DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lost in the Sky Cardigan

Prjónuð peysa með ¾ löngum ermum úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-47
DROPS Design: Mynstur z-954
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 6205, ljós blár

DROPS TALA NR 521: 7-7-7-7-8-8 st.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ S - M:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ L - XL - XXL - XXXL:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 til A.7). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT (ofan frá og niður):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 5 lykkjur eins og áður. Snúið stykkinu, prjónið fyrstu 5 lykkjur eins og áður, prjónið uppsláttinn slétt saman með næstu lykkju þannig að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-8-7-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 137-137-137-159-159-159 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1, A.2, A.3 (þessar lykkjur tilheyra vinstra framstykki), prjónið A.4 (setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í A.4), A.2, A.5 (setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í A.5 – lykkjur á milli þessa 2 prjónamerkja tilheyra ermi), A.6, A.2 er prjónað alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, A.3 (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), A.4 (setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju), A.2, A.5 (setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju – lykkjur á milli þessa 2 prjónamerkja tilheyra ermi), A.6, A.2, A.7 (þessar lykkjur tilheyra framstykki).

Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – þær 4 lykkjur með prjónamerki merkja laskalínu og eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu.
Nú eru prjónaðar 2 umferðir fram og til baka, skiptið yfir á stuttan hringprjón 3, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1 til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 209-209-209-229-229-229 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka, en 8-8-8-10-10-10 ystu lykkjur í hvorri hlið halda áfram eins og áður (kantar að framan) – að auki er prjónað A.8 mitt á hvorri ermi – lykkja með stjörnu í A.8 á að passa við lykkju með stjörnu í A.2.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út fyrir laskalínu í hverri umferð alls 16-20-24-27-30-35 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 337-369-401-445-469-509 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-21-23-25-27-30 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram án útaukninga að réttu máli.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 54-60-63-70-75-82 lykkjur, setjið næstu 69-73-83-91-93-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-103-109-121-131-147 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 69-73-83-91-93-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 54-60-63-70-75-82 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 215-239-255-283-307-335 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 8-8-8-10-10-10 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður.
Þegar stykkið mælist 22-21-21-21-21-20 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-24-26-28-30-34 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 237-263-281-311-337-369 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 9-9-9-11-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður.
UMFERÐ 2 (rétta): 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9-9-9-11-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 69-73-83-91-93-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-81-93-101-105-109 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn, en haldið áfram með A.8 mitt á ermi eins og áður.
Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1-1-1 cm millibili alls 6-8-10-14-12-14 sinnum = 65-65-73-73-81-81 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 24-22-21-19-17-15 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd áður en kanturinn er prjónaður.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað eru m 1 lykkju mitt undir ermi (á hægri ermi eru 2 síðustu lykkjur í umferð prjónaðar snúnar slétt saman, á vinstri ermi eru 2 fyrstu lykkjur í umferð prjónaðar snúnar slétt saman) = 64-64-72-72-80-80 lykkjur. Prjónið A.9 alls 8-8-9-9-10-10 sinnum hringinn á ermi – A.9 á að passa fallega yfir A.8 mitt á ermi.
Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5.
Haldið áfram með stroff yfir lykkjur í A.9 með 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkju brugðið.
Þegar stroffið mælist 1 cm (mælt eftir A.9), aukið út fjórða hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið (þ.e.a.s. 8. hver lykkja er aukin út til 2 lykkjur brugðið) = 72-72-81-81-90-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm, aukið út alveg eins, en færið útaukninguna til þannig að ekki sé aukið út þar sem nú þegar hefur verið aukið út = 80-80-90-90-100-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3½ cm, aukið út alveg eins, en færið útaukninguna að næstu 1 lykkjur brugðið = 88-88-99-99-110-110 lykkjur og þegar stroffið mælist 5 cm, aukið út afgang af 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið = 96-96-108-108-120-120 lykkjur.
Fellið aðeins laust af þegar stroffið mælist 6 cm. Ermin mælist ca 33-31-30-28-26-24 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = snúin lykkja slétt frá réttu, snúin lykkja brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = þetta er engin lykkja, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lykkja með stjörnu í A.8 á að passa yfir lykkju með stjörnu í A.2
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-47

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Oriana wrote:

Grazie per la cortese risposta, proverò. Oriana

28.03.2024 - 21:19

country flag Oriana wrote:

Buongiorno, mi piace molto questo modello, xo' non ho mai lavorato dall'alto in basso. Esiste la versione per poterlo lavorare dal basso in alto? Grazie

21.03.2024 - 14:54

DROPS Design answered:

Buonasera Oriana, non esiste nessuna tecnica per lavorare dall'alto in basso, deve semplicemente seguire le istruzioni. Buon lavoro!

28.03.2024 - 19:27

country flag Ingrid Ehret wrote:

Hallo, verstehe es nicht ganz, also ich schlage die Maschen an, stricke die Rückreihe linkge Maschen, dann beginne ich mit der Einteilung und Muster, und dann nach den ersten zwei Musterreihen, das heisst also die dritte Musterreihe mit der Nadel Nr. 3 stricken .. Ist das so richtig. Also nicht erst wenn der Glatt rechte Teil beginnt mit Nadeln nummer 3 weiter glatt rechts stricken. Liebe Grüsse auf baldige Antwort. Ingrid Ehret

20.10.2023 - 15:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, nein nicht genau, es wird dann insgesamt 3 Reihen mit den kleineren Nadeln gestrickt: 1 Rückreihe links + die 2 ersten Reihen mit Muster: Wenn 2 Reihen hin- und zurückgestrickt wurden, zu Rundnadel Nr. 3 wechseln.. Viel Spaß beim stricken!

