Jazzy skrifaði:
For the yoke on size XL, increasing 20 stitches yield 54 and not 50 sts for the front and back pieces. Just want to confirm you should increase 16 stitches?
24.01.2025 - 23:48DROPS Design svaraði:
Dear Jazzy, there seems to be a typo in the yoke, it seems it should be 16 instead of 20. We will send your comment to the design department and we will correct it as soon as possible. Happy knitting!
25.01.2025 - 23:11
SJ skrifaði:
I’m making size medium. When I move on to A5 and A6, I’m confused. Question 1: Am I still knitting every second round like before? Or every round? It says I need to increase 23 times for raglan (for medium). Does that mean 23 rows? Question 2: When it then says to then continue like that but only on the body, am I doing 2 rows (for medium) or are the increases on every other row so I’m doing double that (4 rows?) Thank you
07.10.2024 - 01:36DROPS Design svaraði:
Dear SJ, after A.2/A.4 are done you will continue increasing for raglan, but you will now work the cables as shown in A.5/A.6 (same cable as before in A.2/A.4) and continue increasing as before on every other round, in size M until you have increased 23 times on every other round = 46 rounds in total. Work the new stitches as shown in A.1. Then you will increase alternately 4 sts (body only) and 8 sts (body and sleeves) on every other round. Happy knitting!
07.10.2024 - 08:48
Elja skrifaði:
Hi! SJ from Canada is correct, for M the count at the start of the yoke is off. The pattern says knit 30 while increasing 16, that comes to 46 not 42 as the pattern and your reply state. There also aren’t enough stitches to knit 12+1+30+1 twice as we cast on 80. I believe the 30 should be 26 like it is for S. please can you confirm? Thanks!
30.09.2024 - 22:10DROPS Design svaraði:
Dear Elja, thanks for your feedback, pattern has been now edited in both M and XL. ie number of stitches to cast on should be 88 in M and 96 in XL instead. Happy knitting!
07.10.2024 - 10:29
Sj skrifaði:
Hi there I am making a medium pattern so I start with 80 stitches once I’m done the neck. At the end of this yoke set up, I should have 112. So this part is a front and back part so each should be half of that (56). But adding up what it said to knit in terms of stitch is 1+12+1+30+increase 16=60 stitches (120 total). What am I doing wrong? Thank you
27.09.2024 - 12:38DROPS Design svaraði:
Dear Sj, you increase a total of 32 sts: 16 on front piece and 16 on back piece so that you get 80 +32 = 112 sts = 1+12+1+42+1+12+1+42=112 sts. Happy knitting!
27.09.2024 - 14:07
Fausto skrifaði:
"Quando la manica misura 4 cm diminuire 2 maglie a ogni lato del segnapunti". Se il modello prevede che 68 maglie, dopo 11 diminuzioni, diventino 46 (taglia L) vuol dire che ogni diminuzione è di DUE maglie (UNA a ogni lato del segnapunti) e non 4 come è scritto
22.03.2024 - 14:59
Ellen Van Der Bel-Frumau skrifaði:
Het patroon begint toch midden achter en niet bij de raglanmouw? Ik snap de uitleg niet goed!
14.12.2023 - 06:29DROPS Design svaraði:
Dag Ellen,
Nee, het patroon begint bij de raglan, tussen het achterpand en de rechter mouw. Je breit dus eerst de rechter mouw, dan het voorpand, dan de linker mouw en tot slot het achterpand.
17.12.2023 - 17:49
Leila skrifaði:
Hei! Jeg holder på å strikke herremodellen i str. M, men får ikke maskeantallet til å stemme når jeg skal sette merkemasker og øke etter halsen er strikket. Finnes det noen rettelser her? Prøvde å se på damemodellen, men ble ikke klokere av å se på rettelsene der.
13.11.2023 - 23:18DROPS Design svaraði:
Hej Leila, vi skal se på den, så kommer vi tilbage. Hold øje her på siden :)
16.11.2023 - 11:22
Maaike Joustra skrifaði:
Bedankt voor het snelle antwoord, het kwartje is gevallen.
07.11.2023 - 08:57
Maaike Joustra skrifaði:
Daar moest ”tobben ” staan ipv ribben.
