Wilhelmina skrifaði:
Jag begriper inte hur och var man skall sticka muscher jag har fem maskor till förfogande, sticka m 1och 5 som vanligt mitterste maskan också med ett omslag på vardera sida men sen skall maskan som man sen sticker muschen i stickas innan eller efter muschen och likaså musch två innan eller efter m4?
29.03.2024 - 15:15DROPS Design svaraði:
Hej, de nederste 5 masker i diagrammet er raglanmasker, du strikker muschen på 3:e varv, i 2 og 4 maske, maske 1,3,5 strikkes rät :)
05.04.2024 - 11:27
Bettina skrifaði:
Es ist einfacher die Noppen mit der Häkelnadel zu "stricken".
20.12.2023 - 13:58
Laura Kristensen skrifaði:
Hej. Jeg er ved at strikke str xxl, og efter at have i delt og talt mange gange, er der ved inddelingen, efter halskant, 110 masker, men mønstret bliver kun til 100 masker. Tager jeg fejl?
11.11.2023 - 23:15
Tineke skrifaði:
Hé, nu ineens wordt het antwoord zichtbaar😳 al die tijd voor niets gewacht🤔 maar bedankt, ik ga het proberen!
05.01.2023 - 12:31
Tineke skrifaði:
Dag antwoord team, ik ben echt heel benieuwd naar het antwoord op mijn vraag hieronder, tot die tijd kan ik niet verder met breien😢 Klopt het dat het een fout in de beschrijving is of begrijp ik iets niet goed? Alvast bedankt!
05.01.2023 - 12:29DROPS Design svaraði:
Dag Tineke,
Fijn, en bedankt voor de terugkoppeling. Hopelijk kan je nu verder.
06.01.2023 - 19:30
Tineke De Jong skrifaði:
Excuus, ik had mijn vraag als opmerking geplaatst. Bij het breien van de pas meerder je tot 110 steken (L) Volgende naald: alle onderdelen opgeteld (17 +12+32+12+17)=90 steken. Waar gaat dit niet goed in de beschrijving.. Om verder te gaan met A1 mis ik 20 steken
15.12.2022 - 16:58DROPS Design svaraði:
Dag Tineke,
Je breit daartussen ook nog een aantal keren het telpatroon A.1, dus het is als volgt: 17+A.1 +12+A.1+32+A.1+12+A.1+17. Hierdoor kom je in totaal op 110 steken>
15.12.2022 - 21:40
Tineke De Jong skrifaði:
Bij het breien van de pas meerder je tot 110 steken (L) Volgende naald: alle onderdelen opgeteld (17 +12+32+12+17)=90 steken. Waar gaat dit niet goed in de beschrijving.. Om verder te gaan met A1 mis ik 20 steken
15.12.2022 - 15:58
Anna skrifaði:
Winterberry
05.08.2022 - 08:27
Ana Matei skrifaði:
Sehr schön!
05.08.2022 - 00:12
Winter Berry#winterberrysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-30 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið heldur áfram í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI. Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur með DROPS Air yfir hringprjón 4 og hringprjón 5,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt). Þegar stroffið mælist 9 cm, brjótið það inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT er önnur hver lykkja prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 0-10-22-0-14-38 lykkjur jafnt yfir = 80-94-110-92-110-138 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 9-13-17-12-17-24 lykkjur slétt (hálft bakstykki), A.1, 12 lykkjur slétt (ermi), A.1, 18-24-32-24-32-46 lykkjur slétt (framstykki), A.1, 12 lykkjur slétt (ermi), A.1, 9-13-17-12-17-24 lykkjur (hálft bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni og A.1 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1 yfir miðju 5 lykkjur frá fyrri mynstureiningu, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina eru 224-238-254-284-302-330 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-37-39-43-47-52 lykkjur, setjið næstu 44-46-50-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 68-72-76-86-92-102 lykkjur, setið næstu 44-46-50-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 34-37-39-43-47-52 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-162-174-192-210-230 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 24 cm frá skiptingu aukið út um 20-22-22-24-26-30 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-216-236-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 5 cm. ERMI: Setjið 44-46-50-56-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-60-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-6-3½-2-2-1½ cm millibili alls 5-5-7-9-11-12 sinnum = 42-44-46-48-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-26-25-23-21 cm frá skiptingu, aukið út um 6-4-6-4-4-6 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 48-48-52-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af þegar stroffið mælist 12 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterberrysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.