Kirsten skrifaði:
Strikkes det en midtmaske mellom de to kastene i raglandøkningen, eller to kast etter hverandre?
04.11.2023 - 23:07DROPS Design svaraði:
Hei Kirsten, Du finner en beskrivelse av raglanøkningene på toppen av oppskriften, under Forklaringer. Du skal øke 1 maske både før og etter 2 rette masker i hver raglanlinje. God fornøyelse!
06.11.2023 - 06:42
Birgitta skrifaði:
Efter att man delat på ärm och bål står det att man ska sticka 18cm (stl M) slätstickning från delning innan ökning + resår. Tröjan når ju knappt ens midjan då ? Hur är det tänkt att man ska mäta?
10.10.2023 - 21:27DROPS Design svaraði:
Hej Birgitta, vi skriver att arbetet mäter 18 cm från delningen, här menar vi delningen till fram- och bakstycke och ärmar. Se alla måtten i måttskissen nederst i mönstret :)
17.10.2023 - 13:29
Apolena skrifaði:
Dobrý den, myslím, že máte v českém překladu návodu chybu. Pletla jsem svetr přesně podle návodu a v polovině části SEDLO jsem zjistila, že je moje SEDLO je mnohem delší, než by mělo být podle nákresu. Porovnala jsem tedy český návod s norským původním návodem a myslím, že do českého návodu je v části SEDLO chybně přidaná věta \\\"Pleteninu převedeme na kruhovou jehlici č.8.\\\" V norském originále se o převedení na jehlici č. 8 nepíše.
08.10.2023 - 09:47DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Apoleno, díky za upozornění - opraveno!
08.10.2023 - 22:02
Monique Van Simaey skrifaði:
Ik hou van de schitterende " drops" breimodellen maar vind het echter jammer dat de meeste truien top down gebreid worden . Hierdoor kan ik bijna geen gebruik maken van jullie modellen . Ik verkies steeds om een trui in apparte delen te breien zodat ik dan al breiend bepaalde delen kan aanpassen. Jullie patronen omrekenen vind ik een heel gedoe.
21.09.2023 - 23:03
Karina Haupt Larsen skrifaði:
Grøn node 🎼
05.08.2023 - 19:36
Green Hill Sweater#greenhillsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, sléttprjón og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 12 cm, er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að umferðin sé prjónuð). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, það eru 12-12-12-16-16-16 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). HÁLSMÁL: Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Byrjið mitt að aftan. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðru prjónamerkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Stuttar umferðir hafa núna verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út alls 3 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 112-112-112-128-128-128 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út fyrir laskalínu 3 sinnum = 136-136-136-152-152-152 lykkjur. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 18-22-26-26-30-30 sinnum á fram- og bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum). STÆRÐ S, M, og XXXL: Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermum er nú lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-4 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-33-37-41 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 252-272-292-308-332-348 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 24-26-29-29-33-36 cm, mælt mitt að aftan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 38-41-44-48-52-56 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-48-52-56 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-18-17-19-17-16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-264-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-58-58-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-64-68-70-76-78 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5.-3½.-2½.-2½.-2.-1½ cm alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 48-48-50-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls ca 36-35-33-32-29-27 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 42-41-39-38-35-33 frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenhillsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.