DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19162.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Early Moorning Mist

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 236-16

#earlymoorningmistsweater

DROPS Design: Mynstur ai-396
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-350-400-450-500-550 g litur 03, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19162.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð á undan / eftir 1 lykkju í sléttprjóni (lykkja með merki í).
Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki þegar prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki þegar prjónað er frá röngu.
Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki þega prjónað er frá réttu / á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki þegar prjónað er frá röngu.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN MERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR MERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu þannig:
Á UNDAN MERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR MERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með DROPS Air.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13 cm.
Í næstu umferð eru sett 4 merki í stykkið, þetta er gert jafnframt því sem aukið er út um 4 lykkjur í umferð eins og útskýrt er að neðan – merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu:
Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, prjónið slétt yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan.
Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. merki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. merki (hægir hlið í hálsmáli að framan – það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. merki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. merki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. merki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
= 124-128-132-136-140-144 lykkjur. Nú er prjónað hringinn yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ S, M, L og XL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með merki í) í 2. hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 15-19-21-23 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XXL og XXXL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum og í 2. hverri umferð á ermum 1-3 sinnum = 152-180 lykkjur.
Aukið síðan út á fram- og bakstykki og ermum í 2. hverri umferð (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með merki í) alls 10-7 sinnum = 232-236 sinnum.
Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í 2. hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 24-25 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 248-280-296-320-340-368 lykkjur.
Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm mælt mitt að framan eftir stroff í hálsmáli.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-42-43-48-51-58 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-95-103-115 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-41-44-47-52-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-22-26-26-34 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-252-284 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota merkiþráðinn síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-4-3-2½-2-2 cm millibili alls 5-8-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki og festið með 4 punktum með því að sauma það niður með spori í hverja laskalínu.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.10.2022
Leiðrétting: DROPS Air frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C) 350-350-400-450-500-550 litur 03, perlugrár
Yfirfarið á vefsvæði: 17.02.2023
Leiðrétting á staðsetningu á prjónamerkjum fyrir laskalínu.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 236-16

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (97)

country flag Nancy Geerinck skrifaði:

Beste, ik brei maat L en wil de markeerders plaatsen maar ik kom er niet uit. Ik heb 96 steken opgestaan en moet na 12 steken een markeerder plaatsen, na 21 een 2de markeerder, dan na 25 steken een 3de, na 21 steken 4de markeerder en dan de laatste 13 steken breien. Als ik deze aantallen optel kom ik aan 92 steken en niet aan 96. Hoe los ik dit op.

08.12.2022 - 15:21

DROPS Design svaraði:

Dag Nancy,

Je plaatste de markeerdraden in de steken en niet tussen de steken. Vermoedelijk is dit de oorzaak ervan dat je 4 steken over hebt.

10.12.2022 - 08:47

country flag Riet Andreas skrifaði:

U verwijst voor de raglan meerderingen naar de video. In de video wordt in de teruggaande naald niet gemeerderd, alleen de omslag wordt gebreid. Hiernaast moet dan toch ook weer een omslag gemaakt worden voor een nieuwe meerdering?

24.11.2022 - 16:50

country flag Denyse skrifaði:

Je fais la grandeur L. J’ai terminé le col. Quand je fais le premier rang où j’installe les 4 marqueurs, j’arrive à seulement 96 mailles et non 100! 12+21+25+21+13+ 4 augmentations = 96

22.11.2022 - 17:35

DROPS Design svaraði:

Bonjour Denyse, les 4 marqueurs ne doivent pas être placés entre les mailles mais chacun dans une maille, vous aurez ainsi: 12+1 (1/2 dos), 1 m avec un marqueur, 21 m (manche), 1 m avec un marqueur, 23+2 m (devant), 1 m avec un marqueur, 21 m (manche), 1 m avec un marqueur, 11+1 (1/2 dos), soit: 13+1+21+1+25+1+21+1+12=96 mailles. Bon tricot!

