Wendy Chung skrifaði:
Hi. Can you clarify the following instructions for me? I feel that the math doesn't work out for me. I get 85 stitches after casting off. Thank you At THE SAME TIME cast off for armholes at beginning of every row in each side as follows: Cast off 2 stitches 2-2-2-3-5-5 times and 1 stitch 4-4-5-4-3-3 times = 69-77-81-87-89-97 stitches.
08.12.2024 - 21:08DROPS Design svaraði:
Hi Wendy, You don't say which size you are working, but if we take size M as an example, the back piece has 93 stitches before working the armholes. Then you cast off equally on both sides, 2 stitches 2 times = 8 cast-off stitches stitches (2 stitches at the beginning of 4 rows). Then you cast off 1 stitch at the beginning of the next 8 rows (4 cast-off stitches on both sides). A total of 16 cast-off stitches and you are left with 77 stitches (in size M). Hope this helps and happy knitting!
09.12.2024 - 06:57
Edith Nierop skrifaði:
Bij de halsrand wordt het deel dat naar binnen wordt gevouwen met de dikste naald gebreid. Moet het niet net andersom. Zodat het grofste breiwerk aan de buitenkant komt?
29.12.2022 - 12:51
Liane Terleth skrifaði:
Hallo, ik ben met de mouw bezig. Deze is nu 45cm en ik heb net 6 steken afgekant. Nu heb ik 54 steken over. Ik begrijp alleen niet of ik nu de komende 3 naalden alleen aan het begin van de 2 steken moet afkanten (resterend 48 steken). Of aan het begin en eind van de komende 3 naalden (resterend 42 steken). Kunnen jullie dat uitleggen en aangeven hoeveel steken er überhaupt aan het einde moeten zijn? Dank je wel Liane
18.12.2022 - 22:43DROPS Design svaraði:
Dag Liane,
Je kant steeds alleen aan aan het begin van iedere naald af en niet aan het begin en het einde. Voorbeeld: wanneer je 3 keer 2 steken afkant heb je dus 6 naalden gebreid, waarbij je telkens 2 steken aan het begin van iedere naald 2 steken hebt afgekant. Hoeveel steken er over blijven hangt af van je maat.
22.12.2022 - 08:36
Claudia skrifaði:
Hallo So habe wirklich versucht diesen Zopf im A2b zu Stricken.Nicht möglich. Man muss ja mit den Fingern um die Ecke gehen um dies zu schaffen.Kann man das auch von hinten rechts stricken an statt zwischen die Maschen?
12.11.2022 - 13:53DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, dieser Zopf (4. Symbol) zeigen wir in diesem Video - vielleichte kann es Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!
14.11.2022 - 09:29
Mette skrifaði:
Hej Drops Jeg kan simpelthen ikke forstå hvordan jeg skal strikke den sorte trekant nederst i diagram A.2B. Er det muligt at det kan blive forklaret mere uddybede, for kan simpelthen ikke gribe hvad det er mønsteret vil have jeg skal gøre. Eller bliver der lavet en video med det? På forhånd tusind tak!
24.10.2022 - 16:30DROPS Design svaraði:
Hej Mette, vi laver en video, det kan tage et par dage, men hold øje her i video-oversigten :)
26.10.2022 - 09:07
Eija Silvennoinen skrifaði:
Miten neulotaan 235-7 ohjeessa: A.2B ensimmäisellä kierroksella musta kolmio?
09.10.2022 - 17:29DROPS Design svaraði:
Kolmio neulotaan näin: Siirrä 2 silmukkaa apupuikolle työn eteen, neulo 1 silmukka oikein, vie oikean käden puikko takakautta apupuikon 2 silmukan väliin ja neulo vasen silmukka oikein, älä pudota silmukkaa puikolta, neulo oikea silmukka oikein siten, että tämä silmukka laskeutuu viistoon 2 muun silmukan päälle, pudota molemmat silmukat vasemmalta puikolta
10.10.2022 - 18:40
Marloes skrifaði:
Wat is de bedoeling bij: = zet 2 steken op een kabelnaald en houd deze voor het werk, 1 recht, brei met de rechter naald vanaf achter tussen de 2 steken op de kabelnaald en brei de linker steek recht, laat de steek niet van de naald afglijden, brei de rechter steek zodat deze diagonaal over de 2 andere steken ligt en laat beide steken van de linker naald af glijden. Linkersteek lukt, maar daarna? De linker zit ook in de weg? Alvast bedankt!
09.10.2022 - 16:05DROPS Design svaraði:
Dag Marloes,
Nadat je 2 steken op een kabelnaald hebt gezet en aan de voorkant van het werk houdt, brei je nog 1 steek van de linker naald. Daarna brei je de 2 steken die op de kabelnaald staan. Je steekt daarvoor de rechter naald vanaf de achterkant in en je breit eerst de tweede steek, dus de linker steek, zonder die steek van de naald af te laten glijden. Dan brei je de eerste steek van de kabelnaald en dan laat je beide steken van de (kabel)naald af glijden.
12.10.2022 - 19:58
Purlyplatypus skrifaði:
Sunny meadow
05.08.2022 - 07:30
Autumn’s Essence#autumnsessencesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp þar til ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Stykkið er síðan saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 204-220-236-256-280-302 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 22-22-26-26-30-32 lykkjur jafnt yfir = 182-198-210-230-250-270 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 91-99-105-115-125-135 lykkjur (í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 5-6-5-6-6-5 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 15-14-17-17-22-22 lykkjur sléttprjón, A.2A, prjónið A.2B yfir næstu 50-60-60-70-70-80 lykkjur, A.2C, 15-14-17-17-22-22 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (stillið af að næsta umferð sé oddatölu umferð í mynsturteikningu), fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-3-3-4-5-6 lykkjur á undan fyrsta prjónamerki, fellið af 6-6-6-8-10-12 lykkjur, prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-5-6 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-6-6-8-10-12 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 85-93-99-107-115-123 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur eins og áður (kaðlar eru fléttaðir í hverri umferð frá réttu). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-3-5-5 sinnum og 1 lykkja 4-4-5-4-3-3 sinnum = 69-77-81-87-89-97 lykkjur. Haldið áfram með A.2 eins og áður með 4-3-5-3-4-3 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 42-43-46-47-47-50 cm, endið eftir 2. eða 10. umferð í A.2. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 27-27-27-29-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 19-23-25-27-28-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 85-93-99-107-115-123 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Setjið nú miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 19-23-25-27-28-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 56-58-60-60-62-64 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 30-29-27-28-25-27 cm frá uppfijtunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 5-6-7-10-11-13 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-45-44-44-42-41 cm. Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur og prjónið sléttprjón út umferðina. Prjónið síðan ermakúpuna fram og til baka á hringprjón 5 þannig: Prjónið sléttprjón og fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til ermin mælist 53-53-52-52-52-51 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 54-54-53-53-53-52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 78-78-80-82-84-84 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 98-98-100-102-106-106 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn þar til kanturinn í hálsmáli mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og fellið af aðeins laust. Brjótið kantinn í hálsmáli niður að innanverðu á stykki. Saumið kantinn niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnsessencesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.