Susana Araujo skrifaði:
While making front piece and casting off 18 stitched for the neck we have 51 stitches in each shoulder. After having decreased 6 times for the neck we should have 45 in the needle and not 40 but pattern says 40?? Should I keep decreasing until 40 or move on to diagonal shoulder?
28.05.2023 - 17:50DROPS Design svaraði:
Dear Susana, you have to work the neck and diagonal shoulder at the same time. You will have short rows, for the diagonal shoulder and the decreases for the neck at the same time. After finishing the decreases for the neck and finishing the diagonal shoulder decreases, you should have 40 stitches; then you cast on 2 stitches and you will have the 42 stitches needed for casting off with an edge over the shoulder stitches. Happy knitting!
28.05.2023 - 19:45
Christina skrifaði:
Den ser rigtig sød ud, men er Alpaca ikke for varmt til sommertøj? Jeg kender ikke garnet endnu ;-)
02.05.2023 - 19:37DROPS Design svaraði:
Hej Christina, den er perfekt til en god dansk sommeraften :)
03.05.2023 - 07:50
Susana Araujo skrifaði:
DIAGONAL SHOULDER: When piece measures 49-51-53-55-57-59 cm, continue with knit over knit and purl over purl, i.e. the cables are done. When piece measures 50-52-54-56-58-60 cm, work diagonal shoulder as follows: On next row from the (????) side cast off the 5 stitches in garter stitch Q: What side should this be??
30.04.2023 - 14:26DROPS Design svaraði:
Dear Susana, it's not referring to the right and wrong sides, but rather to a row that starts from the side of the piece, where the shoulders/sleeves are (as opposed to the center of the front piece, where the neck is). Happy knitting!
30.04.2023 - 20:25
Susana Araujo skrifaði:
"Work * 1 stitch in STOCKING STITCH – read explanation above, work next stitch together with first/next stitch from shoulder – read KNITTING TOGETHER, pass the 2 stitches back on Hot pink they came from with strand on wrong side of piece, make sure not to tighten yarn too much " Q: What is a Hot pink???
30.04.2023 - 14:09DROPS Design svaraði:
Dear Susana, there seems to be a typo in the pattern, we will correct it as soon as possible. The right words are: "back on the needle they came from". Happy knitting!
30.04.2023 - 20:19
Susana Araujo skrifaði:
"Work 6 stitches less on every row from the neck and cast off 1 stitch for neck on every row from the neck 4 times in total. " Q: When starting row from neck shall I cast off 1 stitch immediately and work 6 stitches less at the end? So, all of this done in the same row?
30.04.2023 - 14:04DROPS Design svaraði:
Dear Susana, yes, exactly as explained in the first row: "Cast off 1 stitch for neck, work until 6-6-6-6-8-8 stitches remain, turn and work back. "Only, in subsequent rows, you turn 6 stitches earlier (i.e, when 12 stitches remain, when 18 stitches remain e.t.c.). Happy knitting!
30.04.2023 - 21:48
Maja skrifaði:
Finns det något garn som inte är ull man hade kunnat ersätta med?
11.04.2023 - 17:04DROPS Design svaraði:
Hej Maja, du kan strikke den i 1 tråd DROPS Paris eller DROPS Bomull-Lin :)
13.04.2023 - 11:57
Astrid Runa Steffensen skrifaði:
Flow
22.01.2023 - 19:14
Rita skrifaði:
Cable for all seasons
22.01.2023 - 09:40
Andonia skrifaði:
Flowing cables
22.01.2023 - 07:53
Ivana skrifaði:
Vested interest
21.01.2023 - 23:18
Swirling Sea#swirlingseavest |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað oversized / stórt vesti úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 239-14 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju í garðaprjóni. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant í handvegi í lok 2 næstu umferða = 108-120-120-132-144-144 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir mynstrið, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 20-22-22-24-24-26 lykkjur fyrir hálsmáli (44-49-49-54-60-59 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hlið við hálsmál eru felldar af fyrstu 5 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er prjónað þannig: Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli, prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Í síðustu umferð frá hálsmáli eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-42-42-47-53-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á vinstri prjóni með þráðinn frá röngu á stykki (þ.e.a.s. þegar lykkjur eru felldar af frá röngu er þræðinum haldið að þér þegar lykkjurnar eru færðar til baka), passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjurnar frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-48-50-50-52 cm = 108-120-120-132-144-144 lykkjur. Nú eru felldar af miðju 18 lykkjur fyrir hálsmáli (45-51-51-57-63-63 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og samtímis er prjónuð skáhallandi öxl, lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 35-40-40-39-45-44 lykkjur. SKÁHALLANDI ÖXL: Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið skáhallandi öxl þannig: Í næstu umferð frá hlið eru felldar af 5 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er prjónað þannig: Prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Prjónið og snúið svona í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-42-42-47-53-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Snúið stykkinu. Prjónið * 1 lykkja sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á vinstri prjóni með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður þar til 8 lykkjur eru eftir (klauf). TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 66 til 96 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist ca 12 cm. Brjótið stroffið að innanverðu á stykkinu. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #swirlingseavest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.