Ulrike skrifaði:
Hallo, die Beschreibung der Vorderteile ist verwirrend: Erst steht da, man soll in jeder Hinreihe für den Halsauschnitt zunehmen, danach steht aber in jeder 4. bzw. 6. Reihe, was stimmt denn nun? Und wenn man in jeder 4. bzw. 6. Reihe zunimmt, ist das einmal eine Hinreihe und einmal eine Rückreihe. Aber auf welche Weise soll man dann zunehmen? Immer nur so, wie im Tipp für Hinreihen beschrieben? Viele Grüße
07.04.2023 - 18:54DROPS Design svaraði:
Liebe Ulrike, die Zunahmen für den Halsausschnitt sollen immer bei einer Hinreihe gestrickt werden, dh so in jeder 4. Reihe: *1 Hin-Reihe mit Zunahmen, 3 Reihen ohnen Zunahmen (= 1 Rück-, 1 Hin-, 1 Rück-Reihe)*, und so in jeder 6. Reihe: 1 Hin-Reihe mit Zunahmen, 5 Reihen ohnen Zunahmen (= 1 Rück-, 1 Hin-, 1 Rück, 1 Hin + 1 Rück-Reihe)*. - siehe ZUNAHMETIPP IN HIN-REIHEN: am Anfang der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!
11.04.2023 - 12:13
Sandra skrifaði:
Hallo, hab gerade mit der Jacke angefangen und bin etwas unsicher da ich noch nie eine europäische Schulter gestrickt habe. Ich hab jetzt am Rückenteil die 24 Zunahmen für xxxl gestrickt und messe ab jetzt die Arbeit am Armausschnitt. Der Armausschnitt beginnt ja nach den Zunahmen und ich messe hier ab 0 cm ist das korrekt? Dh. Ich muss jetzt 18 cm stricken oder zählt von dem vorangestrickten etwas zu den 18 cm dazu? Vielen Dank.
23.03.2023 - 11:03DROPS Design svaraði:
Liebe Sandra, ja genau, Sie messen jetzt ab der 1. Reihe nach den letzten Zunahmen und an der Seite (die "gerade" Seite wie auf der Skizze). Viel Spaß beim stricken!
23.03.2023 - 12:42
MELB skrifaði:
Sherry
19.01.2023 - 03:13
Daniela skrifaði:
70s love
18.01.2023 - 06:46
Sheena skrifaði:
Dunes stroll
18.01.2023 - 03:07
Ivory Collage Cardigan#ivorycollagecardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Wish eða 2 þræði DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni. Prjónið niður að handvegi jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin sett inn á sama hringprjón og bakstykkið, fram- og bakstykkið er prjónað áfram niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónuð ermakúpa fram og til baka. Eftir það eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur efst í hvorum kanti að framan fyrir kant í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 18-18-20-20-22-22 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð áfram. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 18-20-20-22-22-24 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 54-58-60-64-66-70 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (kantur að framan), prjónið upp 18-20-20-22-22-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki) = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið A.1 yfir fyrstu 9 lykkjur (= kantur að framan) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 11 lykkjum (A.1 + 2 lykkjur sléttprjón) – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð 6 sinnum, síðan í 6. hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, passið uppá að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Klippið þráðinn. Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp 18-20-20-22-22-24 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki, fitjið síðan upp 9 nýjar lykkjur í lok umferðar (kantur að framan) = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 11 lykkjum (2 lykkjur sléttprjón + A.2) – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð 6 sinnum, síðan í 6. hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, prjónið þannig – frá röngu: Prjónið yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 6-6-8-10-14-16 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið frá röngu yfir 54-58-60-64-66-70 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-8-10-14-16 nýjar lykkjur, prjónið yfir lykkjur frá vinstra framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og A.1/ A.2. Haldið áfram með útaukningu fyrir hálsmáli á framstykki. Þegar útaukning hefur verið gerð til loka, eru 136-144-152-164-176-188 lykkjur í umferð. Í fyrsta og þriðja skipti sem efstu 6 umferðir í A.1 / A.2 er prjónað, prjónið yfir allar lykkjur á fram- og bakstykki. ATH! Til að mynstrið komi til með að passa við kanta að framan, verður að byrja og enda með einum uppslætti á fram- og bakstykkislykkjum. Það kemur þá til með að aukast um 1 lykkju, þessi lykkja er fækkuð með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman í næstu umferð frá röngu. Prjónið sléttprjón og mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – mælt frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir kant að framan. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 52-56-60-64-72-76 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 188-200-212-228-248-264 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 9 kantlykkjur að framan eins og áður *, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 11 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 9 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 8, prjónið upp frá réttu 26-28-30-32-32-34 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 16-16-18-18-20-20 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 42-44-48-50-52-54 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur. Umferð 1 (ranga): Prjónið 10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 2 (rétta): Prjónið 10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 3 (ranga): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 4 (rétta): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 5 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 6-6-7-8-9-10 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) . Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 8-8-9-10-11-12 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8.-5½.-5½.-4½.-4.-4 cm millibili alls 4-5-5-5-5-5 sinnum = 34-34-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-33-32-32-31 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Það eru eftir ca 14 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-18-14-16-14-16 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-47-47-46-46-45 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt við fyrri ermi, þ.e.a.s. prjónið upp 16-16-18-18-20-20 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 26-28-30-32-32-34 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 9 lykkjum í garðaprjóni efst á hægra framstykki með hringprjón 7, prjónið garðaprjón þar til kanturinn að framan mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm, passið uppá að kanturinn að framan mætist ca mitt að aftan þegar togað er létt í hann. Fellið af. Prjónið alveg eins í kantlykkjur að framan efst á vinstra framstykki. Saumið báða kantana að framan saman mitt að aftan og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka. FRÁGANGUR: Saumið tvær tölur í vinstra framstykki, þannig að hægt sé að hneppa þeim í gegnum gataumferð á hægra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ivorycollagecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.