Margareta Wallman skrifaði:
Kan man sticka fram-o bakstycke runt på rundsticka, samma princip som med ärmarna?
16.05.2025 - 17:23DROPS Design svaraði:
Hej Margareta, ja det må du gerne :)
21.05.2025 - 13:48
Kristina skrifaði:
Guten Tag, ich kann doch den Ärmel auch ohne Nadelspiel (also nicht rund) stricken und später zusammennähen?
08.11.2024 - 19:10DROPS Design svaraði:
Liebe Kristina, sicher, das Muster A.1 sollen Sie dann nur anpassen. Hier lesen Sie, wie man das Stricken in Hin und Rücke-Reihen anpassen kann. Viel Spaß beim Stricken!
11.11.2024 - 07:50
Marianne Lorentzon skrifaði:
Förstår inte hur jag ska avsluta ärmen.
07.04.2024 - 23:28DROPS Design svaraði:
Hej Marianne, jo når du fortsætter frem og tilbage istedet for rundt, så deles ærmet på midten så du får en lille split som du skal sy i :)
09.04.2024 - 11:16
Ursel skrifaði:
Hallo, ich möchte gerne diesen Pulli stricken, möche aber ein anderes Garn wählen, da ich den Pulli gerne in der Maschine waschen möchte. In der Anleitung wird Drops Air gewählt mit einer Lauflänge von 150 m. Ich würde nun Drops Paris nehmen mit einer Lauflänge von 75 m. Heisst das, dass ich die doppelte Menge garn bestellen muss? Ist das Garn Paris für dieses Modell geeignet? Viele Liebe Grüße Ursel
31.03.2023 - 08:10DROPS Design svaraði:
Liebe Ursel. Ja, Sie können Drops Paris verwenden und benötigen doppelt so viel Material. Viel Spass beim stricken
09.04.2023 - 13:18
Inge skrifaði:
Is het echt nodig om dit patroon (en ook de wit/lichtblauw gestreepte trui) met rondbreinaalden te breien? Zou het met gewone rechte naalden ook goed gaan? Ik vind een rondbreinaald lastig werken dus brei liever gewoon recht zo ie gaat
09.03.2023 - 23:42DROPS Design svaraði:
Dag Inge,
Je zou dit patroon ook met recht naalden kunnen breien. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
12.03.2023 - 11:56
Heidi skrifaði:
Ik zit al meteen vast met het telpatroon. In de beschrijving staat dat het telpatroon begint aan de verkeerde kant van het werk. Klopt het dan dat de ajoursteek ook aan de verkeerde kant wordt gebreid? Dat is de 5de naald.
06.03.2023 - 17:54
Blandine skrifaði:
Vague
18.01.2023 - 08:46
Anna skrifaði:
Fisherman‘s wife
17.01.2023 - 14:32
Wind Catcher#windcatchersweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-32 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (hægri öxl): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 kantlykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (vinstri öxl): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Öll peysan er prjónuð í gatamynstri. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið svona áfram með stroff: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *- þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 84-94-102-110-120-134 lykkjur. Nú er prjónað A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð í mynstri er prjónuð frá röngu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á hvorri af tveimur næstu umferðum = 74-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 23-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-53 cm. Nú eru felldar af miðju 16-18-20-22-24-26 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þannig: Fækkið um 1 lykkju 6 sinnum – sjá ÚRTAKA = 23-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 64-66-68-70-72-74 lykkjur á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-30-28-26-24-22 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-3-2½-2 cm millibili alls 4-5-6-6-7-8 sinnum = 66-70-74-76-80-84 lykkjur. Þegar ermin mælist 48-47-46-44-42-39 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-51-51-50-49-49 cm, þ.e.a.s. það er klauf 3-4-5-6-7-10 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 68 til 88 lykkjur í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroffið þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið af. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #windcatchersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.