DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rivière

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð XS - XXXL.

DROPS 235-34
DROPS Design: Mynstur z-969
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400-450 g litur 6309, turkos/grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150-175 g litur 27, gallabuxnablár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál aftan í hnakka):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 90-94-102-114-118-126-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan, í 6 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 11 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjurnar) = 79-83-91-103-107-115-123 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 umferðum = 73-77-85-97-101-109-117 lykkjur.

Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum = 71-75-83-87-91-95-103 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 23-23-25-25-27-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Setjið fyrstu 24-26-29-31-32-34-37 lykkjur sem voru prjónaðar á þráð eða látið þær hvíla á prjóni (hægri öxl).

VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – sjá ÚRTAKA = 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!

HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar – sjá ÚRTAKA = 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 90-94-102-114-118-126-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 6 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjurnar) = 80-84-92-104-108-116-124 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35-36 cm.

Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu, þannig:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 38-40-44-50-52-56-60 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið þessar 2 lykkjur á þráð fyrir v-hálsmáli, prjónið 38-40-44-50-52-56-60 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 39-41-45-51-57-57-61 lykkjur á hvorri öxl.
Prjónið nú hvora öxl til loka hvora fyrir sig.

HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
= 39-41-45-51-53-57-61 lykkjur. Nú á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli – lestu kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR að neðan áður en þú prjónar áfram. Úrtaka fyrir v-hálsmáli er ekki enn byrjuð, nema að þú hefur skipt stykkinu fyrir v-hálsmál.

V-HÁLSMÁL:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður.
Fækkið lykkjum svona til skiptis í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 12-12-13-13-14-14-15 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá röngu. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum.

Þegar allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka, eru 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING.

VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
= 39-41-45-51-53-57-61 lykkjur. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli og handvegi eins og útskýrt er að neðan.

V-HÁLSMÁL:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum svona til skiptis í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 12-12-13-13-14-14-15 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum.

Þegar allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka, eru 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING.

ERMI:
Fitjið upp 46-46-50-50-54-54-58 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm (stillið af að næsta umferð sé frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur slétt, fækkað er um 6-4-6-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 40-42-44-44-46-48-50 lykkjur.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ermin mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 7-6-5-4½-4-3½-3½ cm millibili alls 6-7-8-9-10-11-11 sinnum = 52-56-60-62-66-70-72 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 48-48-47-46-46-44-44 cm. Fellið nú af lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 3 lykkjur alls 2-2-2-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 50-50-49-49-48-48-48 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Lykkjur eru prjónaðar upp innan við 1 lykkju frá réttu á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Byrjið mitt að aftan. Prjónið upp ca 54 til 66 lykkjur fram að 2 lykkjum sem settar voru á þráð mitt að framan (stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2), setjið lykkjur af þræði á vinstri prjón og prjónið þessar lykkjur slétt saman (miðjulykkjur á framstykki), prjónið upp 2 lykkjur fleiri en á vinstri hlið að framan að miðju að aftan (þ.e.a.s. lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4, þ.e.a.s. ca 56 til 68 lykkjur) = ca 112 til 136 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki á milli 2 lykkja að miðju að framan, þessar lykkjur eru miðjulykkjur og eiga að vera sléttar lykkjur í stroffi.
ATH! Teljið frá miðjulykkjum og til baka í byrjun á umferð þannig að stroffið geti byrjað þannig að það verða 2 lykkjur brugðið á undan 2 miðjulykkjum sem eiga að prjónast slétt.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerkið situr hér. Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Það eru enn 2 lykkjur slétt mitt að framan (1 lykkja slétt í hvorri hlið á prjónamerki). Haldið áfram hringinn og fækkið lykkjum við prjónamerki í hverri umferð þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 4 cm.
Prjónið 1 umferð stroff án þess að fækka lykkjum við prjónamerki, hér er kanturinn í hálsmáli brotinn síðar saman tvöfaldur.
Nú á að auka út hvoru megin við miðjulykkjur í hverri umferð þannig:
Prjónið stroff eins og áður fram þar til 1 lykkja er eftir að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (miðjulykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið stroff eins og áður út umferðina, uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffprjóni í næstu umferð.
Haldið áfram hringinn og aukið svona út við prjónamerki í hverri umferð þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið kantinn í hálsmáli að innanverðu á stykki og festið affellingarkantinn með nokkrum sporum að innanverðu á stykki þannig að hálsmálið liggi fallega.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Lucyna wrote:

Czy nabieranie oczek na wykończenie dekoltu V zacząć po prawej stronie swetra ( prawa strona po nałożeniu swetra) ? Nie ogarniam tego.

12.03.2024 - 18:15

DROPS Design answered:

Witaj Lucyno, dokładnie tak. Nabierasz oczka na wykończenie dekoltu i masz przed sobą prawą stronę swetra. Zaczynasz nabierać od środka tyłu, dalej wzdłuż lewej strony dekoltu przodu, itd. jak w opisie. Dokładny sposób wykonania tego znajdziesz na filmie TUTAJ. Pozdrawiamy!

13.03.2024 - 08:41

country flag Lea wrote:

Bei den Ärmeln steht: „… beidseitig für die Armkugel abketten: 3 Maschen insgesamt 2 x beidseitig.“ Bedeutet es in einer Hinreihe 3 und einer Rückreihe 3 = 6 insgesamt? Oder 2 x Hin- und Rückreihe = 12 insgesamt? Es wäre toll gewesen, wenn Sie die Maschenanzahl, die vor dem endgültigen Abketten vorhanden sein soll angegeben hätten, wie sonst in der Anleitung auch - dann wäre es selbsterklärend. Danke für Ihre Hilfe.

24.02.2024 - 14:04

DROPS Design answered:

Liebe Bea, ketten Sie 3 Maschen am Anfang der nächsten 4 Reihen ab, so haben Sie 3 Maschen 2 Mal beidseitig abgekettet; so sind es insgesamt 6 M x 2 Seiten = 12 Maschen weniger. Viel Spaß beim stricken!

26.02.2024 - 14:50

country flag Lea wrote:

Beim Rückenteil steht: „ Bei einer Länge von 38-39-40-41-42-43-44 cm je 3 Maschen am Anfang der nächsten 2 Reihen, d.h. beidseitig, für die Armausschnitte abketten …“ Gesamtlänge des Rückenteils incl. 6 cm Bündchen oder ohne? 41+6? Und - ebenfalls Rückenteil: „ Nun in jeder Hin-Reihe für die Armausschnitte innerhalb 1 kraus rechten Masche abnehmen …“ Wie nehme ich innerhalb einer Masche ab? Und wo genau soll ich das 5 mal machen? Danke für Ihre Hilfe.

14.02.2024 - 13:18

DROPS Design answered:

Liebe Lea, diese Länge messen Sie ab der Anschlagskante; dh inkl. die 6 cm Bündchen; nehmen Sie für die Armausschnitte wie unter ABNAHMETIPP (gilt für die Armausschnitte und den hinteren Halsausschnitt): erklärt, siehe am Anfang der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2024 - 08:54

country flag Henrike wrote:

Hallo, in der Anleitung für Ärmel steht, nach dem 6 cm langen Rippenmuster zu Rundnadel Nr. 5,5 zu wechseln. Bis hier okay, aber ich verstehe nicht, warum dann mehrere Maschen (in meinem Fall 8) gleichmäßig verteilt abzunehmen sind. Beim Weiterstricken wird dann (logisch, ist ja ein Ärmel) wieder zugenommen. Danke für die Erklärung.

29.01.2024 - 22:43

DROPS Design answered:

Liebe Henrike, man braucht mehr Maschen für das Bündchen mit den kleineren Nadeln als fürs Glattrechts mit den grösseren Nadeln für die gleiche Breite, deshalb muss man abnehmen, das Bündchen soll die Arbeit nicht fester ziehen. Viel Spaß beim stricken!

