Kerstin skrifaði:
Fluffysweater
07.08.2022 - 13:03
Marie Breward skrifaði:
Sheer Raspberrt
07.08.2022 - 02:05
Susanne Brasch skrifaði:
Raspberry sky
06.08.2022 - 23:41
Erika Bellelli skrifaði:
Easy day
05.08.2022 - 22:07
Åshild skrifaði:
Eir
05.08.2022 - 16:58
Anna Lisa skrifaði:
Rasperry jam
05.08.2022 - 11:27
Danielle Dubois skrifaði:
Framboisette
05.08.2022 - 08:17
Cranberry Kiss Sweater#cranberrykisssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja (8 lykkjur fleiri). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-96-96-104 lykkjur með einum þræði í hvorum lit í DROPS Kid-Silk (2 þræðir) yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjón 3,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 12 cm, brjótið það inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð slétt JAFNFRAMT er önnur hver lykkja prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið nú 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Merkið er notað þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert merki er sett á milli 2 lykkja. Teljið 9-9-13-13-13-17 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. merki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 2. merki, teljið 20-20-24-28-28-32 lykkjur (framstykki), setjið 3. merki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 4. merki, það eru 11-11-11-15-15-15 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 3 lykkjur á undan 3. merki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. merki (hægri hlið á hálsmáli að framan). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 3. merki. Snúið stykki og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 2. merki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykki, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. merki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 96-96-104-112-112-120 lykkjur. Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 12-14-16-17-15-13 sinnum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum) = 176-192-216-232-216-208 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 12-12-12-12-18-22 sinnum á fram- og bakstykki (6-6-6-6-9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-26-28-29-33-35 sinnum á fram- og bakstykki og 18-20-22-23-24-24 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-264-288-304-324-340 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 22-25-26-27-30-32 cm, mælt fyrir miðju að framan eftir stroff í hálsmáli. Prjónið e.t.v. áfram í sléttprjóni án útaukninga að réttu máli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 36-38-44-45-49-55 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 50-54-58-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 74-78-86-92-100-108 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 50-54-58-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-40-42-47-51-53 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-228-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-16-17-18-17-17 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir =180-192-212-228-252-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-58-60-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-68-72-76-78 lykkjur. Setjið einn merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-3½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 32-30-29-28-26-24 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 42-40-39-38-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cranberrykisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.