Andriette Van Der Merwe skrifaði:
I just love your patterns. They do not spoon feed and may be difficult for some knitters. But they are just too beautiful
02.04.2025 - 23:00
Nati Retana skrifaði:
Hola, el año pasado realicé este jersey navideño para mis nietos. Mi pregunta es si este año va a haber un nuevo patrón, gracias.
30.09.2024 - 11:59DROPS Design svaraði:
Hola Nati, los patrones de la colección de Navidad de 2024 serán publicados en noviembre, a tiempo para poder ser hechos para las Navidades. Siempre intentamos tener una variedad de patrones en la colección para tener algo para cada uno.
06.10.2024 - 13:17
María skrifaði:
Como bloqueas el jersey? O sólo le dais un poco de vapor?
23.11.2023 - 23:26DROPS Design svaraði:
Hola María, solo le damos un poco de vapor, con un trapo encima de la prenda para que no haga contacto directo.
26.11.2023 - 18:35
Nati Retana skrifaði:
Buenos días, puedo planchar el jersey? Quería mandar una foto de mi proyecto, pero no puedo o no sé cómo hacerlo.
13.11.2023 - 10:54DROPS Design svaraði:
Hola Nati se puede planchar a temperatura baja, con un trapo encima de la prenda para que no haga contacto directo.
26.11.2023 - 18:36
Marina Pitzer skrifaði:
Was ist der Unterschied zu dem Kinderpullover 47-14?
11.11.2023 - 11:37DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Pitzer, die Abnahmen für die Ärmel sind bei beiden Modellen unterschiedlich. Viel Spaß beim stricken!
13.11.2023 - 07:35
Helmi skrifaði:
Waarom na het lijfje meerdere voor je aan de boord begint, brei je eerst de boord meerder je meestal voor het lijfje
09.11.2023 - 14:47DROPS Design svaraði:
Dag Helmi,
Dat klopt, normaal wordt er vaak geminderd om een extra samentrekkend effect te creëren bij de boord. Nu wordt er juist gemeerderd om te voorkomen dat de boord het werk samentrekt, dus zodat de boord meer recht doorloopt.
15.11.2023 - 14:16
Markéta skrifaði:
Já asi úplně nerozumím přidávání ve schématu A1. Pokud přidám oka, sekvence se mi rozšíří, ale ve schématu je stále zakreslena sekvence pouze v šířce 8 oček. Kde tedy jsou ta přidaná oka, která teď nutně musí být součástí té sekvence? Podle fotografií jsem se odpovědi taky nedobrala. Děkuji.
25.10.2023 - 10:41DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Markéto, přidaná oka jsou navíc, "schovají se" v základní barvě mezi houbami a na bocích, aby vzor nenarušila. Hodně zdaru! Hana
20.11.2023 - 15:55
Mushroom Season Sweater#mushroomseasonsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og marglitu mynstri með sveppum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 47-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað í hring, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Byrjið frá réttu og prjónið 9-10-11-12-13-14-15 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði í byrjun umferðar (mitt að aftan), snúið, herðið á þræði og prjónið 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 27-30-33-36-39-42-45 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-40-44-48-52-56-60 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 45-50-55-60-65-70-75 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 54-60-66-72-78-84-90 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að merkiþræði að miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-86-88-90-94-96 lykkjur með litnum ljós beige í DROPS Karisma yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (í minnstu stærðunum er hægt að setja lykkjurnar á sokkaprjóna 3 ef stuttur hringprjónn 3 er of langur). Uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 7 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er stroffið prjónað eins og áður JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkantinum. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-30-32-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 104-110-114-118-122-126-130 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar 2 umferðir eru eftir þar til berustykkið mælist 3-3-4-4-5-5-6 cm frá prjónamerki, aukið út 24-26-30-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 128-136-144-152-160-168-176 lykkjur. Eftir þessar 2 umferðir er prjónað mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan – lesið LEIÐBEININGAR og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Prjónið A.1 alls 16-17-18-19-20-21-22 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út eins og útskýrt er að neðan: ÖR-1: Aukið út 32-32-32-40-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 160-168-176-192-200-208-224 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 32-32-32-32-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 192-200-208-224-240-248-264 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 16-16-16-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 208-216-224-240-256-264-280 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 0-4-8-4-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 208-220-232-244-256-268-280 lykkjur. Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 31-33-35-37-39-41-43 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-74-78-82-86 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 31-33-35-37-39-41-43 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-148-156-164-172-180-188 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hlið á stykkinu – mitt í 8 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi. Klippið þráðinn og byrjið umferð við prjónamerki, eða prjónið fram að prjónamerki með litnum ljós beige (umferðin byrjar hér). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós beige. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26-27 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-14-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 152-162-170-180-188-198-208 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl. ERMI: Setjið 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum ljós beige = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8 lykkjurnar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-3-4-4-4-4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3½.-4.-4½.-5.-6.-7. hverjum cm alls 6 sinnum = 38-40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 18-22-26-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-54-56 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mushroomseasonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.