Estela skrifaði:
Não entendi o diagrama. Qdo se diz pra diminuir, não tem laçada pra compensar a diminuição. ? Se finerentes assim a peça vai encolher
17.02.2023 - 20:05DROPS Design svaraði:
Bom dia, Não, de facto, não há laçadas neste bonito ponto. Há malhas alongadas que formam os buraquinhos. Tem à sua disposição um vídeo que explica como fazer o ponto com malhas alongadas: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1663&lang=pt Bons tricôs!
21.03.2023 - 09:56
Pinel Nadine skrifaði:
Bonjour, sauf erreur de ma part, lorsque je fais la règle de 3 avec les références du modèle, je ne trouve pas les mêmes résultats. Ex: les valeurs du point fantaisie sont 17 m =10 cm . Monter 206 m . 206m ×10 =2060/17=121/2=60,5 cm. Sur le patron ça fait 54 cm. Merci de bien vouloir m éclairer sur le mode de calcul . Bien a vous. Nadine
08.02.2023 - 08:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pinel, en fait les 206 mailles sont celles montées pour tricoter en côtes avec les petites aiguilles, on va ensuite diminuer avant de tricoter le point fantaisie, on aura ainsi 185 m au total sur l'aiguille soit 85 m pour le dos et ainsi on retrouve bien nos 50 cm de large. Bon tricot!
08.02.2023 - 09:21
Ria skrifaði:
Welke kleur van DROPS Kid-Silk kan ik best combineren met kleur 45 blush van DROPS Merino Extra Fine?
12.12.2022 - 15:46DROPS Design svaraði:
Dag Ria,
Uiteindelijk is dit een kwestie van smaak en die verschillen :). Ideaal zou zijn als je garens in een winkel bij je in de buurt kunt bekijken. Een andere optie is dat je extra bollen bestelt en wat je niet nodig hebt of niet mooi vindt, terug stuurt.
12.12.2022 - 20:22
Danielle Dubois skrifaði:
Randonnée blanche
05.08.2022 - 09:12
Helene skrifaði:
First snowflakes!
05.08.2022 - 01:59
Bente skrifaði:
Flot mønstret cardigan
04.08.2022 - 18:16
Southern Migration Cardigan#southernmigrationcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, v-hálsmáli og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Þegar ekki er lengur pláss fyrir heilt mynstur við v-hálsmál, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 14, 23 og 32 cm. M: 6, 15, 24 og 33 cm. L: 6, 13, 20, 27 og 34 cm. XL: 4, 12, 20, 28 og 36 cm. XXL: 5, 13, 21, 29 og 37 cm. XXXL: 5, 13, 21, 29 og 37 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp á hringprjóna. Þegar fellt er af fyrir handveg er bakstykkið og framstykkin prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 206-221-239-257-278-299 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði í DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff fram og til baka þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið svona þar til stykkið mælist 4 cm og næsta umferð er frá réttu – lesið HNAPPAGAT. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 21-24-26-28-29-30 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 185-197-213-229-249-269 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan þannig (fyrsta umferð er frá réttu) og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 9 lykkjur, 2-5-0-4-0-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 72-72-90-90-108-108 lykkjur, 2-5-0-4-0-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 9 lykkjur, 2-5-0-4-0-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 36-36-45-45-54-54 lykkjur, 3 lykkjur sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 50-53-57-61-66-71 lykkjur inn frá hvorri hlið (það eru 85-91-99-107-117-127 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé 7. eða 1. umferð í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði fallegt meðfram v-hálsmáli og þar sem lykkjufjöldinn er breytilegur í mynstri A.1). Nú byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi þannig (frá réttu): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, prjónið eins og áður þar til 2-3-6-8-11-15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, fellið af 4-6-12-16-22-30 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 2-3-6-8-11-15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, fellið af 4-6-12-22-30 lykkjur fyrir handveg, prjónið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Héðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 46-48-49-51-53-54 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað þannig: 6-8-0-2-4-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 27-27-27-27-36-36 lykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 44-46-47-49-51-52 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 11-11-11-12-11-11 sinnum = 33-35-36-37-40-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 44-46-47-49-50-52 cm, prjónið sléttprjón – stillið af eftir heilu mynstri á hæðina. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 2-2-2-2-3-3 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 31-33-34-35-37-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 25-27-28-29-31-32 lykkjur fyrir öxl = 6 lykkjur eftir. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 6 lykkjurnar í ca 7-7-7-8-8-8 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 46-48-49-51-53-54 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið saman, prjónið út umferðina eins og áður = 44-46-47-49-51-52 lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 11-11-11-12-11-11 sinnum = 33-35-36-37-40-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 44-46-47-49-50-52 cm, prjónið sléttprjón – stillið af eftir heilu mynstri á hæðina. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 2-2-2-2-3-3 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 31-33-34-35-37-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 25-27-28-29-31-32 lykkjur fyrir öxl = 6 lykkjur eftir. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 6 lykkjurnar í ca 7-7-7-8-8-8 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: = 81-85-87-91-95-97 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað þannig: 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 72-72-72-72-90-90 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1 og 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón. Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón – stillið af eftir heilu mynstri á hæðina. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 75-79-81-85-89-91 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá réttu eru felldar af miðju 23-23-23-25-25-25 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. VINSTRI ÖXL (bakstykki): = 26-28-29-30-32-33 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 25-27-28-29-31-32 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. HÆGRI ÖXL (bakstykki): = 26-28-29-30-32-33 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt = 25-27-28-29-31-32 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Fitjið upp 48-48-51-54-54-57 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-7-10-8-9 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9-9-9-7-8-6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-12-13-14-14 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-47-46-44-43-40 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og ermakúpan er prjónuð fram og til baka. Fellið af þegar ermin mælist 50 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf 2-3-4-6-7-10 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saman kant að framan mitt að aftan (kragi). Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botn á handvegi – sjá teikningu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #southernmigrationcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.