Ria Edam-Dekker skrifaði:
Kan dit vest ook in een kleur (uni) gebreid worden, of moet ik dan de hele handleiding eerst herschrijven ?
15.10.2023 - 18:45DROPS Design svaraði:
Dag Ria,
Je kunt hem inderdaad gewoon met 1 kleur breien. Je vervangt dan alle kleuren in het telpatroon door 1 kleur en je gebruikt het telpatroon dan eigenlijk alleen voor de meerderingen.
18.10.2023 - 19:01
Iris skrifaði:
Gefällt mir
06.08.2023 - 14:15
Flocaeymaex skrifaði:
Cherubine
05.08.2023 - 16:55
Something About Holly Cardigan#somethingabouthollycardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-18 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8-9-8-8-8 cm millibili. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi lykkjum jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 148 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 8,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-112-112-116-120-124 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air í litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 3 cm. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Haldið áfram með stroff. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingunum, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í byrjun á öllum brugðnu einingunum = 126-136-136-141-146-151 lykkjur. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Þegar stykkið mælist 2½ cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingunum, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lokin á öllum brugðnu einingunum = 148-160-160-166-172-178 lykkjur. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið), kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður. Haldið áfram þar til stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki að framan, endið með umferð frá röngu. Stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm frá uppfitjunarkanti. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt), 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út þannig: ÖR 1: Aukið út 15-15-19-25-27-29 lykkjur jafnt yfir = 163-175-179-191-199-207 lykkjur í umferð. ÖR 2: Aukið út 16-16-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 179-191-199-215-223-235 lykkjur í umferð. ÖR 3: Aukið út 16-20-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 195-211-219-239-247-263 lykkjur í umferð. ÖR 4: Aukið út 16-20-20-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 211-231-239-263-275-291 lykkjur í umferð. ÖR 5: Aukið út 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 231-251-263-287-303-319 lykkjur í umferð. ÖR 6: Aukið út 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 251-271-287-311-331-347 lykkjur í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð með litnum hveiti þar sem aukið er út um 19-19-23-27-27-31 lykkjur jafnt yfir = 270-290-310-338-358-378 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum hveiti. Þegar stykkið mælist 25-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 45-48-51-55-59-63 lykkjur (framstykki) setjið næstu 52-56-60-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 76-82-88-96-104-112 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 52-56-60-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 45-48-51-55-59-63 lykkjur (framstykki). Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-190-206-222-242-262 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-22-22-22-22 cm. Það eru eftir ca 8 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-34-38-42-46-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 212-224-244-264-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Prjónið 2 umferðir með litnum crimson rauður, fellið af aðeins laust frá réttu. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Setjið 52-56-60-66-68-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferðina við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-2½-2-2 cm millibili alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 50-52-54-54-58-60 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 32-31-30-28-27-25 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-10-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Prjónið 2 umferðir stroff með litnum crimson rauður, fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 40-39-38-36-35-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #somethingabouthollycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.