Corina Avram wrote:
Hello, can this sweater be made with yarn Snow? I am aware that Snow is a bit thicker than 2 strands Brushed Alpaca Silk but I was wondering if the design would still look good. Thanks.
21.01.2024 - 15:27DROPS Design answered:
Dear Corina, yes, you can knit this design with DROPS Snow, which is good alternative for 2 strands Brushed Alpaca Silk or 1 strand Wish. Happy knitting!
21.01.2024 - 16:56Nicola Warnants wrote:
There is a mistake here - wish is yarn group E, not D as stated. Thanks
03.08.2022 - 00:05Mascha wrote:
Was ist die "Magic Loop"-Technik? Gibt es dazu eine Anleitung oder ein Video?
16.04.2022 - 21:52DROPS Design answered:
Liebe Mascha. Hier wird diese Technik erklärt: https://www.garnstudio.com/video.php?id=120&lang=de Viel Spaß beim stricken!
17.04.2022 - 11:13Marisa wrote:
Es correcto el número de puntos que se necesita montar, para el comienzo tanto para la espalda como para el delantero..?
27.03.2022 - 11:51DROPS Design answered:
Hola Marisa, el número de puntos es correcto. Ten en cuenta que la tensión es 10 puntos 10 cm así que la espalda, para la talla pequeña tiene 55 cm (55 puntos).
27.03.2022 - 22:58Josephine wrote:
Orange fire
18.01.2022 - 19:35
Maggie's Bricks |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed AlpacaSilk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-30 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 2 lykkjur mitt að framan: Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. ATH! 1 lykkja í garðaprjóni og 2 lykkjur sléttprjón halda áfram við miðju að framan þar til öxlin hefur verið prjónuð til loka. Þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í mynstri eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 55-59-65-69-79-83 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-60-68-72 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum = 42-46-50-54-62-66 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú eru felldar af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 12-14-15-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmagar lykkjur eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykkið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – sjá ÚRTAKA = 12-14-15-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjóna 8 með 2 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þráð DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 9. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 9-8½-8-8-7-7 cm millibili alls 5 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 50-49-48-47-44-43 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna til loka máls. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 52-51-50-49-46-45 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf 2 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, skiljið eftir neðstu 6 cm = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 44 til 66 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þræði) á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þráð DROPS Wish. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Wendy wrote:
Hi Drops folks! Just wanted to let you know that this pattern is listed on Ravelry as 231-32 instead of 231-30 as it is in your catalog. I was still able to find it by searching for the name of the pattern rather than its catalog number though. Lovely sweater! Thank you! :-)
06.07.2023 - 03:41