échantillon au préalable pour vérifier si la texture vous convient. Bon tricot!
22.01.2024 - 08:17
Maj-Britt Otto skrifaði:
Skal til at strikke Moonlit ocean, kan jeg bruge italiensk opslag istedet for pinde 5 og 3.5??
15.01.2024 - 08:19DROPS Design svaraði:
Hej Maj-Britt, lav en prøve først, så du ser om det fungerer :)
16.01.2024 - 13:56
Radhika Compton skrifaði:
Hi, I love this jumper! Can I make it with a yarn from Yarn Group C like Drops Air?
26.11.2023 - 21:15DROPS Design svaraði:
Dear Radhika, yes, you could use a group C yarn; check your gauge so that it's the same as in the pattern. If the gauge doesn't match you would need to recalculate the pattern. You can see more information in the following lessons: https://www.garnstudio.com/video.php?id=66&page=2&lang=es and https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=19. Happy knitting!
27.11.2023 - 00:09
FRANÇOISE LELARGE skrifaði:
Bonjour, Puis-je faire ce modèle avec 1 fils de la laine air. Merci . Bonne journée
15.11.2023 - 14:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lelarge, oui, à condition de choisir alors une laine du groupe de fils C pour obtenir la bonne tension, notez juste que la texture sera différente en raison de la différence de composition des laines. Bon tricot!
16.11.2023 - 09:17
Valerie Jégu skrifaði:
Très jolie modèle . Je voudrais le réaliser en merino vert mousse mais quelle couleur lui associer en kid-silk ?? Merci pour votre réponse Valérie
27.10.2023 - 14:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jégu, pour toute aide au choix d'une couleur, merci de bien vouloir contacter directement votre magasin, même par mail ou téléphone, ils sauront vous proposer les assortiments possibles. Bon Tricot!
28.10.2023 - 08:41
Erika skrifaði:
Lavender secret
06.08.2023 - 17:44
Elize skrifaði:
Lavender Dream
04.08.2023 - 17:30
Wilma skrifaði:
Lavender Night
03.08.2023 - 19:47
Isabelle R skrifaði:
Très joli pull ! le détail sur le raglan et sur les côtés est délicat.
03.08.2023 - 14:44
Moonlit Ocean#moonlitoceansweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Lykkjufjöldinn í A.1 er breytilegur á milli 7 og 6 lykkjur. Lykkjufjöldinn sem er gefinn upp í uppskrift byggist á því að það séu 7 lykkjur í A.1 LASKALÍNA: Aukið er út á undan / eftir A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (lykkja með prjónamerki), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-88-88-92-96 lykkjur með 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með fjórðu hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er mynstur prjónað og aukið er út þannig: Prjónið 9-11-11-11-13-13 lykkjur sléttprjón og aukið út 1-2-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar, A.1 (hálft bakstykki), 7 lykkjur sléttprjón og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir þessar (ermi), A.1, 19-21-23-23-25-27 lykkjur sléttprjón og aukið út 1-4-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar, A.1 (framstykki), 7 lykkjur sléttprjón og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir þessar (ermi), A.1, 10-10-12-12-12-14 lykkjur og aukið út 0-2-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar (hálft bakstykki). Það eru núna 88-98-98-102-106-110 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri A.1, jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA hvoru megin við hvert mynstur A.1 – lesið útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 15-16-18-20-21-22 sinnum. Aukið út fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið út svona 6-6-6-6-6-8 sinnum á framstykki / bakstykki (3-3-3-3-3-4 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 21-22-24-26-27-30 sinnum á framstykki / bakstykki og 18-19-21-23-24-26 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 244-262-278-298-310-334 lykkjur í umferð (á þeirri forsendu að það séu 7 lykkjur í A.1). Prjónið sléttprjón og A.1 án útaukninga þar til stykkið mælist ca 22-23-25-27-28-31 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 35-39-40-43-46-49 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 52-54-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), 70-77-81-87-91-99 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 52-54-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 35-38-41-44-45-50 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-168-180-192-204-220 lykkjur. Prjónið í hring í sléttprjóni og mynstri A.1 yfir 7 miðju lykkjur sem fitjaðar voru upp í hliðum undir ermum. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-19-19-20-19 cm frá skiptingu. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið þannig að það myndast klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 77-84-90-96-102-110 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 77-84-90-96-102-110 lykkjur á þráð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 32-37-37-41-43-47 lykkjur jafnt yfir = 109-121-127-137-145-157 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 3,5 og prjónið á sama hátt. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 52-54-58-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 59-61-67-71-75-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-9-9-11-11 lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-4-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-10-12-13-14-15 sinnum = 41-41-43-45-47-49 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32-31-30-29-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 19-19-19-19-19-21 lykkjur jafnt yfir = 60-60-62-64-66-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonlitoceansweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.