05.11.2023 - 08:58
Maaike Joustra skrifaði:
Hallo, Ik zit te ribben met A2 en A4. Het lijkt mij dat A4 in het begin moet komen bij het lijf en de rug en A2 na de 40 steken. Dit lijkt beter bij het diagram te kloppen? Met vr. groet
05.11.2023 - 08:56DROPS Design svaraði:
Dag Maaike,
Je leest de telpatronen van onder naar boven en A.2 en A.4 komen aan beide kanten van de panden. Je begint de naald bij de rechter mouw, wanneer je A.2 voor de eerste keer op de toer breit, dan ben je aan de rechter kant van het voorpand.
05.11.2023 - 19:31
Cream Wafer#creamwafersweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, köðlum og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu á eftir / undan 2 lykkjur sléttprjón við hvert prjónamerki þannig: Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar inn í mynstur í næstu umferð. ÚRTAKA (á við um í hliðum á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerkið situr hér, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-88-88-96-96-96 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 11 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður þar sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 5 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið jafnframt því sem prjónað er og aukið út þannig: Prjónið 1 lykkjur slétt, setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 12 lykkjur slétt (ermi), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið sléttar lykkjur 26-30-30-34-34-34 sléttar lykkjur og aukið út 16-12-12-20-16-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING! (= 42-42-42-50-50-50 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 12 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 26-30-30-34-34-34 lykkjur slétt og aukið út um 16-12-12-20-16-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 42-42-42-50-50-50 lykkjur fyrir bakstykki). Nú eru 112-112-112-128-128-128 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð, ca mitt að aftan, berustykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Það á að prjóna mynstur og auka út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt (1. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (2. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, prjónið A.3 yfir næstu 40-40-40-48-48-48 lykkjur (5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd), prjónið A.4 yfir 1 lykkju, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkju sléttprjón (3. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (4. prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, prjónið A.3 yfir 40-40-40-48-48-48 lykkjur (5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd), prjónið A.4 yfir 1 lykkju og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar í mynstur A.1 og útauknar lykkjur á framstykki/bakstykki er prjónað eins og útskýrt er í A.2/A.4). Þegar mynsturteikning A.2 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur A.5 yfir A.2 og A.6 yfir A.4, lykkjur sem eru auknar út á framstykki/bakstykki eru prjónaðar inn í mynstur A.1 (kaðli er snúið í sömu umferð í mynsturteikningu A.3 og A.5/A.6 alla leiðina). Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 19-23-25-27-27-29 sinnum hvoru megin við hvert prjónamerki = 264-296-312-344-344-360 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. aukið er út á eftir 2. og 4. prjónamerki og aukið út á undan 3. og 1. prjónamerki). Aukið svona út alls 3-2-3-1-3-6 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 19-23-25-27-27-29 sinnum á ermum, alls 22-25-28-28-30-35 sinnum á fram- og bakstykki og það eru 276-304-324-348-356-384 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-26-27-29-32 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Nú á að skipta stykkinu fyrir ermar og fram- og bakstykki, þetta er gert þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 90-96-102-110-114-124 lykkjur eins og áður, setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-12-12 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 88-94-100-108-112-122 lykkjur eins og áður. Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-204-220-236-252-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, í miðju á nýjum lykkjum sem voru fitjaðar upp undir ermum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og haldið áfram hringinn með mynstri A.1 hvoru megin við A.5, A.3 og A.6. ATH: A.1 kemur ekki endilega til með að ganga jafnt upp undir ermum í hvorri hlið, prjónið þess vegna 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki í sléttprjóni, þær lykkjur sem eru eftir eru stilltar af miðað við mynstur á framstykki og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur við hvort prjónamerki í hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 12-12-8-8-8-12 cm millibili alls 3-3-4-4-4-3 sinnum = 180-192-204-220-236-260 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 32-32-32-33-33-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð sléttprjón og fækkið um 8-8-8-8-4-4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 174-184-196-212-232-256 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-56-60-64-64-68 lykkjur af öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 54-62-68-72-76-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = byrjun á umferð. Haldið áfram hringinn í mynstri A.1. ATH: Mynstrið kemur ekki endilega til með að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, prjónið þess vegna 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í sléttprjóni, þær lykkjur sem eru eftir eru stilltar af miðað við mynstur á ermi. Þegar stykkið mælist ca 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 7-4-3-3-2-2 cm millibili alls 6-9-11-12-13-14 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 43-42-40-40-38-36 cm frá skiptingu (prjónið e.t.v. að óskaðri lengd, það eru eftir 5 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2-4-6-4-8-6 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í næstu umferð. Ermin mælist 48-47-45-45-43-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #creamwafersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.