Donna skrifaði:
Fantastic site and beautiful patterns . It's very Inspiring to knit especially the beautiful Wool brands that are used to create these gorgeous items. Glad I found this site,will be put on my go to sites
29.08.2024 - 08:37
Veronika skrifaði:
Its beautiful
25.04.2024 - 22:38
Helene Martens skrifaði:
Ik heb een vraag Waar kan ik het telpatroon vinden van de trui 235-20 Ik vind het niet met vriendelijke groeten
17.01.2023 - 19:23DROPS Design svaraði:
Dag Helene,
De telpatronen staan onderaan de beschrijving. Misschien is het nodig om even de pagina te verversen met Ctrl + F5 om ze in beeld te krijgen.
18.01.2023 - 17:53
Marja skrifaði:
Puolukka
08.08.2022 - 11:19
Eva skrifaði:
Rosa Rundum
05.08.2022 - 11:39
Yvonne Pel skrifaði:
Wat een prachtige trui. Zou ik heel graag breien. Liefst ik maat 56-58.
05.08.2022 - 09:22
Kim Miller skrifaði:
Berry graphic
04.08.2022 - 22:48
Maiju Valkama skrifaði:
You could name this lingonberry.
04.08.2022 - 13:48
Norway Rose#norwayrosesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli, klauf í hliðum og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Fram og bakstykki skiptist síðan og prjónuð er klauf fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á hringprjón 6 með litnum vínrauður í DROPS Wish eða DROPS Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-12-16-20-20 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-80-84-88 lykkjur. BERUSTYKKI: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur, sjá LEIÐBEININGAR! Eftir síðustu útaukningu í A.1 eru 160-170-180-200-210-220 lykkjur í umferð. Í síðustu umferð í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 156-172-180-200-208-224 lykkjur. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni með litnum malva / púður. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, mælt eftir kanti í hálsmáli mitt að aftan, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Prjónið 24-27-28-31-33-36 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 30-32-34-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 48-54-56-62-66-72 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 30-32-34-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 24-27-28-31-33-36 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 108-120-128-140-152-164 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum malva / púður. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá skiptingu. Setjið 54-60-64-70-76-82 lykkjur frá framstykki á þráð eða á hjálparprjón, prjónið yfir 54-60-64-70-76-82 lykkjur frá bakstykki. BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-8-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 60-68-72-80-88-92 lykkjur. Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 8 cm, fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Setjið til baka lykkjur frá framstykki á prjóninn og prjónið alveg eins og bakstykki. ERMI: Setjið 30-32-34-38-38-40 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum malva / púður = 36-38-42-46-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 10-10-8-6-6-6 cm millibili alls 3-3-4-5-5-5 sinnum = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 32-31-31-30-30-29 cm frá skiptingu. Nú er aukið út um 6-8-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 36-40-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 40-39-39-38-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #norwayrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.