Big Sur Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga berustykki, gatamynstri og kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-18 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 prjónamerkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá kanti fyrir uppábrot): S: 6, 16, 26, 35 og 44 cm M: 6, 16, 26, 36 og 46 cm L: 6, 15, 24, 32, 40 og 48 cm XL: 6, 15, 24, 33, 42 og 50 cm XXL: 6, 16, 25, 34, 43 og 52 cm XXXL: 6, 16, 26, 36, 45 og 54 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fram- og bakstykkið og ermar er sett saman fyrir berustykki og lykkjum er fækkað fyrir kant í hálsmáli. Kraginn er prjónaður saman með lykkjum frá kanti í hálsmáli í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 170-178-196-214-240-260 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið kant fyrir uppábrot þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið sléttprjón og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða = 178-186-204-222-248-268 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 4 cm frá kanti fyrir uppábrot, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð er fækkað um 28-28-30-32-38-42 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 150-158-174-190-210-226 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm frá kanti fyrir uppábrot, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 31-33-37-41-46-50 lykkjur sléttprjón, fellið af næstu 8 lykkjur, 62-66-74-82-92-100 lykkjur sléttprjón, fellið af næstu 8 lykkjur og 31-33-37-41-46-50 lykkjur sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar þannig: ERMI: Fitjið upp 48-50-52-52-56-58 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið kant fyrir uppábrot þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá kanti fyrir uppábrot, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn. Í fyrstu umferð er fækkað um 8-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á síðar að auka út hvoru megin við þetta prjónamerki. Þegar ermin mælist 12-12-10-10-8-10 cm frá kanti fyrir uppábrot, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-2-2-1½ cm millibili alls 7-8-10-13-14-14 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-39-39-37-36-34 cm frá kanti fyrir uppábrot, fellið af fyrstu 4 lykkjurnar og síðust 4 lykkjurnar = 46-50-56-62-66-68 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 226-242-270-298-326-346 lykkjur. Stykkið er núna mælt héðan! Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, prjónið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 6-2-0-18-26-26 lykkjur jafnt yfir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 220-240-270-280-300-320 lykkjur. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 alls 21-23-26-27-29-31 sinnum á breiddina og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 178-194-218-226-242-258 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-11-11-12-13-14 cm, prjónið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 alls 21-23-26-27-29-31 sinnum á breiddina og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 136-148-166-172-184-196 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16-18-19-20-22-24 cm, prjónið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 alls 21-23-26-27-29-31 sinnum á breidd og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 94-102-114-118-126-134 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 0-6-14-16-20-24 lykkjur jafnt yfir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 94-96-100-102-106-110 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 19-21-22-24-26-28 cm, endið með 1 umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið kraga þannig: KRAGI: Fitjið upp 259-271-307-331-367-391 lykkjur á hringprjóna 5,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur þannig: A.4a, A.4b alls 20-21-24-26-29-31 sinnum og A.4c. Prjónið síðan A.5a, A.5b alls 20-21-24-26-29-31 sinnum og A.5c. Prjónið A.5 alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.6a, A.6b alls 20-21-24-26-29-31 sinnum og A.6c. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 95-99-111-119-131-139 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Í fyrstu umferð er fækkað um 11-13-21-27-35-39 lykkjur jafnt yfir = 84-86-90-92-96-100 lykkjur. Þegar kraginn mælist 27-27-30-30-37-37 cm, prjónið kragann saman við peysuna frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni á peysu, prjónið fyrstu lykkju frá kraga slétt saman með næstu lykkju frá berustykki, * prjónið næstu lykkju frá kraga slétt saman með næstu lykkju frá berustykki *, prjónið frá *-* þar til síðasta lykkjan frá kraga hefur verið prjónuð saman með lykkju frá berustykki, nú eru eftir 5 kantlykkjur að framan á berustykki, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Þræðið mjóa teygju undir kragann í síðustu umferð á berustykki, áður en kraginn og berustykkið er prjónað saman. Byrjið ca 2 cm inn frá kanti að framan og endið ca 2 cm á undan kanti að framan á gagnstæðri hlið. Þetta er gert til að hálsmálið haldi forminu og teygist ekki þegar flíkin er notuð. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið inn uppábrotin neðst á ermum og fram- og bakstykki að röngu og saumið niður, passið uppá að saumurinn dragi ekki stykkið saman. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Marie Järnroos wrote:
Håller på med denna , efter exakt angivna mått och rekommenderade stickor, ändå räcker inte garnet…storlek M 150 gram . Skulle behövas 175 gram för att få en färdig kofta. Är en van stickare, aldrig varit med om detta tidigare .
09.11.2023 - 16:07Cinna wrote:
Ce gilet à un côté romantique qui me plaît beaucoup !
16.01.2022 - 17:59