DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8536.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Swirling Sea Vest

Prjónað oversized / stórt vesti úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, klauf í hliðum, skáhallandi öxl og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL

DROPS 239-13
DROPS Design: Mynstur fl-080
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300-300 g litur 13, gallabuxnablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 08, ljós gallabuxnablár

DROPS TALA NR 612: 5 stykkið í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
19 lykkjur á breidd með kaðlamynstri = 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8536.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

I-CORD AFFELLING:
FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt.
FRÁ RÖNGU. Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

SLÉTTPRJÓN:
Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 4, 13, 19, 25 og 31 cm
S: 4, 13, 19, 25 og 31 cm
M: 4, 13, 19, 25 og 31 cm
L: 4, 11, 18, 25 og 32 cm
XL: 5, 12, 19, 26 og 33 cm
XXL: 6, 13, 20, 27 og 34 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 98-110-110-122-134-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur frá réttu þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant í handvegi í lok 2 næstu umferða = 108-120-120-132-144-144 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loknu máli.
Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir mynstrið, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 14-16-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli (47-52-52-58-63-63 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig.
Í næstu umferð frá hlið við hálsmál eru felldar af fyrstu 5 lykkjur í garðaprjóni (kantur á ermi).

Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl svo að axlirnar fái betra form, með byrjun í næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli, prjónið þar til 7-9-9-9-10-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 7-9-9-9-10-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi alls 4 sinnum. Í síðustu umferð frá hálsmáli eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 40-45-45-51-56-56 lykkjur.
Nú er prjónað og fellt af með i-icord yfir axlalykkjur þannig:
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá I-CORD AFFELLING, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur þannig, frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.

Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram!
Þegar stykkið mælist 27-28-28-29-31-32 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 7 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu – lestu ÚRTAKA. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilum kaðli eru prjónaðar í sléttprjóni. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-10-10-11-11 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant á ermi í lok umferðar frá röngu. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli.
Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 48-53-53-59-64-64 lykkjur eftir á öxl.
Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá réttu, fellið af 5 fyrstu lykkjur (kantur á ermi) og prjónið skáhallandi öxl þannig:

SKÁHALLANDI ÖXL:
Nú er prjónaðar stuttar umferðir yfir öxlina til að hún fái betra form og passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig:
Prjónið þar til stykkið mælist 7-9-9-9-10-10 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-9-9-9-10-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Prjónið næstu umferð frá hlið þannig: Prjónið þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð og fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn = 40-45-45-51-56-56 lykkjur.
Nú er prjónað og fellt af með i-cord yfir axlalykkjur þannig:
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá I-CORD AFFELLING, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af .
Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan á hringprjón 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 8½-9-9-9-9½-9½ cm aðeins strekkt á stykkinu. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað mynstur þannig, frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.

Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram!
Þegar stykkið mælist 27-28-28-29-31-32 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 7 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá réttu – lestu ÚRTAKA. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilum kaðli eru prjónaðar í sléttprjóni. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-10-10-11-11 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant á ermi í lok umferðar frá réttu. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli.
Þegar úrtaka fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 48-53-53-59-64-64 lykkjur eftir á öxl.
Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. snúningur á köðlum er nú lokið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá röngu, fellið af 5 fyrstu lykkjur (kantur á ermi) og prjónið skáhallandi öxl þannig:

SKÁHALLANDI ÖXL:
Nú er prjónaðar stuttar umferðir yfir öxlina til að hún fái betra form og passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig:
Prjónið þar til stykkið mælist 7-9-9-9-10-10 lykkjur, snúið og prjónið til baka.
Haldið svona áfram og prjónið yfir 7-9-9-9-10-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Prjónið næstu umferð frá hlið þannig: Prjónið þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð og fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn = 40-45-45-51-56-56 lykkjur.
Nú er prjónað og fellt af með i-cord yfir axlalykkjurnar þannig:
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá I-CORD AFFELLING, lyftið til baka þeim 2 lykkjum á prjóninn sem þær voru á með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur * og prjónið frá *-* þar til allar lykkjurnar frá öxlinni hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af.
Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan á hringprjón 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 8½-9-9-9-9½-9½ cm aðeins strekkt á stykkinu. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við ystu lykkju meðfram i-cord affellingu. Saumið hliðarsaumana innan við 1 kantlykkju niður þar til ca 8 cm eru eftir (klauf). Saumið kantinn að framan saman mitt að aftan og saumið við hálsmál á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.10.2023
Búið er að bæta við upplýsingum um prjónfestu í kaðlamynstri.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Gitte Lindenskov Overby wrote:

Er opskriften rette

27.11.2023 - 11:25

country flag Marian Blichsted wrote:

DROPS Design answered: Hei Marian Takk for din tilbakemelding. Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan ta en vurdering om det skal tilføyes noe i oppskriften ang strikkefastheten der det strikkes fletter. mvh DROPS Design 26.07.2023 kl. 07:51 Jeg venter spændt på jeres designafdeling, da det er ret vanskeligt selv at regne ud, hvordan man skal lave halslukningen - hvornår kan jeg forvente et svar?

31.07.2023 - 20:47

DROPS Design answered:

Hej Marian, der er taget hensyn til snoningerne i opskriften. Hvilket garn strikker du i? Den mindste størrelse = 98 masker/17 = 58 cm (glatstrik) i bredden og måleskitsen siger 50 cm i bredden med snoninger.

07.08.2023 - 12:09

country flag Marian Blichsted wrote:

Jeg sidder med præcis det samme problem som den forrige svenske strikker - strikkeprøven viste korrekt strikkefasthed - men med snoninger bliver ryggen 47 cm bred, hvor den skulle være 63 cm! Burde der ikke være taget højde for det i opskriften, så man ikke først skal opdage det meget sent i arbejdet????

14.07.2023 - 07:43

DROPS Design answered:

Hei Marian Takk for din tilbakemelding. Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan ta en vurdering om det skal tilføyes noe i oppskriften ang strikkefastheten der det strikkes fletter. mvh DROPS Design

26.07.2023 - 07:51

country flag GERD BRODÉN wrote:

Jag skulle önska att det fanns en stickfasthet på flätmönstret. Jag stickade en provlapp på slätstickning som stämde men västen blev ganska mycket för liten. Hade jag har en stickfasthet på flätmönstret att rätta mig efter så hade jag nog upptäckt det tidigare. Går det att ordna?

25.04.2023 - 08:15

DROPS Design answered:

Hej Gerd, det kan du regne ud ved at sige antal masker / cm x 10. Ryggen i den mindste størrelse er 50 cm: 98m/50cm=1,96 = 20 m på 10 cm :)

25.04.2023 - 14:42

country flag Gerd Brodén wrote:

Jag skulle önska att det fanns en stickfasthet på flätmönstret. Jag stickade en provlapp på slätstickning som stämde men västen blev ganska mycket för liten. Hade jag har en stickfasthet på flätmönstret att rätta mig efter så hade jag nog upptäckt det tidigare.

20.04.2023 - 14:44

country flag Hannah wrote:

Ocean Breeze

21.01.2023 - 22:45

country flag Natratics Éva wrote:

Kényelmes viseletnek gondolom

20.01.2023 - 19:18

country flag Inma wrote:

Brisa

20.01.2023 - 06:39

country flag Zitaantoinete wrote:

Einfach super

19.01.2023 - 08:30

country flag Charlene wrote:

Cozy Cape Cod

18.01.2023 - 17:58