20.10.2023 - 15:59

country flag Ingrid Ehret wrote:

Wann wechsele ich zur Nadel Nummer 3, so wie ich es verstehe in der 3. Reihe von Muster A 1, A 2, A 3 oder werden die Muster dzu Ende gestrickt (26 Reihen) und dann zur 3 er Nadel gewechselt ? Also nochmal, die ersten beiden Musterreihen mit 2,5 Nadel und dann weitter mit 3 er Nadeln. ? Bitte um baldige Antwort, da ich stzricken möchte.

20.10.2023 - 13:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, wechseln Sie für die Nadeln Nr 3 nachdem die 2 ersten Reihen gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

20.10.2023 - 14:15

country flag Sissel wrote:

Hei! Jeg får ikke antall oppleggsmasker til å stemme, str M!!! Jeg legger opp 137 m og regnet ut : venstre og høyre forstykker = 28 m x 2 =56m, ermer 19 m x2 = 38m, og ryggstykke 41 m = totalt 135 m (pluss 2x2 raglan m) dette blir 139m. Beklager, men hva gjør jeg feil?

17.08.2023 - 20:14

DROPS Design answered:

Hej Sissel A.1 = 10, A.2 = 10, A.3 = 8, A.4 = 2, A.2 = 10, A.5 = 9, A.6 = 1, A.2 = 10 x 3 = 30, A.3 = 8, A.4 = 2, A.2 = 10, A.5 = 9, A.6 = 1, A.2 = 10, A.7 = 17. = 137 masker

18.08.2023 - 12:02

country flag Beata wrote:

Co to znaczy "brak oczka, przejść bezpośrednio do kolejnego symbolu w schemacie"? Czy mam je przełożyć na drut bez przerobienia?

13.05.2023 - 23:45

DROPS Design answered:

Witaj Beato, nie przekładasz oczka, tylko przerabiasz to oczko jak pokazuje kolejny symbol w schemacie. Pozdrawiamy!

14.05.2023 - 09:52

country flag Birgitta Olsson wrote:

Håller på med oket. Har stickat första varvet A1, A2, A3, A4, A2 4 ggr, A3, AA5, A6, A2 och A7. I vilken ordning ska jag sticka varvet tillbaka? Birgitta

19.04.2023 - 19:40

DROPS Design answered:

Hei Birgitta. Da strikker du slik at A.1 kommer over A.1, A.2 over A.2, A.3 over A.3 osv. Og husk når du strikker frem og tilbake, vil annenhver pinne strikkes fra retten og annenhver pinne strikkes fra vrangen. Siden diagrammet viser alle masker sett fra rettsiden, må det derfor strikkes motsatt når det strikkes fra vrangen, du leser da raden fra venstre mot høyre, rettmasker strikkes vrang, vrangmasker strikkes rett (dette står i symbolforklaringen: «rett fra rettsiden, vrang fra vrangsiden»). mvh DROPS Design

24.04.2023 - 11:40

country flag Monica wrote:

Fråga om raglan ökningarna. Öka 1 maska på varje sida av maskorna med markör i genom att göra 1 omslag om stickan. På nästa varv (avigsidan) stickas omslagen vridet aviga, så att det inte blir hål. Om jag glömt att sticka omslaget vridet på avigsidan, har det någon betydelse för storleken? Stickar den i bomullsgarn så jag tycker inte att det gör något om det blir hål.

11.04.2023 - 19:29

DROPS Design answered:

Hei Monica Nei, har ingen innvirkning på størrelsen (om det ikke har blitt et veldig stor hull). Men om det er bare et sted du glemte å stikke vridd, så blir det kanskje litt merkelig at det er et hull på den ene siden og ikke på den andre siden, men har du gjort det på alle steder du har økt, vil du bare få et ekstra hullmønster ved raglanslinjen :) mvh DROPS Design

17.04.2023 - 11:37

country flag Maj Banner wrote:

Hei, prøver å lese dette mønsteret, og det jeg lurer på erom det er 8 eller 5 masker til stolpene? Og strikkes stolpene med 1 rett og 1 vrang..Litt forvirret her, så jeg håper dere kan hjelpe meg med dette..På forhånd tusen takk..Hilsen Maj Banner..Runcorn..Cheshire, England..

21.02.2023 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Maj. Det kommer på hvilken str. du strikker. De 3 minste str har de 8 første maskene til stolpen og de 3 største str har 10 første maskene til stolpen (i A.1, se riktig diagram til riktig str) i den ene siden. På den andre siden er det de 8 og 10 siste maskene i diagram A.7. Se tekst forklaringen til diagrammene hvordan det strikkes (de 3 øverste ikonene). mvh DROPS Design

28.02.2023 - 19:25

country flag Ingrid Ehret wrote:

Hallo, es geht hier nicht um die Maschenzahl bei Ende des Diagrammes, sondern die Einteidlung der 19. Reihe stimmt nicht mit der vorhergehenden Reihe überein. Bitte überprüft dies doch mal und zählt die Maschen die 19. Reihe passt nicht auf die 18. Reihe (jeweils Vorderseitenreihen). Ich bitte um baldige Antwort da ich weiterstricken möchte. Liebe Grüse Ingrid Ehret

22.09.2022 - 14:10