DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stone Island

Prjónuð peysa úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, klukkuprjónslykkjum á ermum, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-51
DROPS Design: Mynstur pu-058
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-750-800-900-950 g litur 04, grábrúnn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 4 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 1,3.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING Á ERMI:
Útaukning er gerð í umferð sem er eins og 2. Eða 4. Umferð í A.1.
Prjónið fram að miðjulykkju á ermi (= lykkja með prjónamerki í), prjónið * 1 lykkja slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju, en bíðið með að sleppa lykkjunni af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum í sömu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 4 lykkjur fleiri í sömu lykkju), lyftið síðan lykkjunni af vinstra prjóni. Endurtakið á hinni erminni. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum í stærð L, XL, XXL og XXXL):
Lykkjum er fækkað svona mismunandi eftir stærðum:
Stærð L og XXXL:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).
Stærð XL og XXL:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur (prjónamerki situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Prjónað er sléttprjón á fram- og bakstykki og áferðamynstur með klukkuprjónslykkjum á ermum.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-108-108-116-116-124 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með DROPS Puna. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið síðan A.1 hringinn. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður hann ca 4 cm.
Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4-6-6-8-8-10 lykkjur og jafnframt út um 3-1-3-1-4-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, prjónið A.2 yfir næstu lykkju, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hálfs bakstykkis og hægri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.1, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), A.3 yfir næstu lykkju, sléttar lykkjur yfir næstu 7-11-11-15-15-19 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-2-5-1-7-5 lykkjur jafnt yfir, A.2 yfir næstu lykkju, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.1, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og hálfs bakstykkis), prjónið A.3 yfir næstu lykkju, sléttar lykkjur yfir næstu 3-5-5-7-7-9 lykkjur og aukið jafnframt út um 2-1-2-0-3-2 lykkjur jafnt yfir =114-116-122-122-134-138 lykkjur.
Nú er 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykkinu). Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju á hvorri ermi (= slétt lykkja).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram hringinn með mynstri A.1 á milli prjónamerkja á ermum og A.2/A.3 + sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á framstykki og bakstykki – JAFNFRAMT í 2. umferð byrjar ÚTAUKNING Á ERMI – sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur fleiri á hvorri ermi). Aukið svona út í 8.-8.-6.-6.-4.-4. hverri umferð alls 6-7-10-11-13-14 sinnum. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynstureiningu við laskalínu 7-8-9-10-11-12 sinnum til viðbótar (alls 8-9-10-11-12-13 sinnum), síðan eru fyrstu 3-3-1-1-0-0 umferðir í mynsturteikningu prjónaðar.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð á ermum, framstykki og bakstykki eru 302-328-366-390-430-458 lykkjur í umferð (það hafa verið auknar út 24-28-40-44-52-56 lykkjur á hvorri ermi og það hafa verið auknar út 35-39-41-45-48-52 lykkjur í hvorri hlið á bakstykki og framstykki). Stykkið mælist nú ca 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki sem var sett eftir kant í hálsmáli. Ef stykkið er styttra en þetta er prjónað áfram með A.1 á ermum og sléttprjón á framstykki og bakstykki að réttu máli.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 44-48-52-56-62-67 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 65-69-81-85-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 86-95-102-110-122-132 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-69-81-85-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-47-50-54-60-65 lykkjur sem eftir eru (= ca hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 190-208-222-242-266-290 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22 cm. Nú er eftir ca 9 cm stroff að loka máli. Prjónið e.t.v. áfram að óskaðri lengd fyrir stroff.
Til að stroffið komi ekki til með að dragast saman, aukið nú út um 20-22-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 210-230-246-270-294-322 lykkjur.
Skiptið stykkinu í hvorri hlið þannig að það verða 105-115-123-135-147-161 lykkjur á bakstykki og 105-115-123-135-147-161 lykkjur á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið síðan hvort stykki fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
Prjónið stroff fram og til baka, en byrjið frá réttu þannig:
1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar kanturinn mælist 9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkju og kantlykkjur í garðaprjóni og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið stroff fram og til baka, en byrjið frá réttu þannig:
1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar kanturinn mælist 9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkju og kantlykkjur í garðaprjóni og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 65-69-81-85-93-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5.
Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-11-13 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 74-78-90-96-104-110 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 eins og áður. Mynstrið á að ganga jafnt upp alla leið umferðina hringinn. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:
Stærð S og M:
Prjónið áferðamynstur hringinn þar til ermin mælist 42-40 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Stærð L, XL, XXL og XXXL:
Prjónið áferðamynstur hringinn þar til ermin mælist 4 cm frá skiptingu. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Í næstu umferð byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-4-4 sinnum = 82-88-96-102 lykkjur. Haldið áfram með áferðamynstur þar til ermin mælist 39-37-36-34 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja
symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-51

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Nurket wrote:

Nå har dere falt en GOD del i verdi! Null tips og hjelp til oppskriftene, og et helvete å finne fram i menyen! Enten får jeg null resultat eller en haug andre forslag og ting som ikke er tips og hjelp i det hele tatt!!!

