DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cabled Bliss Cardigan

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldu hálsmáli, axlarsæti og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-26
DROPS Design: Mynstur ks-199
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 27, gallabuxnablár
100-125-125-150-150-175 g litur 37, norðursjór

DROPS TALA NR 623: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þræði = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9½-8-8½-8½ cm millibili.

ÚTAUKNING-1 (frá réttu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (frá röngu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 79-83-87-91-93-97 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum norðursjór og 2 þráðum í litnum gallabuxnablár (3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með litnum gallabuxnablár. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið afgang af stykkinu með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Kid-Silk (2 þræðir).

Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 umferð brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 9 nýjar lykkjur = 97-101-105-109-111-115 lykkjur. Haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (stroffið á að halda áfram fallega yfir allar lykkjur).
Þegar stroffið mælist 8 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-21-21-21-23-23 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið) = 118-122-126-130-134-138 lykkjur – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 7 lykkjur í garðaprjóni. Ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru kantlykkjur að framan.
Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Þessi prjónamerki eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum fyrir axlarsæti, ermar og berustykki og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki við hálsmál til að aðgreina þau.
Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið 14-15-16-16-17-18 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið 38-38-38-40-40-40 lykkjur frá 1. prjónamerki, setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 14-16-18-18-20-22 lykkjur frá 2. prjónamerki (bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 38-38-38-40-40-40 lykkjur frá 3. prjónamerki, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 14-15-16-16-17-18 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki.
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 7 lykkjur í garðaprjóni, 7-8-9-9-10-11 lykkjur sléttprjón, A.1, 14-14-14-16-16-16 lykkjur sléttprjón, A.1, 14-16-18-18-20-22 lykkjur sléttprjón, A.1, 14-14-14-16-16-16 lykkjur sléttprjón, A.1, 7-8-9-9-10-11 lykkjur sléttprjón, 7 lykkjur í garðaprjóni. Nú eru 138-142-146-150-154-158 lykkjur í umferð.
Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og síðasta umferð í A.1 yfir A.1. Aukið síðan út fyrir axlarsætir eins og útskýrt er að neðan.

AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er prjónað í sléttprjóni á framstykki, bakstykki og ermar. A.2 yfir A.1 og 7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan (kantar að framan). A.2 er endurtekið á hæðina að loknu máli.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.2) og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir A.2) – sjá ÚTAUKNING-1.
Nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerkis og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerkis – sjá ÚTAUKNING-2.
Þ.e.a.s. aukið út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu, til að lykkjurnar leggist fallega.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út á sama hátt í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 14-14-14-18-20-20 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 2 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu eru 202-206-210-230-242-246 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-8-8-10-11-11 cm frá prjónamerki við hálsmáli. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING ERMAR:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu fyrir axlarsæti, þannig að þau sitji hvoru megin við miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjum við hvora öxl (þ.e.a.s. í gagnstæðri hlið við A.2).
Haldið áfram með mynstur eins og áður.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 10-13-14-13-14-16 sinnum og síðan í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 3-0-0-6-4-0 sinnum – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Á eftir síðustu útaukningu eru 254-258-266-306-314-310 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-20-21-25-26-26 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu fyrir ermar, þannig að þau sitji í ystu sléttprjónuðu lykkjunni í hvorri hlið á ermum.
Haldið áfram með mynstur eins og áður.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri og einni af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2.
Nú eru lykkjur auknar út á framstykkjum, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 0-0-2-0-0-2 sinnum og síðan í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 4-5-4-4-5-6 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 286-298-314-338-354-374 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður, en án útaukninga að réttu máli.

Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 51-53-55-58-62-66 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 48-50-54-60-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 88-92-96-102-110-118 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 48-50-54-60-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 51-53-55-58-62-66 lykkjur eins og áður (framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-214-226-242-262-282 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 54-57-60-64-69-74 lykkjur inn frá hvorri hlið (í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru 94-100-106-114-124-134 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og haldið áfram með A.2 eins og áður.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 15 cm frá skiptingu = 210-222-234-250-270-290 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 24-24-24-23-23-23 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 43-45-47-51-55-59 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 253-267-281-301-325-349 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af aðeins laust.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-50-54-60-60-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 8-6-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-2½-2½-2 cm millibili alls 3-4-6-10-10-11 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 33-31-29-29-28-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 64-66-68-70-72-76 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust.
Ermin mælist ca 43-41-39-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli tvöfalt að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag ANGELA CITARDA wrote:

Salve dubbio x il collo misura s Aumentare 9 m nei 2 ferri successivi Dopo 4 cm di coste dove faccio aumenti? Ai due lati esterni del collo oppure tra le m del ferro? Non è specificato Grazie in attesa di risposta

13.11.2023 - 07:15

DROPS Design answered:

Buonasera Angela, dopo i 4 cm a coste deve avviare 9 maglie alla fine dei 2 ferri successivi come indicato. Buon lavoro!

16.11.2023 - 20:53

country flag Fatma KISRANE wrote:

Bonjour apres avoir tricoter le col pendant 4 cm comment monter les 9 mailles du col est ce que c est des augmentations merci

23.09.2023 - 12:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kirsane, montez les mailles à la fin du rang sur l'endroit en utilisant la technique de cette vidéo, tournez, tricotez le rang suivant sur l'envers et montez les mailles en fin de rang de la même façon. Bon tricot!

25.09.2023 - 08:36

country flag Nelly Lafon wrote:

J'ai déjà laissé un message tout à l'heure concernant le paragraphe AUGMENTATIONS MANCHES si l'on veut que les mailles du milieu restent entre les 2 marqueurs il faut augmenter AVANT le 1er et le 3ème marqueur et augmenter APRES le 2ème et le 4ème marqueur j'ai tout repris après avoir regardé la vidéo qui montre comment augmenter pour les manches marteau

30.01.2023 - 22:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lafon, tout à fait, c'est bien ainsi que l'on augmente pour les épaules/manches marteau (on augmente ainsi le nombre de mailles du dos et des devants, pas celui des manches/épaules), puis, on augmente pour les manches seulement, vous augmenterez alors après le 1er et le 3ème marqueur et avant le 2ème et le 4ème marqueur (on augmente que le nombre de mailles des manches, pas celui des devants/du dos). Bon tricot!

31.01.2023 - 09:51

country flag Nelly Lafon wrote:

Pour ce qui est de la partie AUGMENTATION EMPIECEMENT ça y est j'ai compris pas de problème

30.01.2023 - 22:46

country flag Dubois wrote:

Augmentations epaules/manches marteau: Les marqueurs gardent ils toujours le même numéro que l'on soit sur l'endroit ou l'envers ? Ainsi le 4ème marqueur se trouverait en position 1 sur l'envers ? Je pense ne pas avoir mis mes augmentations au bon endroit sur l'envers... Merci de m'éclairer.

13.10.2022 - 21:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dubois, tout à fait, le 1er marqueur sur l'endroit devient le 4ème marqueur sur l'envers - notez que pour les épaules/manches vous devez augmenter à la fin des devants, avant les épaules et au début + à la fin du dos (après la 1ère épaule + avant la 2ème épaule). Cette vidéo pourra peut-être vous aider. Bon tricot!

14.10.2022 - 08:29

country flag Ola wrote:

Po wykonaniu 4 cm wykończenia dekoltu trzeba dodać 9 oczek na końcu dwóch kolejnych rzędów. We wzorze jest napisane, żeby przerabiać dalej ściągaczem. Rozumiem, że drugą połowę dekoltu, owszem, ale czy te 9 dodanych oczek nie należy już do ramienia, które powinno być przerabiane dżersejem?

07.10.2022 - 18:36

DROPS Design answered:

Witaj Olu, te 9 oczek dodanych z każdej strony to będą później obszycia przodów (w zasadzie obszycie stanowi 7 z tych oczek). Przerabiasz je ściągaczem, aż wykończenie dekoltu jest zakończone. Później 7 oczek brzegowych z każdej strony będzie przerabiane ściegiem francuskim. Pozdrawiamy!

10.10.2022 - 09:29

country flag Pernille wrote:

Veldig fin!

04.08.2022 - 12:15