Bjørg Nygaard skrifaði:
Takk 😊 Hilsen Bjørg
10.04.2026 - 13:58
Bjørg Nygaard skrifaði:
Hei ! Jeg vil ikke ha splitt i sidene på jakken , bør jeg likevel øke 10 m på høyre forstykke og 18 m på bakstykke , eller skal jeg bare strikke vrangbord av de 189 maskene jeg har inkl 10 masker som er stolpene ?
10.04.2026 - 08:39DROPS Design svaraði:
Hei Bjørg. Ja (må øke), men tilpasse oppskriften / maskeantallet om det er noen kantmasker i sidene på splitten. mvh DROPS Design
10.04.2026 - 13:22
Bjørg Nygaard skrifaði:
Hei ! Jeg er der hvor det står at jeg skal legge opp 6 nye masker på pinnen ( i siden under ermet ) Hvor skal j gjøre av de 6 maskene når j skal strikke 83 masker glattstrikk ( bakstykke ) ermemaskene har j satt på en tråd
06.04.2026 - 19:03DROPS Design svaraði:
Hei Bjørg, De nye maskene er lagt opp slik at du kan fortsette fra forstykket til bakstykket uten stopp, mens ermemaskene er på tråden. Så de 6 maskene er nå en del av bolen. Vennlig hilsen, Drops Team.
07.04.2026 - 06:55
Lenia skrifaði:
Thank you for the answer but if you read the pattern for the left and the right front piece says 10 stitches increase. Why?
23.03.2026 - 08:56DROPS Design svaraði:
Hi Lenia, We recommend increasing stitches before working the rib, so the rib is not tight. This can of course be left out if you wish. Regards, Drops Team.
11.04.2026 - 08:02
Lenia skrifaði:
Hello, I don΄t understand the pattern " Work . . . each side until piece measures 22 cm from division Do you mean that as I knit each one of the divided parts for ex. the LEFT FRONT PIECE I must increase evenly10 st.? for size M until I knit 22 cm alongside ?Evenly with what way?in the same row ? As I look at the pattern looks like it is straight without increases, thats why I am asking.Thank you
22.03.2026 - 21:00DROPS Design svaraði:
Hi Lenia, After the sleeve stitches have been placed on stitch holders, the body is continued as before, with 5 garter stitches at the beginning of each row and 5 garter stitches at the end of each row (on each side = the band-stitches). There are no increased stitches. Regards, Drops Team.
23.03.2026 - 06:08
Marie skrifaði:
I følge mine beregninger vil overvidden bli 111 cm i str M basert på strikkefasthet 17 m og 189 m bol. Dette stemmer ikke med målskissen?
26.02.2026 - 07:13DROPS Design svaraði:
Hei Marie. Husk at strikkefastheten er oppgitt i glattstrikk, mens maskeantallet over brystet / overvidden er strikket i bølgemønster. Maskeantallet er inkl stolpen, disse ligger over hverandre når cm målene på målskissen vises. mvh DROPS Design
03.03.2026 - 09:21
Michele skrifaði:
Re my query on 1 Feb and your reply on 2 Feb, if I increase 28 (I’m doing size M) on the rounds indicates, this will leave me with 304 stitches but yoke instruction says I should have 276 after working the pattern rows. So after my stocking stitch that I’m doing, but with increasing stitches, I would have too many. That would be with or without pattern just merely increasing by 28 where shown. I’m confused!
05.02.2026 - 20:34
Michele skrifaði:
I have decided to do this cardigan without the pattern. Just stocking stitch. I note if doing pattern then during A1 - A3 there should be increases to make 276 at end (medium size). How do I incorporate the increases during those rows? I can’t understand where they would be. Thanks.
01.02.2026 - 22:17DROPS Design svaraði:
Hi Michele, A.1 is repeated on the round the number of times stated in the text for your size. There are 2 increased stitches on each repeat. So if you are working size S for example, you need to increase 13 x 2 = 26 stitches on each increase-round. These increases are worked on rounds 3, 9, 15 etc. (every 6th round). Regards Drops Team.
02.02.2026 - 06:42
Anne skrifaði:
Bonjour, je suis en train de tricoter ce joli modèle. Je suis arrivée à la partie où il faut diviser l'ouvrage pour le dos, les devants et les manches. Je ne comprends pas le but de diviser le travail plutôt que de continuer à tricoter jusqu'au bout comme avant. Merci d'avance
01.02.2026 - 19:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, le but de la division est de pouvoir former les manches: on met les mailles des manches en attente et on les remplace par de nouvelles mailles pour les côtés du gilet, et on termine d'abord les devants/le dos jusqu'aux côtes, puis on va reprendre les mailles des manches pour les terminer séparément. Découvrez ici, en photos comment se passe la division d'un pull tricoté ainsi de haut en bas. Bon tricot!
02.02.2026 - 09:09
Marit skrifaði:
Når jeg strikker fra retten kommer høyre stolpe i starten av runden. Hvordan strikker jeg lite knappehull da? I oppskriften står det forklaring med høyre stolpe i slutten (ikke starten) av rett pinne
10.01.2026 - 15:08DROPS Design svaraði:
Hei Marit. Da må du strikke omvendt av hva det står (på begynnelsen av pinnen, strikk 2 rett, lag 1 kast om pinnen, strikk de 2 neste maskene rett sammen). mvh DROPS Design
19.01.2026 - 09:33
Tidal Treasures Jacket#tidaltreasuresjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með öldumynstri og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-7 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroffið. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-7½-8-8½ cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 89-93-95-101-105-111 lykkjur með DROPS Air yfir hringprjóna 5 og hringprjóna 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5 og haldið eftir hringprjón 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffið þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar = 97-101-103-109-113-119 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður með 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 8 cm. Setjið 1 prjónamerki innan við 5 ystu lykkju í umferð. Berustykkið mælist frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-7-12-20-23-24 lykkjur jafnt yfir = 101-108-115-129-136-143 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, A.1 alls 13-14-15-17-18-19 sinnum, endið með 5 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 alls 0-0-1-1-2-2 sinnum á hæðina, síðan er prjónað A.3 (kantlykkjur að framan halda áfram í garðaprjóni eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 257-276-295-333-352-371 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-9-6-4-1-2 lykkjur jafnt yfir = 265-285-301-337-353-373 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: SKIPTIÐ STYKKINU FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG: Prjónið 43-47-49-54-58-62 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 52-54-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-97-105-113 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 52-54-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 43-47-49-54-58-62 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-189-201-221-241-261 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 46-50-53-58-63-68 lykkjum frá réttu á prjóni (vinstra framstykki). Setjið næstu lykkjur á þráð eða hjálparprjón. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-11-12-13-14 lykkjur jafnt yfir (ekki yfir kant að framan) = 56-60-64-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið ystu 46-50-53-58-63-68 lykkjur í annarri hliðinni á stykki á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-11-12-13-14 lykkjur jafnt yfir (ekki yfir kant að framan) = 56-60-64-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: Setjið þær 81-89-95-105-115-125 lykkjur sem eftir eru á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 99-107-115-127-139-151 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): UMFERÐ 1 (ranga): 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Fellið af, aðeins laust. ERMI: Setjið 52-54-58-66-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-66-74-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-2½-2-2-1½ cm millibili alls 4-4-6-9-9-10 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-34-33-31-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 44-42-41-39-37-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Brjótið kant í hálsmáli niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum í hvorri hlið á hálsmáli (að öxlum). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tidaltreasuresjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.