DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Mushroom Season Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, marglitu mynstri með sveppum og berjum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 245-11
DROPS Design: Mynstur u-969
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-750-850 g litur 85, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 45, ljós ólífa
50-50-50-50-50-50 g litur 48, vínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 55, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 87, mosagrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN:
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun.
Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið.
Snúið herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að merkiþræði að miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 110-114-118-122-128-132 lykkjur með litnum ljós beige í DROPS Karisma yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4,5 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 4,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er stroffið prjónað eins og áður JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkantinum. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-28-30-32-36-40 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 136-142-148-154-164-172 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar 2 umferðir eru eftir þar til berustykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm frá prjónamerki, aukið út 40-42-44-46-52-52 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 176-184-192-200-216-224 lykkjur. Eftir þessar 2 umferðir er prjónað mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan – lesið LEIÐBEININGAR og MYNSTUR í útskýringu að ofan.

A.1:
Prjónið A.1 alls 22-23-24-25-27-28 sinnum hringinn á berustykki.
JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út eins og útskýrt er að neðan:
ÖR-1: Aukið út 40-48-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 216-232-240-248-272-280 lykkjur.
ÖR-2: Aukið út 32-40-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir = 248-272-280-288-320-328 lykkjur.
ÖR-3: Aukið út 24-24-32-32-32-40 lykkjur jafnt yfir = 272-296-312-320-352-368 lykkjur.
ÖR-4: Aukið út 16-16-24-24-24-32 lykkjur jafnt yfir = 288-312-336-344-376-400 lykkjur.
ÖR-5: Aukið út 4-4-12-4-4-12 lykkjur jafnt yfir = 292-316-348-348-380-412 lykkjur.

Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-29 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-48-52-53-59-65 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 58-62-70-68-72-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-16-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 88-96-104-106-118-130 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 58-62-70-68-72-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-16-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 44-48-52-53-59-65 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-208-224-244-268-292 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á stykki – mitt í 8-8-8-16-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Það á að nota merkiþráðinn þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós beige þar til stykkið mælist 22-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 96-104-112-122-134-146 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 25-27-29-33-35-39 lykkjur jafnt yfir = 121-131-141-155-169-185 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

FRAMSTYKKI:
= 96-104-112-122-134-146 lykkjur. Prjónið á sama hátt og á bakstykki.

ERMI:
Setjið 58-62-70-68-72-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-16-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum ljós beige = 66-70-78-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-8-8-16-16-16 lykkjur.
Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 5½.-4½.-3.-2½.-2.-2. hverjum cm alls 6-7-10-12-13-14 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 36-34-34-33-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-22-24-24-26 lykkjur jafnt yfir = 74-78-80-84-86-90 lykkjur.
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-42-42-41-40-38 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermin á sama hátt.

Mynstur

symbols = ljós beige
symbols = ljós brúnn
symbols = vínrauður
symbols = mosagrænn
symbols = ljós ólífa
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Mushroom Season Sweater

Créastyle Maud, Belgium

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Siiri Buck skrifaði:

Hallo, was passiert wenn die Arbeit schon 23 cm bei Größe M misst bevor das Muster A1 zu Ende gestrickt ist? Danke für ihre Antwort.

28.08.2024 - 10:31

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Buck, dann sollen Sie die Zunahmen früher stricken, damit alle Zunahmen fertig sind bevor Sie die Passe teilen. Viel Spaß beim Stricken!

29.08.2024 - 09:29

country flag Tina Clausen skrifaði:

Hvordan skal udtagningsmaskerne indgå i mønster? De er almindeligvis tegnet ind i diagrammerne, så der han ses om næste mønster skal placeres i forhold til det foregående. På forhånd tak for hjælpen

21.03.2024 - 18:49

DROPS Design svaraði:

Hej Tina, jo du strikker over alle masker i diagrammet, der tages ud hvor der ikke er mønster, og udtagningerne stemmer med at gå op i mønster rapporten :)

03.04.2024 - 12:07

country flag MAGNIEN skrifaði:

Bonjour, quand je prends un nouvelle pelote les mailles ne sont pas belles. Que faut-il faire ? Cordialement

13.02.2024 - 17:01

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Magnien, peut-être que cette vidéo peut vous aider? N'hésitez pas à contacter votre magasin, vous y recevrez d'autres astuces / conseils, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

14.02.2024 - 07:51

country flag Joanna skrifaði:

Super

25.12.2023 - 12:52

country flag Maria skrifaði:

Jak wyliczyć ilość potrzebnej włóczki

25.11.2023 - 14:38

DROPS Design svaraði:

Witaj Mario, potrzebna ilość włóczki dla podanych rozmiarów jest określona we wzorze. Jeśli nie wiesz jaki rozmiar wybrać, zobacz TUTAJ. Pozdrawiamy!

27.11.2023 - 08:14