Anita Gors skrifaði:
Meerder 4x1 steek aan de halskant? Om de hoeveel nld 2?dank voor uw antwoord
03.09.2024 - 18:18DROPS Design svaraði:
Dag Anita,
Dit doe je steeds om de naald aan de halskant, dus als je de naald begint aan de kant van de hals dan minder je 1 steek en dit doe je 4 keer.
04.09.2024 - 22:12
Margareth Byman skrifaði:
Hei. Bare lurer på hvilken pinnestørrelse det er meningen å bruke for å teste strikkegastheten?
12.06.2024 - 11:17
Corina Avram skrifaði:
Thank you for the answer. I am also thinking of making the cardigan a bit longer, say 4cm extra. Would I be able to follow the same pattern for my size?
15.12.2023 - 16:36DROPS Design svaraði:
Dear Corina, you can lengthen the piece but, since this is a bottom up pattern, instead of adding the 4cm when finishing the garment (which would be the yoke in this case) you should add the 4cm before starting the armholes. Once you have the desired length of the body piece you can start working the armholes and yoke as explained there. Happy knitting!
17.12.2023 - 18:10
Corina Avram skrifaði:
Hello! If I make this pattern in Snow (yarn requirement adjusted), can I cast on the same number of stitches mentioned in the pattern? Thanks
15.12.2023 - 14:26DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Avram, the tension would be the same if you work with 1 strand DROPS Snow (yarn group E) or with 2 strands Brushed Alpaca Silk, ie 10 sts x 14 rows stocking stitch = 10 x 10 cm, adjust needle size if needed and then just work the pattern as stated. Happy knitting!
15.12.2023 - 15:42
Wilma skrifaði:
Apricot summer
18.01.2022 - 08:18
Dianne skrifaði:
Orange Twist
17.01.2022 - 22:35
Dianne skrifaði:
Orange Twist
17.01.2022 - 22:34
Maggie's Bricks Cardigan#maggiesbrickscardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed AlpacaSilk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með mynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-29 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 15, 25, 35 og 45 cm M: 6, 16, 26, 36 og 47 cm L: 6, 14, 22, 30, 39 og 48 cm XL: 6, 14, 23, 32, 41 og 50 cm XXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 51 cm XXXL: 6, 15, 24, 33, 43 og 53 cm ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 2 lykkjur mitt að framan: Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. ATH! 1 lykkja í garðaprjóni og 2 lykkjur sléttprjón halda áfram við miðju að framan þar til öxlin hefur verið prjónuð til loka. Þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í mynstri eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 55-59-65-69-79-83 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-60-68-72 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 42-46-50-54-62-66 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú eru felldar af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju – sjá ÚRTAKA = 12-14-15-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 34-36-38-40-44-48 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þráð DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 5-5-5-5-5-7 lykkjur jafnt yfir = 29-31-33-35-39-41 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan A.1 með 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 3 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu fyrir handveg = 26-28-30-32-36-38 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið nú ystu 10-10-11-11-12-12 lykkjur fyrir miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá hálsi þannig: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 12-14-15-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 34-36-38-40-44-48 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þráð DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 5-5-5-5-5-7 lykkjur jafnt yfir = 29-31-33-35-39-41 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan A.1 með 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 3 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu fyrir handveg = 26-28-30-32-36-38 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið nú ystu 10-10-11-11-12-12 lykkjur fyrir miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá hálsi þannig: Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 12-14-15-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjóna 8 með 2 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þráð DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 9. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 9-8½-8-8-7-7 cm millibili alls 5 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 50-49-48-47-44-43 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 52-51-50-49-46-45 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf 2 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið aðra hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, skiljið eftir neðstu 6 cm = klauf. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að framan og frá réttu og prjónið upp ca 53 til 63 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þráðum) í kringum hálsmál á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Byrjið mitt að framan og frá röngu og prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið af. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maggiesbrickscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.