30.01.2024 - 08:10

country flag Valérie wrote:

Bonjour, Je n'ai pas bien compris cette étape : "Diminuer ainsi 12-12-13-13-14-14-15 fois au total alternativement tous les 2 et 4 rangs." Est-ce que ca veut dire, par exemple : "diminuer 12 fois au rang 2 puis au rang 6 puis au rang 8 puis au rang 12 puis au rang 14...etc..." ? Merci par avance pour votre réponse.

16.12.2023 - 21:05

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, diminuez ainsi: *tricotez 1 rang sans diminuer, 1 rang avec diminution (= tous les 2 rangs), 3 rangs sans diminuer, 1 rang avec diminution (tous les 4 rangs)* et répétez de *à* (= 6 rangs au total, et vous aurez diminué 2 mailles sur ces 6 rangs) jusqu'à ce que vous ayez diminué 12, 13 ou 14 mailles pour l'encolure au total. Bon tricot!

18.12.2023 - 08:34

country flag Ute Frau Gutt wrote:

Könnte man alpaka mit Babymerino statt kid silk kombiniere ?

02.10.2023 - 18:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gutt, da beide Garne der Garngruppe A gehören, können Sie Baby Merino anstatt Kid-Silk stricken, beachten Sie nur, daß die Textur etwas verschieden wird. Benutzen Sie den Garnumrechner um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim stricken!

03.10.2023 - 07:52

country flag Linda Tillman wrote:

On V neck decrease, the directions say every second and fourth row. Does that mean on right side only (not counting wrong side rows?) Or does it mean decrease on the second row on the right side and then wait and decrease on the fourth row? I decreased on the second and fourth row as I read it and that meant that I decreased on every right side row, but that doesn't look like the photo. Help please and thank you in advance.

25.03.2023 - 02:45

DROPS Design answered:

Dear Linda, every second row means (usually) on every right side row. Every fourth row means on ever other right side row. Happy Knitting!

25.03.2023 - 09:46

country flag Marlies Van Dijk wrote:

Beste Drops, Bij het voorpand staat, voor mijn maat, xl, bij 33 cm hoogte beginnen met de V-hals. Wordt dit bedoeld vanaf de boord van 6 cm, of wordt die boord erbij gerekend, dus dan 39 cm? Ik vind zelf 33 cm erg laag, om met de V- hals te beginnen. Hopelijk kunt u mijn vraag beantwoorden.

17.03.2023 - 19:29

DROPS Design answered:

Dag Marlies,

Dit is vanaf het begin, dus vanaf de opzetrand. Houd er rekening mee dat de hoogte van de halsboord er nog bij komt, dus d hals wordt uiteindelijk minder diep.

19.03.2023 - 16:43

country flag Helena wrote:

Guten Tag. Der Ärmel soll abgekettet werden werden bei einer Länge von 50-50-49-49-48-48-48. Die Masskizze sagt aber, der Ärmel ist 58cm lang (2+50+6) Wo kommen die übrigen 2+6 noch dazu? Herzlichen Dank für Ihre Antwort Helena

23.02.2023 - 22:22

DROPS Design answered:

Liebe Helena, die 6 cm sind für das Bündchen und die 2 cm sind für die Armkugel, so haben Sie 6 cm Bündchen + 42 cm glatt rechts + 2 cm Armkugel = 50 cm. Viel Spaß beim stricken!

24.02.2023 - 10:13

country flag Nicole wrote:

Bonsoir. Vous indiquez 100g de KS ce qui fait 800m et 300g d’alpaca qui font 6 pelotes de 167m =1002m. Pourquoi autant d’alpaga pour un modèle qui nécessite 800m de fil ? 5 pelotes x 167 m équivaut à 835m . Ce qui normalement devrait suffire.

13.02.2023 - 19:01

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, après vérification, les quantités indiquées sont justes. Pensez à toujours bien vérifier votre échantillon au préalable. Bon tricot!

17.02.2023 - 16:03