Daiva skrifaði:
I don't understand it says cast on 66 stitches but later in instructions says "* knit 2, purl 2 *, work from *-* over the next 12 stitches, knit 2, * purl 4, knit 2, purl 2, knit 2 *, work from *-* over the next 30 stitches, purl 4, * knit 2, purl 2 *, work from *-* over the next 12stitches" which accounts only for 60 stitches
02.11.2024 - 23:29DROPS Design svaraði:
Dear Daiva, the full round is: "2 stitches in GARTER STITCH, * knit 2, purl 2 *, work from *-* over the next 12-16-16-20-24-28 stitches, knit 2, * purl 4, knit 2, purl 2, knit 2 *, work from *-* over the next 30 stitches, purl 4, * knit 2, purl 2 *, work from *-* over the next 12-16-16-20-24-28 stitches, knit 2 and 2 stitches in garter stitch." So you start with 2 stitches in garter stitch, work rib over 12 stitches, knit 2, work (purl 4, knit 2, purl 2, knit 2) over 30 stitches, purl 4, work rib over 12 stitches, knit 2 and finish with 2 stitches in garter stitch. 2+12+2+30+4+12+2+2 =66 stitches. Happy knitting!
03.11.2024 - 18:44
Sara skrifaði:
Hur stickar jag avigsidorna i resåren på denna modell? Och är avigsidorna med i A1 -diagrammet eller ska de bara stickas med aviga maskor?
18.09.2023 - 15:55DROPS Design svaraði:
Hei Sara. Vrangsiden er med i diagrammet. Det er tegnet slik at flettene strikkes alltid fra retten. Husk å lese diagramteksten, der står det hvordan det strikkes både fra retten og fra frangen (1.ikon = rätmaska från rätsidan, avigmaska från avigsidan. 2. ikon = avigmaska från rätsidan, rätmaska från avigsidan ). mvh DROPS Design
26.09.2023 - 13:07
Katarzyna skrifaði:
Czy mogę zastosować ten wzór w swetrze przerabianym od góry? Chce go dodać do Alamond breeze. Czy przerabiać wtedy zaczynając od góry?
03.09.2022 - 11:25DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu, oczywiście możesz. Schemat będziesz przerabiać wtedy zaczynając od góry, a kończąc na dole. Wydrukuj go sobie i obróć, będzie łatwiej. Pozdrawiamy!
05.09.2022 - 08:35
Grace skrifaði:
Hello, Would you please tell me where A1. repeats? I'm a bit confused. Thank you.
04.03.2022 - 14:29DROPS Design svaraði:
Dear Grace, when you have worked all rows in A.1, just start from 1st row and repeat diagram in height. Can this help? Happy knitting!
04.03.2022 - 16:09
Ineke skrifaði:
Sand waves
18.01.2022 - 14:29
Dianne skrifaði:
Wisteria
17.01.2022 - 22:30
Kathryn Osborne skrifaði:
Spring Twist
17.01.2022 - 17:13
Christeenel skrifaði:
Make a wish!
16.01.2022 - 22:03
Charlaine skrifaði:
"Vent d'hiver"
14.01.2022 - 19:14
Countryside Road#countrysideroadsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-52 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Prjónaðar eru upp lykkjur meðfram handveg, síðan eru ermarnar prjónaðar í hring, ofan frá og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 66-74-74-82-90-98 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-16-16-20-24-28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, * 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 30 lykkjur, prjónið 4 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-16-16-20-24-28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið þannig – frá réttu: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 16-20-20-24-28-32 lykkjur, jafnframt sem fækkað er um 3-4-2-3-4-5 lykkjur jafnt yfir (= 13-16-18-21-24-27 lykkjur sléttprjón), A.1, sléttprjón yfir næstu 16-20-20-24-28-32 lykkjur, jafnframt sem fækkað er um 3-4-2-3-4-5 lykkjur jafnt yfir (= 13-16-18-21-24-27 lykkjur sléttprjón) = 60-66-70-76-82-88 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm. Fellið nú af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið eins og áður út umferðina = 56-62-66-72-78-84 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið miðju 18-20-22-22-24-24 lykkjurnar á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á hverri umferð við hálsmál þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 15-17-18-21-23-26 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. BAKSTYKKI: Fitjið upp 66-74-74-82-90-98 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-16-16-20-24-28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, * 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 30 lykkjur, prjónið 4 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-16-16-20-24-28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón, í fyrstu umferð er fækkað um 14-16-12-14-16-18 lykkjur jafnt yfir = 52-58-62-68-74-80 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm. Fellið nú af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið eins og áður út umferðina = 48-54-58-64-70-76 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af miðju 16-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál = 15-17-18-21-23-26 lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af. Prjónið síðan hina öxlina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlasauminn. Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir 10 cm í hvorri hlið = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 48 til 66 lykkjur með DROPS Wish (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan og deilanlegt með 2) á hringprjón 7 í kringum hálsmál, byrjið efst á öxl. Prjónið stroff (2 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. VINSTRI ERMI: Byrjið innan við 2 lykkjur sem felldar voru af fyrir handveg á framstykki og prjónið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur frá réttu á framstykki og niður meðfram handveg á bakstykki þar sem 2 lykkjur voru felldar af fyrir handvegi. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur í 2 cm, prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 7-6½-6½-6-5½-5½ cm millibili alls 6 sinnum = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-41-40-38-36-35 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af, ermin mælist nú 52-51-50-48-46-45 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið alveg eins og vinstri ermi, en byrjið á bakstykki. Prjónið upp lykkjur meðfram handvegi á bakstykki og niður meðfram handvegi á framstykki þar sem 2 lykkjur voru felldar af fyrir handvegi. FRÁGANGUR-2: Saumið klaufina undir ermi við fram- og bakstykki, þar sem 2 lykkjur voru felldar af í hvorri hlið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countrysideroadsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.