DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shy Daisy Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með útsaumuðum blómum. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-33
DROPS Design: Mynstur me-243
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 07, ljós brúnn

Í blómin höfum við notað:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 01, natur
50 g litur 16, ljós bleikur

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

NÁL: Fyrir útsaum.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 129 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 127 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 33) = 3,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Frágangur á stykkinu er útskýrður í uppskrift. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kanta við miðju að framan. Að lokum eru blóm saumuð út á framstykkin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 129-139-149-163-179-195 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með litnum ljós brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 33-35-37-41-45-49 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 96-104-112-122-134-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið nú sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-3-4-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 90-98-104-112-122-132 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu, heldur úrtakan áfram fyrir handveg í hvorri hlið þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til eftir eru 6-6-6-7-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= í hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-8-10-12 sinnum = 84-88-92-96-102-108 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-24-25-27-29-32 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 65-69-75-81-89-97 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Nú er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-19-21-23 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 49-53-57-62-68-74 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Prjónið nú sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handvegi – lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, síðan í annarri hverri umferð 19-18-18-17-17-16 sinnum og í 4. hverri umferð 2-3-4-5-6-7 sinnum.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-3-4-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu, fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið þannig: Prjónið þar til eftir eru 6-6-6-7-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= í hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-8-10-12 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 21-23-24-26-28-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 65-69-75-81-89-97 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Nú er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-19-21-23 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 49-53-57-62-68-74 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Prjónið nú sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handvegi – lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið þar til 6-6-6-7-7-7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, síðan í annarri hverri umferð 19-18-18-17-17-16 sinnum og í 4. hverri umferð 2-3-4-5-6-7 sinnum.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-3-4-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu. Fækkið lykkjum fyrir handveg þannig: prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= í hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-8-10-12 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 21-23-24-26-28-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 70-72-74-76-80-82 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum ljós brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið A.1 umferðina hringinn í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-18-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 10-10-10-9-9-7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3½-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 10-11-13-14-16-17 sinnum = 72-76-82-86-92-96 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 46-45-45-44-42-41 cm. Í næstu umferð eru felldar af 6-6-8-10-12-14 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. 3-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 66-70-74-76-80-82 lykkjur.
Prjónið síðan ermakúpu í sléttprjóni fram og til baka, jafnframt eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 6-5-4-8-8-9 sinnum, 1 lykkja 0-1-1-2-3-4 sinnum og 3 lykkjur 3-4-5-2-2-1 sinnum = 24-24-26-28-30-32 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist alls 53-53-53-53-52-52 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpu við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn á ermi og innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður – skiljið e.t.v. eftir smá klauf 6 cm (jafn langa og stroffið neðst).

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Setjið eitt prjónamerki mitt aftan í hnakkann.
Byrjið frá réttu með DROPS Merino Extra Fine og hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 173 til 203 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón frá neðst á fram- og bakstykki og upp að prjónamerki í hnakka. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1.
Snúið og prjónið stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón, jafnframt er aukið út nákvæmlega þar sem V-hálsmál byrjar með því að prjóna þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram fram og til baka (útaukningin er einungis gerð í fyrstu umferð).
Þegar kantur að framan mælist 3 cm, fellið af fyrir 4 hnappagötum í hægri kanti að framan. Efsta hnappagatið á að vera staðsett ca 1 cm fyrir neðan þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði og neðsta hnappagatið á að vera staðsett ca 6 cm frá neðri kanti.
1 HNAPPAGAT = Fellið af 1 lykkju brugðið í brugðinni einingu frá réttu (fellið af aðeins fast) og fitjið síðan upp 1 nýja lykkju yfir lykkjuna sem var felld af í næstu umferð.
Prjónið síðan stroff þar til stroffið mælist alls 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu með DROPS Merino Extra Fine og hringprjón 3,5 og prjónið upp jafnmargar lykkjur og á hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju garðaprjón frá prjónamerki aftan í hnakka og niður neðst á fram- og bakstykki.
Snúið og prjónið stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón, jafnframt er aukið út nákvæmlega þar sem V-hálsmál byrjar með því að prjóna þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri).
Haldið svona áfram fram og til baka þar til kantur að framan mælist 6 cm (útaukning er einungis gerð í fyrstu umferð).
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Saumið saman kanta að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

ÚTSAUMUR:
Nú eru saumuð út 4 blóm á hvort framstykki.
Saumið blómin út í röð / línu ca 4 til 5 cm frá skiptingunni á milli framstykkis og kant að framan.

