DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Berry Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, kúlum og tvöföldum kanti að framan. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-29
DROPS Design: Mynstur ai-415
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 35, leir

DROPS TALA NR 515: 6-6-6-6-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Hnappagöt eru prjónuð í hægri kanti að framan þannig:
Prjónið yfir fyrstu 6 lykkjur eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 6 lykkjur eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 6 lykkjurnar (síðasta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn.
Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 6 kantlykkjur að framan sem eftir eru (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkju frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan.
Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist:
S: 4, 13, 22, 31, 40 og 48 cm.
M: 4, 14, 23, 33, 41 og 50 cm.
L: 4, 14, 24, 34, 43 og 52 cm.
XL: 6, 16, 26, 36, 45 og 54 cm.
XXL: 4, 13, 22, 31, 40, 48 og 56 cm.
XXXL: 5, 14, 23, 32, 41, 50 og 58 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið heldur áfram fram og til baka á hringprjóna.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram framstykkjum sem prjónaðar eru saman með tvöföldum kanti að framan.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur með DROPS Air yfir hringprjón 4 og hringprjón 5,5 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 9 cm, brjótið það inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt frá réttu JAFNFRAMT er önnur hver lykkja prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Setjið 1 prjónamerki innan við 1 kantlykkju, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út um 0-10-22-0-14-38 lykkjur jafnt yfir = 80-94-110-92-110-138 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 8-12-16-11-16-23 lykkjur slétt (framstykki), A.1, 12 lykkjur slétt (ermi), A.1, 18-24-32-24-32-46 lykkjur slétt (bakstykki), A.1, 12 lykkjur slétt (ermi), A.1, 8-12-16-11-16-23 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni (framstykki). Haldið áfram í sléttprjóni, A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1 yfir miðju 5 lykkjur frá fyrri mynstureiningu, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina eru 224-238-254-284-302-330 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki mitt að framan.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 34-37-39-43-47-52 lykkjur, setjið næstu 44-46-50-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 68-72-76-86-92-102 lykkjur, setið næstu 44-46-50-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 34-37-39-43-47-52 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-162-174-192-210-230 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 24 cm frá skiptingu aukið út um 20-22-22-24-26-30 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá röngu = 172-184-196-216-236-260 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af.

ERMI:
Setjið 44-46-50-56-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-60-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja sem prjónaðar voru upp undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-6-3½-2-2-1½ cm millibili alls 5-5-7-9-11-12 sinnum = 42-44-46-48-48-50 lykkjur.
Þegar ermin mælist 29-28-26-25-23-21 cm frá skiptingu, aukið út um 6-4-6-4-4-6 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 48-48-52-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af þegar stroffið mælist 12 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN.
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp að hálsmáli. Prjónið upp lykkjur meðfram hægra framstykki, hoppið 90 til 120 cm inn á þráðinn og notið þráðar endann til að prjóna upp lykkjur með (með þessu þá er hægt að prjóna áfram með dokkunni án þess að klippa þráðinn frá) þannig:
Byrjið að taka upp lykkjur neðst á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 5 og DROPS Air.
Nú er haldið áfram með stykkið í þeim enda á prjóni þar sem dokkan er = neðst á framstykki.
Fitjið upp 12 lykkjur fyrir kant að framan í framhaldi við þær lykkjur sem prjónaðar voru upp neðst á framstykki (uppfitjun á lykkjum er gerð frá röngu). Nú er kanturinn að framan prjónaður yfir 12 lykkjur jafnframt því sem kanturinn að framan er prjónaður saman með lykkjum sem prjónaðar eru upp meðfram framstykki þannig:

UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón og prjónið eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið.

UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjóni og prjónið eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 12 kantlykkjur að framan, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kant að framan eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman. Fellið af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Byrjað er að taka upp lykkjur efst við öxl á framstykki, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð niður meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 5 og DROPS Air.
Eftir að lykkjur hafa verið teknar upp eru fitjaðar upp 12 lykkjur fyrir kanti að framan (= neðst á framstykki).
Nú er kanturinn að framan prjónaður yfir 12 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig:

UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 2 næstu lykkjum á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, snúið.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Þegar allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan, prjónið alla lykkjur saman frá réttu þannig: Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn
symbols = í 2 fyrstu umferðum í tákni er prjónað sléttprjón yfir lykkju.
Í 3. umferð er prjónuð 1 kúla þannig: Stingið inn hægri prjóni í lykkju 2 umferðum að neðan og takið upp þráðinn með prjóninum, passið uppá að stykkið dragist ekki saman (þ.e.a.s. lykkjan verður ca 2 cm löng), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið upp 1 lykkju til viðbótar alveg eins *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (5 nýjar lykkjur og 4 uppslættir), lyftið yfir 9 lykkjurnar / uppslætti á vinstri prjón og prjónið þær snúnar slétt saman og prjónið lykkjuna slétt (1 lykkja fleiri)
symbols = í 2 fyrstu umferðum í tákni er prjónað sléttprjón yfir lykkju.
Í 3. umferð er prjónuð 1 kúla þannig: Prjónið lykkjuna slétt, stingið inn hægri prjóni í lykkjuna (sem prjónuð var slétt), 2 umferðum að neðan, takið upp þráðinn með prjóninum, passið uppá að stykkið dragist ekki saman (þ.e.a.s. lykkjan verður ca 2 cm löng), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið upp 1 lykkju til viðbótar alveg eins *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (5 nýjar lykkjur og 4 uppslættir), lyftið yfir 9 lykkjurnar / uppslætti á vinstri prjón og prjónið þær snúnar slétt saman (1 lykkja fleiri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Katelyn Foster wrote:

In response to the response to my comment about the error. Under "yoke," it says to increase 0-10-22-0-14-38. Why would you increase less to end up with fewer stitches for a larger size? This leaves the XL smaller than the medium and the XXL the same size as the L.

08.01.2024 - 01:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Foster, the pattern has been looked over and it is correct as it is. There are quite a lot of increases in the larger sizes and since each increase is quite bit it is how it is done to also get the correct size at the end of the yoke. If you prefer to have more stitches at the beginning of the yoke, you can decrease less stitches, but you will have to alter the increases further down on the yoke. Happy knitting!

05.04.2024 - 14:35

country flag Sally wrote:

I’m doing a size S, as pattern with 80 sts from the york, after doing the A1 pattern 3 times there’s 24 stitches x 3 times increased, I don’t have 224 stitches to carry on with separating the body and sleeves, can you help please?

15.12.2023 - 15:49

DROPS Design answered:

Dear Sally, you increase 12 stitches in each A.1, A.1 is worked a total of 4 times in the round (at each transition between sleeve/body), and a total of 3 times in height, this means: 80 + (12 x 4 x 3) = 224 sts. Happy knitting!

15.12.2023 - 15:58

country flag Katelyn Foster wrote:

Ok I think I’ve figured out that this is an error. It must be. Please fix and update. I spent a lot of money on the materials for this and want to start asap.

16.11.2023 - 05:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Foster, not sure where you found an error, could you please tell us more? About the size you are working, the place where you found this error, etc.. so that we can check further? Thanks for your comprehension.

16.11.2023 - 10:26

country flag Katelyn Foster wrote:

I don't understand this pattern AT ALL. Starting at the Yoke. 1 edge stitch in garter stitch, knit 8-12-16-11-16-23? Do we put markers between all of these? Why not write "knit 87?" Are there markers between the front piece and the sleeves, etc?

16.11.2023 - 02:18

DROPS Design answered:

Hi Katelyn, You can insert markers if you wish, to separate the sleeves from the front and back pieces but the text does include knitted stitches and pattern A.1 on both the sleeves and front/back pieces. A.1 gives you the increases you need on the yoke as well as the bobbles in the pattern. Hope this helps and happy knitting!

16.11.2023 - 06:47

country flag Mairead De Faoite wrote:

WORST PATTERNS EVER.

29.10.2022 - 21:26

country flag Liv wrote:

Would look great with a dress

06.08.2022 - 00:52