Bridgett skrifaði:
Can this cardigan be knitted on straight needles?
12.06.2024 - 12:25DROPS Design svaraði:
Dear Bridgett, back and front pieces are worked back and forth on circular needle to get enough room for all stitches, you can then just work each piece as explained on straight needles. For sleeves, this lesson will help you to make the required adjustments. Happy crocheting!
12.06.2024 - 16:30
Nettie skrifaði:
4 Fotos in genau der gleichen Ansicht sind nicht gerade hilfreich, zumal am Kragen auch noch die Haare davor sind. Schade! 1 mal Vorderansicht, 1 mal Seitenansicht, 1 mal Rückansicht und 1 mal Ausschnittvergrößerung, wo man das Muster besser sehen kann - DAS wäre hilfreich. Freundliche Grüße
27.07.2023 - 16:49
Simran skrifaði:
Hello! Confused about this part in the R/L panels: "Then bind off for the neck as follows: 2 stitches 1 time and 1 stitch 2 times" what does this mean? Thanks in advance!
19.04.2023 - 04:26DROPS Design svaraði:
Hi Simran, From the edge by the neck you bind off 2 stitches, work to end of row and work back. Then you bind off 1 st on the next row and repeat this one more time. Hope this helps and happy knitting!
19.04.2023 - 06:39
Bodier skrifaði:
Pourquoi tricoter sur des aiguilles circulaires alors que le dos et les devants sont séparé Ce serrais plus simple de faire sur des aiguilles droites Merci de votre reponse
23.02.2023 - 20:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bodier, les aiguilles circulaires sont très fréquemment utilisées en Scandinavie, indépendamment de la façon de tricoter (en rond ou en rangs), on a ainsi plus de place pour loger toutes les mailles. Découvrez ici quelques infos complémentaires. Bon tricot!
24.02.2023 - 10:01
Christa skrifaði:
Hallo, Ik wil graag weten waarom dit patroon met de rondbreinaalden gebreid is. Ik wil het op gewone breinaalden (40cm lang) breien. Is dat een probleem? Vriendelijke groet Christa
11.02.2023 - 16:13DROPS Design svaraði:
Dag Christa,
Dit patroon zou je ook prima op rechte naalden kunnen breien. Voor de hals zou het wel handig zijn om een rondbreinaald te nemen, omdat je dan vrij veel steken op de naald hebt. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
12.02.2023 - 17:47
Elżbieta skrifaði:
Dlaczego tak zakamuflowana jest informacja ile włóczki trzeba kupić? Nie potrafię znaleźć tego znaleźć. Czy to jakaś tajemnica?
01.01.2023 - 00:46DROPS Design svaraði:
Witaj Elżbieto, na górze we wzorze jest ta informacja: MATERIAŁ: DROPS Wish od Garnstudio (należy do Grupy włóczek E) 550-600-650-700-750-850 g kolor 18, zielona szałwia. Ilość włóczki zależy od rozmiaru, który wykonujesz, dla rozmiaru S będzie to 550 g, czyli 11 motków. Pozdrawiamy!
02.01.2023 - 08:34
Elena Anzari skrifaði:
The pattern is absolutely charming. The chosen colour goes very well with it!
06.08.2022 - 14:51
Terry It skrifaði:
Wandering vine
05.08.2022 - 21:39
Eva skrifaði:
Zopfweste
05.08.2022 - 11:42
Scent of Sage Cardigan#scentofsagecardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-37 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 16, 26, 36 og 47 cm M: 6, 16, 27, 38 og 49 cm L: 6, 17, 28, 39 og 50 cm XL: 6, 15, 24, 33, 42 og 52 cm XXL: 6, 15, 24, 33, 43 og 53 cm XXXL: 6, 15, 25 ,35, 45 og 55 cm. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Að lokum er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 56-60-68-72-80-88 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 6-6-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 50-54-60-64-72-78 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 46-50-56-60-68-74 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 16-18-18-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 14-15-18-19-22-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 41-45-49-49-53-57 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 10 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 6 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, sléttar lykkjur yfir næstu 6-10-14-14-18-22 lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 1-3-4-2-2-3 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 40-42-45-47-51-54 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hlið = 38-40-43-45-49-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm, setjið ystu 14-15-15-16-17-17 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 20-21-24-25-28-31 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt fyrir A.2 = 14-15-18-19-22-25 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 41-45-49-49-53-57 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-12-16-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir næstu 6-10-14-14-18-22 lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 1-3-4-2-2-3 lykkjur jafnt yfir, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, 6 lykkjur slétt, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 40-42-45-47-51-54 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hlið = 38-40-43-45-49-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm, setjið ystu 14-15-15-16-17-17 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 20-21-24-25-28-31 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.3 eru nú prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt fyrir A.3 = 14-15-18-19-22-25 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Fitjið upp 36-40-40-44-44-48 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 9½-9½-9-9-8½-8 cm millibili alls 5 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Fellið af þegar ermin mælist 52-52-50-49-46-45 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, niður að stroffi (10 cm klauf í hvorri hlið). Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og á annarri öxlinni og prjónið upp ca 62 til 78 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum), á stuttan hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 2. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 6 cm. Fellið af 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og haldið áfram með stroff með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið þar til stroffið mælist alls 12 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scentofsagecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.