Annichen skrifaði:
Når jeg skal strikke denne i str M så virker det ikke som oppskriften stemmer. Jeg begynner med 80 masker. Så står det: 6 masker til hver av armene, 22 til forstykket og 22 til bakstykket. Det blir til sammen 56 masker og ikke 80.
20.01.2025 - 22:24DROPS Design svaraði:
Hej Annichen. Du må telle maskerna i A.1 (= 6 m) också. A.1 stickas 4 gånger på pinnen. Mvh DROPS Design
21.01.2025 - 11:57
Annichen skrifaði:
Hei. Det virker som det er en feil i oppskriften på denne genseren. Jeg har 80 masker når jeg har strikket halsen. Og det skal bli 96 masker etter første økning. Men det går ikke opp når jeg følger oppskriften. Har prøvd alle mulige løsninger men ingenting går opp.
18.01.2025 - 17:03DROPS Design svaraði:
Hei Annichen, Du øker i rette partiene på omgangen: 1 maske på erme + 7 masker på forstykke + 1 maske på erme + 7 masker på bakstykke = 16 økte masker. 80 + 16 = 96 masker på omgangen. God fornøyelse!
20.01.2025 - 08:16
Kasia skrifaði:
Czy wiadomo, jaki rozmiar swetra nosi modelka na zdjęciach?
27.12.2024 - 21:54DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu, modelka na zdjęciu nosi rozmiar S lub M. Pozdrawiamy!
28.12.2024 - 17:12
Minna Korpela skrifaði:
Valitettavasti tämä ohje on liian epäselvä heti kauluksen kutomisen jälkeen.
26.11.2024 - 12:44
Nicola skrifaði:
Hallo, Drops-Team, leider komme ich nicht so richtig mit den Raglanzunahmen zurecht. Wenn ich A1 stricke und vorher und jeweils danach einen Umschlag mache, dann nehme ich ja schon in jeder Reihe 8 M zu. wenn ich das 23 x wiederhole dann kann es doch nicht bei den jeweils 7 M f.d. Ärmel und 29 M f. Vorder- und Rückenteil bleiben. Ich kriege so gar keine Raglan Linie hin. Ich habe da irgendwie einen Knoten im Kopf. Hilfe :-)
17.11.2024 - 12:59DROPS Design svaraði:
Liebe Nicola, man soll am Anfang 8 Maschen zunehmen, dh jeweils beidseitig von den 6 Maschen A.1 bei jedem Übergang zwischen Rumpf und Ärmel, so wird die Maschenanzahl von jedem Teil (Vorder, Rückenteil und Ärmel) jeweils von 2 Maschen zunehmen. Wenn Sie 23 Mal (in L) insgesamt zugenommen haben, nehmen Sie nur noch 1 Mal für Vorder und Rückenteil (nicht für die Ärmel), dh nach A.1 und am Anfang vom Vorder / Rückenteil und vor nächstem A.1 am Ende Vorder/Rückenteil = nur 4 Maschen. Viel Spaß beim Stricken !
18.11.2024 - 08:15
Nicola skrifaði:
Hallo, lies Drops-Team, mir ist nicht ganz klar, wo ich bei den Raglanzunahmen die Maschenmarkierer für das VT, RT und die Ärmel setze. Leider ist in der Anleitung dazu nichts vermerkt
13.11.2024 - 21:30DROPS Design svaraði:
Lieber Nicola, es sind hier keine Markierung eingesetzt aber gerne können Sie einige einsetzen, so stricken Sie: A.1 (Raglanmaschen), Ärmel, A.1, Vorderteil, A.1, Ärmel, A.1, Rückenteil - bei der letzen Runde der Halsblende soll man über die beiden Ärmel sowie Vorder und Rückenteil regelmäßig verteilt zunehmen. Dann nehmen Sie für die Passe /Raglan vor/nach A.1 zu. Viel Spaß beim Stricken!
14.11.2024 - 09:56
Nina skrifaði:
Hallo, nach dem Kragen soll man in der ersten rund rechts stricken und dabei aufnehemen alles klar aber wie geht das wenn ich dann 29+29+7+7 Maschen habe da komme ich nicht auf die angegebenenen96 Maschen!
29.10.2024 - 18:12DROPS Design svaraði:
Liebe Nina, zählen Sie die 6 Maschen von jedem A.1 dazu, dh: 6+7+6+29+6+7+6+29=96 Maschen. Viel SpaB beim Stricken!
30.10.2024 - 07:55
Tanja skrifaði:
Hej! Hur stor blir en medium?
