Karin skrifaði:
Hej! Jag tror d har kommit in ett fel.. sticka de sista 89-99-106-119-127-140 maskorna i slätstickning. Fram- och bakstycke och ärmar stickas sedan var för sig. .. Sen så står d ju på storlek M..att fram o bakstycke ska vara 222 m.. Så d ska nog stå 103 där d står 99 på storlek M Säkert bara ett tryckfel..😊
10.03.2024 - 08:24
Yvonne skrifaði:
Hallo Drops Team, gleich eine Frage zur Passe. Folge der Diagramme in Kurzform : A1, A2,A3,A4,A2,A1,A5 dann wieder A1,A2,A3,A4,A2,A5 so im Text Gehört hier zwischen A2 und A5 ebenfalls auch noch A1? Sonst bleibt mir ja gleich 1 Masche übrig! Wenn ja müsste diesbezüglich Anleitung korregiert werden. Viele Grüße
17.08.2023 - 20:10DROPS Design svaraði:
Liebe Yvonne, für Die Ärmel strickt man: A.1, A.2, A.3 und für Rücken bzw Vorderteil stricken Sie: A.4, A.2 (3 oder 4 Mal), A.5 so haben Sie 21 M in S z.B. für Die Ärmel und 39 M für Vorder- und Rückenteil (und dann 120 M insgesamt). Viel Spaß beim stricken!
18.08.2023 - 08:39
Jennifer Carvalho skrifaði:
What does it mean "this is no stitch, go to next symbol". What do you do? Do we leave that stitch alone?
04.04.2023 - 23:59DROPS Design svaraði:
Hi Jennifer, This means the next stitch on the round is worked according to the next symbol (the blank square is ignored). Happy Easter!
05.04.2023 - 06:46
Charlotte Lützen skrifaði:
Undskyld. Jeg troede ikke den første besked var gået igennem. Tak for hurtig respons og god weekend 🧶😊☀️
22.04.2022 - 14:13
Charlotte Lützen skrifaði:
Hej igen. Det ser ud til at der er forskel i den danske og engelske opskrift. Den sorte markering i den engelske siger at masken ikkecskal strikkes. I den danske står der at der skal slåes en maske op??? Mvh Charlotte
22.04.2022 - 13:09DROPS Design svaraði:
Hej igenigen :) Det er blevet rettet :)
22.04.2022 - 13:55
Charlotte Lützen skrifaði:
Hej. Der er forskel i den dansk og den engelske udgave. Den sorte markering står i den engelske som om man ikke skal strikke den. I den danske står der at man skal lave et opslag og strikke det drejet på næste omgang. Så der ikke kommer hul ???
22.04.2022 - 10:50DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, tak for information, det er rettet :)
22.04.2022 - 12:37
Charlotte Lützen skrifaði:
Hej. \r\nJeg har strikket mønsterdelen på bærestykket og har nu 236 m. I opskriften står der at jeg skal have 208???\r\nJeg har taget 12x8 m ud i raglanen =96 m + de 140 m fra start = 236 m. Hvad har jeg overset i opskriften?\r\nMvh Charlotte Lützen
21.04.2022 - 10:07DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, har du trukket maskerne fra som er taget ind ifølge diagram A.2, A.3 og A.5? I A.2 har du 8 masker istedet for 10 masker. Og i A.3 og A.5 har du taget 2 masker ind i hvert diagram :)
22.04.2022 - 10:31
Hanne skrifaði:
Hej, prøv liiige at tjekke tjekke tallene, når diagrammerne A1-A5 er strikket i højden giver det 206 og ikke 208, der bliver taget 8 masker ind på hver 2. omgang og det kan aldrig give 208 men 206, ellers en fin opskrift PS også de andre tal i,op Mvh Hanne
01.04.2022 - 12:57
Janice Hansen skrifaði:
Summer cloud
13.03.2022 - 23:14
Lost in the Sky Top#lostintheskytop |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með ¾ löngum ermum úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-48 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. LASKALÍNA: Aukið út á undan/á eftir lykkju með prjónamerki í. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 120-120-120-140-140-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.1 (setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju), A.2, A.3 (setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju – lykkjur á milli þessa 2 prjónamerkja tilheyra hægri ermi), A.4, prjónið A.2 alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, A.5 (þessi prjónamerki tilheyra framstykki), A.1 (setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju), A.2, A.3 (setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju – lykkjur á milli þessa 2 prjónamerkja tilheyra vinstri ermi), A.4, A.2 er prjónað alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, A.5 (þessi prjónamerki tilheyra bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur – þær 4 lykkjur með prjónamerki merkja laskalínu. Nú eru prjónaðar 2 umferðir, skiptið yfir á stuttan hringprjón 3, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 192-192-192-208-208-208 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur – að auki er prjónað A.6 mitt á hvorri ermi – lykkja með stjörnu í A.6 á að passa við lykkju með stjörnu í A.2. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (8 lykkjur fleiri – ATH: Útaukning á undan fyrsta prjónamerki verður að gera í lok umferðar). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-20-24-27-30-35 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 320-352-384-424-448-488 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-21-23-25-27-30 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram án útaukninga að réttu máli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2-4-3-2-4-7 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 69-73-83-91-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-103-109-121-131-147 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 69-73-83-91-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 89-99-106-119-127-140 lykkjur í sléttprjóni. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 198-222-238-262-286-318 lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki að miðju í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi – umferðin byrjar hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 22-21-21-21-21-20 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-24-26-28-32 lykkjur jafnt yfir = 218-244-262-288-314-350 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 69-73-83-91-93-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-81-93-101-105-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn, en haldið áfram með A.6 mitt á ermi eins og áður. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1-1-1 cm millibili alls 6-8-10-14-12-14 sinnum = 65-65-73-73-81-81 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 24-22-21-19-17-15 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 9 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd áður en kanturinn er prjónaður. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað eru m 1 lykkju mitt undir ermi (á hægri ermi eru 2 síðustu lykkjur í umferð prjónaðar snúnar slétt saman, á vinstri ermi eru 2 fyrstu lykkjur í umferð prjónaðar snúnar slétt saman) = 64-64-72-72-80-80 lykkjur. Prjónið A.7 alls 8-8-9-9-10-10 sinnum hringinn á ermi – A.7 á að passa fallega yfir A.6 mitt á ermi. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Haldið áfram með stroff yfir lykkjur í A.7 með 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkju brugðið. Þegar stroffið mælist 1 cm (mælt eftir A.7), aukið út fjórða hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið (þ.e.a.s. 8. hver lykkja er aukin út til 2 lykkjur brugðið) = 72-72-81-81-90-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm, aukið út alveg eins, en færið útaukninguna til þannig að ekki sé aukið út þar sem nú þegar hefur verið aukið út = 80-80-90-90-100-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3½ cm, aukið út alveg eins, en færið útaukninguna að næstu 1 lykkjur brugðið = 88-88-99-99-110-110 lykkjur og þegar stroffið mælist 5 cm, aukið út afgang af 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið = 96-96-108-108-120-120 lykkjur. Fellið aðeins laust af þegar stroffið mælist 6 cm. Ermin mælist ca 33-31-30-28-26-24 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lostintheskytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-48
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.