Beata skrifaði:
W polskim tłumaczeniu jest mały błąd - dwukrotnie podano tą samą długość - "Dalej przerabiać aż dł. stopy od markera na pięcie wynosi 16-17-18 cm, mierzyć pod spodem stopy. Dalej przerabiać 2 nitkami włóczki kolor ecru, dżersejem, aż dł. stopy od markera wynosi 16-17-18 cm, mierzyć pod spodem stopy. "
08.09.2024 - 19:41DROPS Design svaraði:
Witaj Beato, zgadza się, bardzo dziękuję za info. Już poprawiam. Pozdrawiam!
08.09.2024 - 22:40
Karine skrifaði:
Bonjour, Est-ce qu'il faut couper le fil à chaque changement de couleur ? Avez-vous une vidéo pour apprendre à faire des rayures ? Merci !
08.07.2024 - 09:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Karine, ce n'est pas necessaire. Vous pouvez suivre les fils sur l'envers, en croisant les fils comme dans notre video ICI. Bon tricot!
13.07.2024 - 14:11
Rose skrifaði:
Bonjour, Je souhaitais savoir si la laine fabel Rêve Rose était en print ou long print pour reproduire exactement ce motif là svp ? Merci beaucoup par avance pour votre aide
27.02.2024 - 09:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Rose, le coloris rêve rose est une couleur print, cf nuancier; notez toutefois que la façon de produire les couleurs peut induire des différentes d'une pelote à l'autre, même au sein d'un même bain, vous aurez ainsi le même effet mais pas exactement les mêmes couleurs (plus d'infos sur le nuancier). Bon tricot!
27.02.2024 - 13:22
DANIELA skrifaði:
Perché non sta scritto con quanti ferri dobbiamo iniziare a lavorare
01.09.2023 - 09:14DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, può lavorare come preferisce, ad esempio con le maglie su 4 ferri e lavorare con il 5°. Buon lavoro!
01.09.2023 - 19:17
DANIELA skrifaði:
Quanti ferri devo iniziare?
01.09.2023 - 09:11DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, può lavorare come preferisce, ad esempio con le maglie su 4 ferri e lavorare con il 5°. Buon lavoro!
01.09.2023 - 19:17
DANIELA skrifaði:
La lunghezza dei ferri qual è ? Devo prendere ferri corti o lunghi , sono alle prime armi.
30.08.2023 - 10:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Daniela, le calze sono lavorate con i ferri a doppia punta: può scegliere la lunghezza con cui si trova più comoda. Buon lavoro!
01.09.2023 - 08:38
Karin Rimmel skrifaði:
Skall det vara en eller två trådar när man stickar tån?
20.08.2023 - 12:10
Kathryn Radmall skrifaði:
Cosy
22.01.2023 - 16:02
Johanne skrifaði:
Sommerhussok
22.01.2023 - 12:35
Ines skrifaði:
Leichte Früchte
19.01.2023 - 21:52
Sweet Treats#sweettreatssocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar / ökklasokkar úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð 35 - 43.
DROPS 238-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-12-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. Allt stykkið er prjónað í 2 þráðum. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 44-46-50 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 2 þráðum í litnum bleikur draumur í DROPS Fabel. Prjónið 1 umferð stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum bleikur draumur og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 4 cm – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Klippið þráðinn. Prjónið nú hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Haldið eftir fyrstu 10-11-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 22-22-24 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-11-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 20-22-24 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar með 2 þráðum í litnum natur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum bleikur draumur þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-12-14 hællykkjur, prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið eins og áður yfir 22-22-24 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 58-60-64 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 22-22-24 lykkjur á fæti. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4-3-3 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 7-7-7 sinnum = 36-40-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá merki. Það eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 18-20-22 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-3-2 sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweettreatssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.