15.10.2024 - 09:18DROPS Design svaraði:
Hej Tanja, du finder målene til blusen i måleskitsen nederst i opskriften :)
16.10.2024 - 12:11
Love skrifaði:
Hej! Jag skulle vilja göra denna men med garnet Brushed Alpaca Silk. Behöver jag använda dubbel tråd då eller bara en? Såg att flera mönster som använder det garnet använder dubbel tråd nämligen.
07.10.2024 - 09:43DROPS Design svaraði:
Hej Love. Denna kan du sticka med enkel tråd Brushed Alpaca Silk (tillhör garngrupp C). Se bara till att få den stickfasthet som uppges i mönstret och att beräkna riktig garnåtgång (använd gärna vår garn-konverterare).
08.10.2024 - 14:25
Yolanda skrifaði:
He trabajado la labor hasta los 28 cm y pone dividir cuerpo y mangas, pero no entiendo: 1º pone trabajar 3 p. de A1 ( 2 revés y 1 derecho) separar las mangas, aumentar bajo la manga 11 puntos (11x2=22) trasero y derecho 107 (107x2= 214 y pone un total de 236 si sumo 3 pts de A1 serían 239 y ¿solo en un lado, no se hace A1? 2º En el cuerpo pone que cuando mida 26cm desde la división hacer 1 drcho 2 revés ¿no entiendo cuando hay que hacerlo?
25.09.2024 - 13:33DROPS Design svaraði:
Hola Yolanda, empiezas con los últimos 3 puntos de A.1 en la parte de la espalda, antes de la manga, después pasas los siguientes 67 puntos a un hilo, montas 11 puntos para la sisa, trabajas los 107 puntos como antes (con A.1 y punto jersey), pasas los siguientes 67 puntos a 1 hilo, montas 11 para la sisa y trabajas los 104 puntos restantes de la espalda como antes. 3+11+107+11+104 = 236 puntos (tienes los 107 de la espalda separados en 3 y 104). Después trabajas derecho sobre derecho y revés sobre revés sobre los puntos de A.1 y punto jersey sobre el resto de puntos durante 26 cm, donde empezarás el elástico del final del cuerpo.
29.09.2024 - 19:14
Winter Iris Sweater#winteririssweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og háum, tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 243-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð þannig: Á UNDAN A.1: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (lykkja með prjónamerki er miðjulykkja á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-80-80-88-88-96 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroffprjón (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) hringinn í 16 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli tvöfalt og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, er næsta umferð prjónuð þannig: A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 6 lykkjur og aukið út um 1 lykkjur (= 7 lykkjur fyrir ermi), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 18-22-22-26-26-30 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-7-7-7-9-11 lykkjur jafnt yfir (= 23-29-29-33-35-41 lykkjur fyrir framstykki), A.1, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 6 lykkjur og aukið út um 1 lykkju (= 7 lykkjur fyrir ermi), A.1, prjónið slétt yfir síðustu 18-22-22-26-26-30 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-7-7-7-9-11 lykkjur (= 23-29-29-33-35-41 lykkjur fyrir bakstykki) = 84-96-96-104-108-120 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, jafnframt því sem prjónað er þannig: A.1, sléttprjón yfir næstu 7 lykkjur (ermi), A.1, sléttprjón yfir næstu 23-29-29-33-35-41 lykkjur (framstykki), A.1, sléttprjón yfir næstu 7 lykkjur (ermi), A.1, sléttprjón yfir síðustu 23-29-29-33-35-41 lykkjur (bakstykki). Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-23-24-25-27 sinnum = 228-256-280-296-308-336 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útaukning á ermum er nú lokið. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki 2-1-1-1-2-3 sinnum til viðbótar (= 18-20-23-24-25-27 lykkjur fleiri í hvorri hlið á ermum og 20-21-24-25-27-30 lykkjur fleiri í hvorri hlið á framstykki og bakstykki) = 236-260-284-300-316-348 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.1, án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3 lykkjur í mynstri A.1 eins og áður (tilheyrir bakstykki), setjið næstu 49-53-59-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 69-77-83-89-95-107 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 49-53-59-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 66-74-80-86-92-104 lykkjur eins og áður (afgangur af bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-212-236 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru frá A.1 (nýjar lykkjur í hlið undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 24-26-26-26-26-26 cm frá skiptingu, prjónið þannig: * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt (lykkjur frá A.1), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur), prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið (lykkjur frá A.1), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-71-77-83-89-101 lykkjur og aukið jafnframt út um 11-11-13-15-17-17 lykkjur jafnt yfir (= 74-82-90-98-106-118 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 184-200-216-240-256-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-53-59-61-63-67 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum = 58-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju af þeim nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-3½-2½-2½-2 cm millibili alls 5-6-8-9-9-10 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 33-32-31-29-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winteririssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.