BLÓM:
Byrjið á að sauma út leggsaumshnút með litnum natur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturtexta – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 0,5 til 1 cm að þvermáli.
Þetta er miðjan á blóminu.
Síðan eru saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum ljós bleikur – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturtexta, það á að sauma út 5 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1-1,5 cm langt. Klippið þræðina og festið.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = Leggsaumshnútur mynd 1-4.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem leggsaumshnúturinn á að byrja.
MYND 2: Stingdu nálinni niður í stykkið og út aftur að röngu ca 0,5 – 1,5 lykkju frá gati þar sem þráðurinn kom upp.
MYND 3: Saumaðu upp og niður í þessi göt eins mörgum sinnum og þörf er á til að hnúturinn verði í óskaðri stærð.
MYND 4: Leggsaumshnútur. Festu þræðina frá röngu.
symbols = Keðjusaumur - einfaldur mynd 1-6.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að keðjusaumurinn byrji.
MYND 2: Stingdu nálinni aftur niður í sama gat og þráðurinn kom frá og stingdu toppnum á nálinni aftur upp í framhliðina ca 2 cm lengra fram – láttu þráðinn liggja undir toppnum á nálinni.
MYND 3: Dragðu nú nálina í gegnum stykkið og þá myndast lykkja með þræðinum sem kemur upp í miðju á lykkju.
MYND 4: Stingdu nálinni niður í stykkið ca 0,5 lykkju framan við bogann og dragðu nálina í gegnum stykkið.
MYND 5: Keðjusaumurinn er nú tilbúinn, ef þú vilt hafa fleiri spor þá er hægt að endurtaka mynd 1. Festu þráðinn frá röngu.
MYND 6: Hér sýnum við keðjusaum sem snýr lóðrétt, lárétt og frá hlið og nokkrir byrja frá sama gati og aðrir byrja frá sitt hvoru gatinu.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Mary wrote:

This pattern of drops design could be explained more clearly without mentioning the garter stitch every line. Also explain that you are working the V neck and cast off for sleeve at same time. Not an easy pattern to follow. Sorry but that is my opinion . Have been knitting over 50 years.

04.04.2024 - 04:59

country flag Anna wrote:

Die Zunahmen der Blenden soll man beide Male ab Beginn des V-Ausschnittes stricken. Dann würden sie aber bei der linken Blende oberhalb und bei der rechten unterhalb des Beginns zu liegen kommen, da man die 1. Reihe der linken Blende von unten nach oben und der rechten von oben nach unten strickt.

11.01.2024 - 12:56

DROPS Design answered:

Liebe Anna, die Zunahmen werden bei der 1. Reihe für jede Blende genau bei der 1. Reihe von dem V-Halsauschnitt gestrickt, da die Jacke von unten nach oben gestrickt ward, werden die Zunahmen für die beiden Blenden bei der 1. Abnahmen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

11.01.2024 - 15:43

country flag Chritine wrote:

Je ne trouve pas le diagramme A1 pouvez-vous me l'expliquer. Merci

17.11.2023 - 13:04

country flag Anna wrote:

Wäre es möglich diese Jacke mit einer doppelten Blende zu stricken oder wäre das zu d ick?

29.07.2023 - 16:44

DROPS Design answered:

Liebe Anna, es wäre wahrscheinlich möglich, und natürlich anders aussehen - beachten Sie, daß die Blende hier 6 cm misst. Viel Spaß beim stricken!

31.07.2023 - 10:19

country flag Tina wrote:

Hello where can I find the A.1 diagram for this pattern? It’s not appearing on my end

21.06.2023 - 01:53

DROPS Design answered:

Dear Tina, you will find diagram A.1 on the right side of the body next to measurement chart, under the sleeve, it's a small diagram worked over 2 sts and 4 rows. Happy knitting!

21.06.2023 - 08:10

country flag Moreau Nathalie wrote:

Pourquoi augmenter des mailles a partir du v en tricotant la bande de boutonnage je ne comprends pas

04.01.2023 - 11:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Moreau, on augmente au niveau de l'encolure V pour que la bordure devant soit plus jolie - ces augmentations ne se font qu'au tout premier rang, ainsi la bordure reste bien plate, en suivant l'encolure V. Bon tricot!

04.01.2023 - 14:04

country flag Lisa Engman wrote:

Vid stickning av framkant, ökar man 4 maskor varje varv i fortsättningen?

03.11.2022 - 14:08

DROPS Design answered:

Hej Lisa, du öker bara på första varvet. Vi har gjort ett förtydligande i mönstret. Tack för info :)

04.11.2022 - 13:27

country flag Rebecca wrote:

Hallo, ich kann kein Diagramm A.1 finden. Wurde es vielleicht vergessen? In den Fotos sieht es nach Rippenmuster (1 rechts, 1 links) aus. Wie sollte ich hier stricken? Vielen Dank Rebecca

30.05.2022 - 23:19

DROPS Design answered:

Liebe Rebecca, das Diagram A.1 finden Sie neben der Maßskizze, unter der Ärmel, es wird über 2 Maschen und 4 Reihen gestrickt, es handelt sich um Bündchen (1 Masche rechts verschränkt, 1 Masche links) - von der Vorderseite gesehen. Viel Spaß beim stricken!

31.05.2022 - 08:36

country flag Rebecca wrote:

Thanks for your reply. Do you think it’s possible to adapt this particular pattern to straight needles, I read somewhere that some patterns are more difficult? Thanks Rebecca

26.04.2022 - 09:39

DROPS Design answered:

Dear Rebecca, back and front pieces are worked here back and forth on circular needles to have enough room for all stitches; front bands are also worked back and forth on needle - only sleeves are worked here in the round and this lesson will help you to adapt them on to straight needles. Happy knitting!

26.04.2022 - 10:08

country flag Rebecca wrote:

Hi, my mum is 87 and has never used circular needles, but she would love to knit this pattern Shy Daisy Cardigan in Muscat with straight needles. I’ve seen the really helpful info on converting a pattern to straight needles, but I don’t feel confident or skilled enough to do it and get it right! Do you have a straight needle version already done or that could be done for us please? Many thanks for any help Best wishes Rebecca

25.04.2022 - 23:32

DROPS Design answered:

Hi Rebecca, No, sadly we don't have this pattern adjusted for straight needles. Kind regards, Drops Team.

26.04.2022 - 06:56