12.03.2024 - 09:57

country flag Izabela wrote:

Ile trzeba kupić motków na sweter w rozmiarze XL -XXL

19.10.2023 - 13:00

DROPS Design answered:

Witaj Izo, na sweter w rozmiarze XL musisz kupić 800 g włóczki DROPS Puna, czyli 16 motków. Na sweter w rozmiarze XXL będziesz potrzebować 900 g włóczki Puna (18 motków). Pozdrawiamy!

19.10.2023 - 16:14

country flag Liz Perkins wrote:

For anyone making this design, note that approximate tension for English rib is 36 rows measuring 10cm, so 4cm before shaping of underarm ( sizes L, XL, XXL and XXXL) would be 14 rows. This is dependent on individual knitting tension. I hope this helps

10.04.2023 - 22:52

country flag Annie wrote:

Les 40 mailles représentent le dos et le devant où elles sont pour les manches Les explications de partage de l empiècement sont pour moi pas très clair. Je suis désolée mais je ne comprends pas trop bien merci pour votre aide

31.03.2022 - 11:42

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, les manches se tricotent sur 41 mailles: 40 mailles (soit 20 fois les 2 mailles de A.1) + la 1ère maille de A.1 pour que le motif soit symétrique; mettez ensuite un marqueur au milieu de ces 41 mailles soit: 20 m, 1 m avec 1 marqueur, 20 m. Bon tricot!

31.03.2022 - 11:56

country flag Annie wrote:

Bonjour Je ne comprends pas du tout les explications de l empiècement pouvez vous me donner quelques conseils supplémentaires svp merci dans l’attente de vous lire

31.03.2022 - 10:40

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, vous tricotez l'empiècement en rond en commençant au milieu dos, le dos et le devant vont se tricoter en jersey en augmentant à la fin du dos/du devant (A.2) au début du devant/du dos (A.3); en même temps, vous tricotez A.1 sur les manches (nombre impair pour que le motif soit symétrique). Vous avez 4 fils marqueurs (cf ci-dessous) pour bien repérer chaque pièce. Vous augmentez ensuite pour le devant & le dos comme indiqué dans A.2/A.3 et en même temps, augmenter pour les manches dans la maille avec le marqueur (= au milieu de chaque manche) en tricotant 5 fois cette maille. Bon tricot!

31.03.2022 - 11:54

country flag Annie wrote:

Modèle stone island Que voulez vous dire par A2 au dessus de la maille suivante placer un marqueur svp

31.03.2022 - 10:34

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, le 1er rang du diagramme A.2 se tricote sur 1 maille, vous allez donc tricoter la maille suivante en suivant A.2 (soit 1 m end, 1 jeté). Vous placerez ensuite fil marqueur juste après A.2 - les fils marqueurs placés tout le tour vont vous permettre de visualiser chaque partie: devant/dos/manches. Bon tricot!

31.03.2022 - 11:48

country flag Erika Nilsson Paulics wrote:

Det framgår inte vilken sticka som ska användas när man mäter stickfastheten. Bara 20 m och 27 rader ska bli 10x10 cm men inte med vilken sticka tror 4,5 men inte säker.

26.03.2022 - 18:38

DROPS Design answered:

Hei Erika. Det er "hovedpinnen" strikkefastheten måles med, den du strikker plagget med (ikke vrangbord, halskant osv). Så du tror rikitg, 4,5 mm :) mvh DROPS Design

28.03.2022 - 13:02

country flag Anu wrote:

Hello, I want to put in short rows to elevate the back.Can you suggest where can I insert short rows? Thank you.

19.03.2022 - 19:36

DROPS Design answered:

Dear Anu, we don't make personalized patterns. You can check our wide pattern collection for other patterns with an elevation in the mid-back. Happy knitting!

20.03.2022 - 18:56

country flag Linda wrote:

Understatement

18.01.2022 - 14:36