Sidse skrifaði:
Jeg er i gang med at strikke ærmerne. Jeg forstår ikke helt hvordan mønsteret skal startes ud fra opskriften. For maskeantallet går ikke op i 8 efter diagrammet A.2, og forstår ikke helt hvordan masken i midten hjælper.
14.05.2025 - 10:08DROPS Design svaraði:
Hej Sidse, maskerne vil ikke gå op under ærmet, så sørg for at mønsteret stemmer over de andre masker på selve ærmet :)
20.05.2025 - 14:42
Pim skrifaði:
Ik heb deze trui gebreid, met ander garen dan in het patroon beschreven ( lima en karisma ipv merino extra fijn). Om lengteverschil in de draad per bol te voorkomen, heb ik van beiden een extra bol gekocht. Echter, tot mijn ongenoegen houd ik 7 bollen van de hoofdkleur (bij mij lima) en 1 bol van de tweede kleur ( bij mij karisma) over. De bol karisma is de extra bol die ik besteld had, maar 7 x lima, 1 van mezelf, is erg veel en vervelend natuurlijk. Klopt het wel in het patroon?
19.04.2025 - 11:29
Maria skrifaði:
Hur kan jag ta reda på måtten på en tröja i stl xxl? Jag menar bröstvidd, längd och ärmlängd?
03.03.2025 - 20:18DROPS Design svaraði:
Hej Maria. Du hittar en måttskiss längst ner på mönstret där vi uppger mått på plagget i cm i alla storlekar. Mvh DROPS Design
05.03.2025 - 15:02
Karin skrifaði:
Hei Hvorfor får det med 400 g mer garn til denne modellen (str L) enn til Rejkjavik? Det er samme garngruppe og de ser jo ganske like ut?
11.02.2025 - 12:26DROPS Design svaraði:
Hej Karin, det er forskellige størrelser og det er forskellige garner :)
12.02.2025 - 15:11
Emilie skrifaði:
Jeg kjøpte egentlig inn til Reykjavik-genser men vurderer å strikke denne i stedet. Det er jo forskjellig garn men samme strikkefasthet og pinnestørrelse, og garnene har ca lik løpelengde. Jeg lurer på om det da virkelig kan stemme at det trengs så mye mer garn til denne enn til Reykjavik? Trenger jeg samme mengde i Lima? Dette er jo en annen oppskrift selvfølgelig, men det er ikke så stor forskjell på målene på genserne
14.02.2024 - 23:03DROPS Design svaraði:
Hej Emilie, det er 2 forskellige modeller, så du kan egentlig ikke sammenligne. Vælg den model og størrelse i måleskitsen som passer dig og så kan du vælge garnforbruget ud fra garngruppe B :)
22.02.2024 - 11:45
Marianne Ermesjø skrifaði:
Hei Bare lurer på hvorfor erm lengden er kortere for større størrelser? Jeg strikker L men min sønn har lange ermer sånn at jeg tenkte strikke dem som størrelse XL men lengden er kortere enn L.
06.02.2024 - 19:43DROPS Design svaraði:
Hei Marianne, Det er kortere mål i større størrelsene pga bredere skuldervidde og lengre bærestykke. Det er lurt å prøve genseren på før du begynner på ermetoppen. Da kan du strikke ermet til lengden som passer for sønnen din. God fornøyelse!
07.02.2024 - 06:38
Kristin skrifaði:
Hei, jeg er nybegynner og forstår ikke helt oppskriften. Jeg lurte på om dere har en instruksjonsvideo for hvordan øke ermet på Islender og samtidig få mønster gjevnt fordelt?
08.12.2023 - 12:56DROPS Design svaraði:
Hei Kristin. Vi har ingen instruksjonsvideo på økning under ermet i de forskjellige størrelsene i denne genseren. Om du f.eks strikker den minste str. skal du ha 51 masker etter vrangborden. Sett da en merketråd på begynnelsen av omgangen (midt under ermet) og 1. merke i den midterste masken (maske nr. 26). Du må da telle deg ut fra denne masken slik at du starter riktig i diagram A.2, se sort trekant i diagrammet. Og husk første og siste maske på omgangen strikkes alltid i fargen lys taupe. mvh DROPS Design
11.12.2023 - 08:42
Winter Twilight#wintertwilightsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu, íslensku mynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.1 er prjónað í stroffprjóni, A.2 er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuðu fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Að lokum eru prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-228-248-264-300-316 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós taupe í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í mynstri A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stroffið ca 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með litnum ljós taupe, jafnframt sem fækkað er um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 192-208-224-240-272-288 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð og 1 merkiþráð eftir 96-104-112-120-136-144 lykkjur (í hliðar á fram- og bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Byrjið 4-4-4-4-8-8 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, fellið af 8-8-8-8-16-16 lykkjur, prjónið þar til 4-4-4-4-8-8 lykkjur eru eftir á undan seinni merkiþræði, fellið af 8-8-8-8-16-16 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað áfram hvert fyrir sig. BAKSTYKKI: = 88-96-104-112-120-128 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur eins og áður. Þær 3 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í grunnlitnum, ljós taupe. Þegar stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm, fellið af miðju 30-32-34-38-40-42 lykkjur fyrir hálsmáli (stillið af að fellt sé af í umferð án mynsturs) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 28-31-34-36-39-42 lykkjur eftir á öxl. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm (stillið af að síðasta umferð sé án mynsturs). Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 88-96-104-112-120-128 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 54-56-57-59-60-62 cm. Nú eru miðju 24-26-28-32-30-28 lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli (stillið af að lykkjurnar sem eru settar á prjóninn séu án mynsturs) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-0-1-1-1-2 sinnum og 1 lykkju 2-4-2-2-4-4 sinnum = 28-31-34-36-39-42 lykkjur eftir á öxl. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm (stillið af að síðasta umferð sé án mynsturs eins og á bakstykki). Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum ljós taupe. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í mynstri A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stroffið ca 5 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með litnum ljós taupe jafnframt því sem fækkað er um 9-9-9-7-7-7 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 51-55-55-61-61-61 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar auka á út. Að auki er sett 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð. Lykkja með þessu prjónamerki á að passa með lykkju merktri í mynsturteikningu – teljið út frá þessari lykkju hvar mynstrið byrjar mitt undir ermi. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið A.2 (fyrsta og síðasta lykkja í umferð er alltaf prjónuð í litnum ljós taupe, þetta er gert til að fá fallega útaukningu undir ermi). Þegar ermin mælist 11-10-12-12-9-12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 18-18-20-20-21-23 sinnum = 87-91-95-101-103-107 lykkjur. Þegar ermin mælist 56-55-54-53-51-50 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá merkiþræði mitt undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið fram og til baka þar til ermin mælist ca 58-57-56-55-55-54 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-2-2-2-4-4 cm efst á ermi – stillið af að tvær síðustu umferðirnar séu án mynsturs. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg, síðan er botninn á handvegi saumaður – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3,5 og litinn ljós taupe. Byrjið í öðrum axlasaumnum frá réttu og prjónið upp ca 96 til 132 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í mynstri A.1. Þegar A.1 er lokið, prjónið stroff með litnum ljós taupe í 7 cm. Stroffið mælist nú ca 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintertwilightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.