Trine skrifaði:
Sommerskyer (summer clouds)
18.01.2023 - 13:22
Blandine skrifaði:
Mélodie de rose
18.01.2023 - 08:45
Adelene skrifaði:
Twilight
18.01.2023 - 01:24
Małgorzata skrifaði:
Peonia
18.01.2023 - 00:42
Nelly Vollebregt skrifaði:
Summer Brease
17.01.2023 - 23:07
Nelly Vollebregt skrifaði:
Summer hit . Mooi zachte kleuren voor een avond briesje . Mooi patroon !
17.01.2023 - 23:01
Csazsu skrifaði:
Morning Awakening
17.01.2023 - 22:16
Sabine Hagemann skrifaði:
Rainbow
17.01.2023 - 20:15
Sabine skrifaði:
Sea Horizon
17.01.2023 - 17:41
ELENA skrifaði:
NUVOLE
17.01.2023 - 17:19
Watercolour Horizons Sweater#watercolourhorizonssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, röndum, sléttprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. RENDUR: Rendur eru prjónaðar þannig: Uppfitjun + kantur í hálsmáli + 15 cm á flík: litur 01 + litur 40 2 cm með litur 01 + litur 07 10 cm með litur 07 + litur 40 2 cm með litur 07 + litur 41 10 cm með litur 08 + litur 41 2 cm með litur 08 + litur 40 Prjónið til loka máls með litur 41 + litur 40 ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur með 1 þræði í lit 01 og 1 þræði í lit 40 í DROPS Kid-Silk (2 þræðir) á hringprjón 5 og hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er stroff prjónað þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Þegar stroffið mælist 12 cm, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan. Nú eru 4 prjónamerki sett í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, það eru 12-12-12-16-16-16 lykkjur eftir á prjóni (hálft bakstykki). HÁLSMÁL: Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Byrjið mitt að aftan: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðru prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Klippið þræðina frá. Stuttar umferðir hafa núna verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 136-136-136-152-152-152 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! og lesið RENDUR! Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Nú er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 18-22-26-26-30-30 sinnum á fram- og bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum). STÆRÐ S, M, og XXXL: Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningar fyrir ermum er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-4 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-32-36-40 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum í hálsmáli). Eftir síðustu útaukningu eru 252-272-292-308-332-348 lykkjur í umferð. Prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 20-22-24-24-28-32 cm, mælt miðju að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Berustykkið skiptist núna fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 38-41-44-48-52-56 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-48-52-56 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-18-18-20-18-16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-264-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-58-58-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-64-68-70-76-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-3½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 48-48-50-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 37-36-35-34-31-28 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-44-43-42-39-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #watercolourhorizonssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.