Liesanne skrifaði:
Ik ben er al uit
18.01.2024 - 18:12
Liesanne skrifaði:
Brei recht de volgende markeerdraad (bovenkant van de voet). Herhaal van *-* maar brei de nieuwe steek en de volgende steek gedraaid recht samen, brei van *-* tot u alle de overgangen heeft gebreid (tot de andere kant van de hiel), brei recht tot midden onder de voet (markeerdraad). Wat word hier bedoeld met alle overgangen breien? Gewoon alle steken breien over de voet tot aan de andere kant van de hiel? En dan naald 2 gewoon recht over alle steken?
18.01.2024 - 17:49DROPS Design svaraði:
Dag Liesanne,
Op elke plek waar het werk gekeerd is (voor het maken van de hiel), is een overgang ontstaan en als je die normaal door breit zullen er gaatjes/hiaten ontstaan. Dit kun je oplossen door de draad tussen twee steken op te nemen en deze (gedraaid) samen te breien met de volgende steek. Lees het patroon goed om te kijken of je de steken gedraaid moet breien of niet.
21.01.2024 - 12:14
Sam Lowrie skrifaði:
The pattern photo only includes the pictures of the socks, not the pattern. Same situation at 244-44. Thanks!
05.10.2023 - 18:04DROPS Design svaraði:
Hi Sam, The pattern instructions are to the right and below the photo when you open the page. Happy crafting!
06.10.2023 - 06:42
Spooky Evening Socks#spookyeveningsocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað frá tá og upp í marglitu mynstri með köttum og fleyghæl. Stærð 35-43. Þema: Halloween.
DROPS 244-45 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: * Prjónið 2 umferðir í litnum svartur, 1 umferð í litnum kornblár *, prjónið frá *-* þar til stykkið mælist 6-6-7 cm frá uppfitjunarkanti. Síðan er prjónað áfram í litnum svartur. ÚTAUKNING (á við um tá): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hitt prjónamerkið = 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá tá og upp. TÁ: Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum svartur í DROPS Karisma. Skiptið lykkjum niður með 3 lykkjur á hverjum prjóni. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið síðan 1 prjónamerki eftir fyrstu 3 lykkjum í umferð og 1 prjónamerki á undan síðustu 3 lykkjum. Það eru 6 lykkjur á milli prjónamerkja og umferðin byrjar mitt undir sokknum. Prjónið sléttprjón og RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Jafnframt í fyrstu umferð er aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 2-3-3 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum = 44-48-52 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 5-5-6 cm frá uppfitjunarkanti. Táin er núna tilbúin. Prjónið nú fót eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FÓTUR: Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16-17½-18½ cm frá uppfitjunarkanti (það eru eftir ca 6-6½-7½ cm að loka máli. Nú er prjónaður fleyghæll eins og útskýrt er að neðan. FLEYGHÆLL: Byrjun á umferðinni er mitt undir fæti – setjið 1 prjónamerki mitt undir fótinn. Setjið síðan 1 merkiþráð í hvora hlið, þannig að það eru 14-16-16 lykkjur ofan á fæti og 30-32-36 lykkjur undir fæti. Látið prjónamerkið og merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Nú er stykkið prjónað fram og til baka með stuttum umferðum og í litnum svartur, prjónað er yfir 1 lykkju færri í hverri umferð þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið fram að 1. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið fram að 2. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan þar sem snúið var við í stykkinu í fyrri umferð frá réttu, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á undan þar sem snúið var við í stykkinu í fyrri umferð frá röngu, snúið stykkinu. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til 9-10-11 lykkjur eru eftir sem ekki hefur verið prjónað yfir í annarri hliðinni og 8-9-10 lykkjur í hinni hliðinni á stykki, það eru 13-13-15 lykkjur mitt í umferð – síðasta umferð var prjónuð frá röngu, snúið stykkinu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið sléttprjón að prjónamerki mitt undir fæti. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og prjónaðar eru 2 umferðir hringinn yfir allar lykkjurnar þannig: UMFERÐ 1: Til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni á milli lykkja, prjónið þessa umferð þannig: Prjónið sléttprjón að þeim stað þar sem stykkinu var snúið í fyrri umferð frá réttu, * notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli lykkja á hægri og vinstri prjóni (1 ný lykkja), prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til prjónað hefur verið fram að 1. merkiþræði (önnur hlið á hæl). Prjónið sléttprjón fram að 2. merkiþræði (ofan á fæti). Nú á að endurtaka frá *-*, en prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju snúið slétt saman, prjónið frá *-* þar til prjónað hefur verið yfir alla staðina þar sem stykkinu var snúið (hin hlið á hæl) og prjónið sléttprjón að miðju undir fæti (prjónamerki). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Færið merkiþræðina þannig að þeir sitji hvoru megin við miðju 12-12-14 lykkjur mitt undir fæti. Nú er stykkið prjónað fram og til baka með stuttum umferðum, prjónað er yfir 1 lykkju fleiri í hverri umferð þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón fram að 1. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið fram að 2. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið sléttprjón að þeim stað þar sem stykkinu var snúið í fyrri umferð frá réttu, * notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli lykkja á hægri og vinstri prjóni (1 ný lykkja), prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju slétt saman, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið að þeim stað þar sem stykkinu var snúið í fyrri umferð frá röngu, * notið vinstri prjón og takið upp þráðinn á milli lykkja á hægri og vinstri prjóni (1 ný lykkja), prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju snúið brugðið saman, snúið stykkinu. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþráðum í hvorri hlið – síðasta umferð var prjónuð frá röngu, snúið stykkinu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur – jafnframt er hælnum lokað á sama hátt og áður. Setjið 1 prjónamerki í stykkið og prjónið stroff / legg eins og útskýrt er að neðan. Héðan er nú stykkið mælt! STROFF – LEGGUR: = 44-48-52 lykkjur. Byrjun á umferð er mitt aftan á hæl. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum svartur þar til stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið út 11-7-14 lykkjur jafnt yfir = 55-55-66 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 alls 5-5-6 sinnum í kringum stroff / legg. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið með litnum kornblár. Prjónið þar til stykkið mælist 8 cm frá prjónamerki (passið uppá að það séu minnst 3 umferðir í litnum kornblár á eftir síðustu svörtu lykkjunni í mynsturteikningu). Prjónið 1 umferð sléttprjón og jafnið lykkjufjöldann til þannig að það verða 52-56-58 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Brjótið tánna þannig að það verða 6 lykkjur ofan á fæti og 6 lykkjur undir fæti. Saumið uppfitjunarkantinn saman, notið e.t.v. lykkjuspor og festið þráðinn vel. ÚTSAUMUR: Notið afgang af litnum gulur, saumið út 2 smá spor með flatsaumi fyrir augu á hverjum ketti – sjá mynsturteikningu B |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spookyeveningsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.