Lena Webeck skrifaði:
Fråga om att läsa mönstret? Eftersom tecknen ligger på linje och ej i ruta är det svår att veta, hur många maskor efter ett tecken? T.e.x varv 5, hur många maskor efter på a1, xl ska stickas slätstickning? Hur många maskor på rad 19 på A1,xl mellan tecknen?
09.05.2022 - 14:29DROPS Design svaraði:
Hej Lena. På varv 5, diag A.1 (L-XL) så är det 7 maskor efter det andra omslaget, på varv 19 är 6 maskor mellan tecknen. Mvh DROPS Design
10.05.2022 - 13:41
Frankie McKenna skrifaði:
I get it now! Thank you so very much from a Happy Knitter Can’t wait to wear it!
13.04.2022 - 17:48
Leontine skrifaði:
Bij het telpatroon staat bij het hokje met gesloten rondje: ...brei de omslag op de volgende naald gedraaid; zodat er een gaatje ontstaat. Er wordt vast bedoeld: zodat er GEEN gaatje ontstaat.
11.04.2022 - 22:26
Frankie McKenna skrifaði:
Please can you explain in writing for me the first 8 lines of the lace pattern? Like knit 2 yarn over needle. Etc etc Then I can follow how to lace holes I have tried 6 times Thank you very much for help
11.04.2022 - 18:22DROPS Design svaraði:
Dear Frankie, Round 1 (the amount of repeats will depend on the size and the gauge): k2, 1YO, k1, 1YO, k7. Repeat this the whole round. Round 2: Knit the whole round, the yarn overs are knitted twisted. Round 3: k2, k2tog, 1 YO, k8. Repeat this the whole round. Round 4: Knit the whole round, the yarn overs are knitted to leave holes. Round 5: k2, 1 YO, sl1, k2tog, psso, 1 YO, k7. Repeat this the whole round. Round 6: Knit the whole round, the yarn overs are knitted to leave holes. Round 7: k2, k2tog, 1 YO, k8. Repeat this the whole round. Round 8: k3, work k1, 1 YO, k1 in the same yarn over of the previous row, k8. Repeat this the whole round. Happy knitting!
12.04.2022 - 18:08
Pia Kjærgaard skrifaði:
Jeg kan ikke få A1 til at passe. Er der ikke en fejl i diagrammet til den største størrelse. Der bliver flere masker mellem 2 og 3 mønster,men der er ikke vist hvordan/hvor der skal tages ud? Der er bare vist at der bliver en maske mere, men jeg kan ikke se hvor jeg skal tage den ud?
09.04.2022 - 09:59DROPS Design svaraði:
Hei Pia. Oppskriften er oversendt til design avd for en dobbeltsjekk, og som evnt vil komme med en rettelse, men det ser ut som økningen som vises i diagrammet på rad 30 skulle ha vært flyttet opp til rad 34. mvh DROPS Design
19.04.2022 - 08:43
Kiki skrifaði:
Soft touch
18.01.2022 - 20:24
Drahomíra Rezlerová skrifaði:
Jarní láska
16.01.2022 - 16:45
Sommarfin Sweater#sommarfinsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-36 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-93-96-102-105-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 0-7-4-8-5-12 lykkjur jafnt yfir = 90-100-100-110-110-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú A.1 alls 9-10-10-11-11-12 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Það eiga að vera ca 3½-3½-4½-4½-5½-5½ cm á milli gatamynstra á hæðina, ef prjónfestan á hæðina passar ekki alveg, þá er hægt að jafna hana til með því að prjóna fleiri eða færri umferðir í sléttprjón á milli hverra gatamynstra á hæðina. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 216-240-260-286-308-336 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 17-17-19-19-21-21 cm frá prjónamerki. Prjónið nú A.2 alls 18-20-20-22-22-24 sinnum á breiddina. Haldið svona áfram með mynstur. Það eiga að vera ca 3½-3½-4½-4½-5½-5½ cm á milli gatamynstra á hæðina, ef prjónfestan á hæðina passar ekki alveg, þá er hægt að jafna hana til með því að prjóna fleiri eða færri umferðir í sléttprjón á milli hverra gatamynstra á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Haldið áfram með A.2 eins og áður, en einungis er prjónað gatamynstur yfir lykkjur ef allt gatamynstrið gengur jafnt upp á breiddina, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið A.2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið fyrstu 8-11-12-3-3-9 lykkjur í A.2, setjið næstu 44-50-54-59-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-9-9-10 lykkjur undir ermi, hoppið yfir fyrstu 4-1-1-10-11-5 lykkjur í A.2 og prjónið síðustu 8-11-12-3-3-9 lykkjur í A.2, prjónið A.2 alls 4-4-4-6-6-6 sinnum, prjónið fyrstu 8-11-12-3-3-9 lykkjur í A.2, setjið næstu 44-50-54-59-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-9-9-10 lykkjur undir ermi, hoppið yfir fyrstu 4-1-1-10-11-5 lykkjur í A.2 og prjónið síðustu 8-11-12-3-3-9 lykkjur í A.2 og prjónið A.2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 146-158-170-186-198-224 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 alls 3-3-3-3-3-4 sinnum, 1-7-7-15-15-0 lykkjur sléttprjón, A.2 alls 6-6-6-6-6-8 sinnum, 1-7-7-15-15-0 lykkjur sléttprjón, A.2 alls 3-3-3-3-4 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 28-31-34-36-39-43 lykkjur jafnt yfir = 174-189-204-222-237-267 lykkjur. Prjónið síðan stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-50-54-59-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-9-9-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-59-63-68-73-76 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.2 eins og áður. Þ.e.a.s. prjónið A.2 alls 3-4-4-5-5-4 sinnum yfir miðju lykkjur og 17-11-11-3-3-20 lykkjur í sléttprjóni undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í 5. lykkju af 9-9-9-9-9-10 lykkjum undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þessa lykkju. Haldið áfram með A.2 eins og áður, en einungis er prjónað gatamynstur yfir lykkjur ef allt gatamynstrið gengur jafnt upp á breiddina, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 6-3½-3-2-1½-1½ cm millibili alls 4-6-7-9-11-12 sinnum = 45-47-49-50-51-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-27-26-24-22 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 9-10-11-10-9-11 lykkjur jafnt yfir = 54-57-60-60-60-63 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 7 cm. Ermin mælist alls 36-35-34-33-31-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sommarfinsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.