Carolyn Frusciante skrifaði:
The neck was so hard to figure out, but after 5 tries I got it. I made it for my sister. She said it was the prettiest cardigan she ever had. Glad I didn't give up.
28.12.2024 - 01:44
Catherine skrifaði:
Bonjour ! Comment vriller les mailles ? A 360 ° ou 180°? Avec une aiguille auxiliaire ? Merci !
07.04.2024 - 18:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, cette vidéo montre comment tricoter la bordure du début. Bon tricot!
08.04.2024 - 08:19
Léone MEUNIER skrifaði:
Bonjour, A la fin du rang de vrilles, il me reste 6 mailles au lieu des 5 que vous indiquez, plus les 5 mailles mousses de bordure. Je crains que cela crée un décalage pour le rang suivant. Je précise que j'ai monté 95 mailles.
21.04.2022 - 17:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Meunier, procédez ainsi: 5 m point mousse, 1 m end, répétez 14 fois la vrille sur 6 mailles (= 14x6= 84 m), il reste 5 mailles, terminez par 5 m point mousse, vous avez ainsi bien: 5+1+84+5=95 mailles. Bon tricot!
22.04.2022 - 07:29
Graziella skrifaði:
Ok allora devo disfare. Grazie! ;-)
11.04.2022 - 21:29
Graziella skrifaði:
Buongiorno, scusate ma chiedo ancora aiuto. Sono arrivata alla fine dello sprone e mi accingo a mettere i segnapunti per aumentare il raglan, ma con la taglia M mi trovo 194 maglie. Ho controllato ogni singola losanga e non mi sembra ci siano errori. Prima di disfare tutto vorrei avere una vostra opinione. Grazie!
11.04.2022 - 13:59DROPS Design svaraði:
Buonasera Graziella, alla fine di A.2 deve avere 196 maglie sul ferro. Buon lavoro!
11.04.2022 - 21:24
Yolanda skrifaði:
Es muy lindo tener la explicación, gracias voy a intentar hacerlo
04.04.2022 - 14:48
Marieke skrifaði:
Klopt de kleur denimblauw? Op de afbeelding linkt het feller, bijvoorbeeld blauw nr 16? Alvast bedankt voor uw reactie
18.03.2022 - 09:35DROPS Design svaraði:
Dag Marieke,
Dankjewel voor het doorgeven, de kleur klopte inderdaad niet en het is nu aangepast!
29.03.2022 - 10:26
Graziella skrifaði:
Grazie, ho capito come fare ma secondo me c’è un errore nella spiegazione: “fino a quando rimangono 5 maglie e 5 maglie per il bordo a maglia legaccio”
15.03.2022 - 23:04DROPS Design svaraði:
Buonasera Graziella, le 5 maglie che rimangono sono quelle per il bordo a maglia legaccio. Buon lavoro!
16.03.2022 - 22:50
Graziella skrifaði:
Ho 89 maglie corrette. Ma perché 11 maglie? Allora alla fine del ferro del punto arrotolato dovrei avere 6 più 5 maglie del bordo. La spiegazione dice che dovrebbero rimanere 5+5 per il bordo. Vi risulta? \r\nGrazie
15.03.2022 - 19:29DROPS Design svaraði:
Buonasera Graziella, se ha 89 maglie, toglie le 10 maglie (5 a ogni lato) del bordo e 1 maglia diritto, ottiene 78 maglie che diviso 6 fanno 13 ripetizioni di 6 maglie. Buon lavoro!
15.03.2022 - 20:59
Graziella skrifaði:
Buonasera, mi trovo in difficoltà. Sto facendo il bordo arrotolato. Ho lavorato 5 maglie a legaccio per il bordo, 1 maglia a diritto e poi sequenze di 6 maglie arrotolate. Ma alla fine del ferro mi trovo con 6 e non 5 maglie più le 5 a legaccio. Mi potete essere di aiuto? Grazie
13.03.2022 - 18:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Graziella, è sicura di avere il numero di maglie corretto sui ferri? Quale taglia sta lavorando? Se si sottrae 11 maglie al numero di maglie di ogni taglia si ottiene un multiplo di 6, quindi il conteggio delle maglie è corretto. Buon lavoro!
15.03.2022 - 18:05
Blue Peacock Cardigan#bluepeacockcardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-30 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroff í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-8½ cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 89-95-95-101-107-113 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 6 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í hvorri hlið. Nú er prjónaður rúllukantur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * snúið lykkjum á hægri prjóni ca 360 gráður þannig: leggið þráðinn framan við stykkið, stingið niður hægri prjóni undir stykkið og upp framan við stykkið, prjónið síðan 6 lykkjur slétt, * prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 91-95-99-103-107-111 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki að innanverðu við kant að framan mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 er prjónað 20-21-22-23-24-25 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Eftir fyrstu umferð í A.1 eru 111-116-121-126-131-136 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið 2 umferðir merktar með stjörnu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.2 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 187-196-205-214-223-232 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.3 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.4 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.5 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 eins og áður og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið – þetta er gert án þess að prjóna lykkjur og prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja þannig: Teljið 32-35-36-37-40-42 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki, teljið 34-34-36-38-36-36 nýjar lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki, teljið 55-58-61-64-71-76 nýjar lykkjur (bakstykki), setjið 3. prjónamerki, teljið 34-34-36-38-36-36 nýjar lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki, það eru 32-35-36-37-40-42 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (framstykki). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), alls 7-9-10-13-14-15 sinnum = 243-268-285-318-335-352 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-44-46-50-54-57 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 69-76-81-90-99-106 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-44-46-50-54-57 lykkjur sem eftir eru (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 159-176-189-206-227-244 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm. Nú eru eftir ca 6 cm til loka máls. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-17-18-21-22-25 lykkjur jafnt yfir = 175-193-207-227-249-269 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð – frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm millibili alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 35-34-33-32-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-40-39-38-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluepeacockcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.