23.11.2022 - 08:54

country flag Pia Susanne skrifaði:

Strikker str. S hals 88 masker. strik 10 + 21 + 21 + 21 + 11 = 84 ikke 88 ? -

21.11.2022 - 20:06

DROPS Design svaraði:

Hej Pia. Du ska tælle de masker du setter mærker i också, då får du 88 m. Mvh DROPS Design

22.11.2022 - 07:59

country flag Leah skrifaði:

Finnest det en bedre forklaring på hvordan man øker på retten med kast? Selv en person med lang strikke erfaring forsto det ikke.

03.11.2022 - 07:09

DROPS Design svaraði:

Hej Leah, har du set videon "hvordan øke til raglan og hvordan strikke maskene på neste omgang"?

04.11.2022 - 09:24

country flag Leah skrifaði:

Er det vrangmaske som kommer når man øker til raglan på retten?

02.11.2022 - 20:10

DROPS Design svaraði:

Hei Leah, Kastene blir alltid rett masker på retten, strikket rett fra retten og vrang fra vrangen, men vridd for å unngå hull (se Raglan forklaring under Forklaringer). God fornøyelse!

03.11.2022 - 06:56

country flag Veronique skrifaði:

Pourquoi dans l explication du raglan parle t on de tricoter à l envers ? En effet on tricote en rond.

27.10.2022 - 08:13

DROPS Design svaraði:

Bonjour Véronique, pour former l'encolure (pour que l'encolure dos soit plus haute que l'encolure devant), on va tricoter des rangs raccourcis en augmentant en même temps sur l'endroit et sur l'envers - cf ENCOLURE. Bon tricot!

27.10.2022 - 09:54

country flag Veronique skrifaði:

Bonjour, j ai compris toute l explication sauf On va augmenter pour le dos/le devant avant les marqueurs -1 et -3 et après les marqueurs -2 et -4 quand on tricote sur l’endroit/après les marqueurs -1 et -3 et avant les marqueurs -2 et -4 quand on tricote sur l’envers. On va augmenter pour les manches après les marqueurs -1 et -3 et avant les marqueurs -2 et -4 quand on tricote sur l'endroit / avant les marqueurs 1 et 3 et après les marqueurs 2 et 4 quand on tricote sur l'envers.

27.10.2022 - 08:07

DROPS Design svaraði:

Bonjour Véronique, vous allez placer des marqueurs pour les augmentations des raglans, et vous augmenterez pour les raglans comme indiqué et différemment si vous augmentez sur l'endroit (les rangs sur l'endroit des rangs raccourcis + les tours quand on tricote en rond) ou sur l'envers (les rangs sur l'envers des rangs raccourcis). Cette vidéo montre comment on procède pour les rangs raccourcis et les augmentations (mais augmentez bien comme indiqué dans le modèle, pas comme dans la vidéo). Bon tricot!

27.10.2022 - 13:52

country flag Marie skrifaði:

Coucou, Pour le col double, ne manque t il pas une partie des explication ? Ne faudrait il pas se raccrocher au montage du début pour doubler le col ?

27.10.2022 - 06:56

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marie, dans ce modèle on coud le col en double à la fin (cf ASSEMBLAGE, comme on le montre dans cette vidéo, mais vous pouvez le faire avant l'empiècement si vous le souhaitez, comme dans cette vidéo par ex. si vous le souhaitez. Bon tricot!

27.10.2022 - 10:05

country flag Veronique skrifaði:

Bonjour, Pour une taille 46 en France faut il tricoter du XL ou XXL ? Merci.

27.10.2022 - 06:38

DROPS Design svaraði:

Bonjour Véronique, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures avec celles du schéma, c'est la méthode la plus simple pour trouver la taille à suivre pour chaque modèle. Retrouvez ici d'autres infos sur les tailles . Bon tricot!

27.10.2022 - 09:53