Robyn skrifaði:
I am making spring parade 230-7 and have a question re stitch count/chart work. The pattern counts are not divisible by 12 (chart repeats) unless I reduce number by one stitch starting at yoke increase and including throughout the rest of the pattern. Is this an error?
11.04.2023 - 15:11DROPS Design svaraði:
Dear Robyn, when working diagrams from RS always finish with the first stitch in diagram before front band stitches (from WS work the first stitch in diagram then repeat diagrams reading now from the left towards the right) so that pattern is symmetrical. Happy knitting!
11.04.2023 - 16:55
Pavlína Skopalová skrifaði:
Dobrý den. Pletla jsem tento svetr s přízí i jehlicemi přesně podle návodu, utahovala jsem přiměřeně, ale z 49 cm, které měl mít podle návodu, má pouhých 27 cm na šířku. Zmenšil se mi tedy asi o polovinu. Při použití silnějších jehlic se mi tvořila velká oka, pomalu až díry. Chtěla bych se zeptat, v čem jsem udělala chybu a jak zabránit, aby se mi tento problém opakoval. Děkuji za odpověď.
01.06.2022 - 23:23
Joan Smith skrifaði:
Figured it out. The chart is correct but the casting on should be in violet not unicorn
31.03.2022 - 15:44DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Smith, thanks for noticing, pattern has been now updated. Happy knitting!
04.04.2022 - 11:30
Joan Smith skrifaði:
In reading the chart I think that there is an error in that the violet should be the first colour instead of unicorn which is how it appears in the picture of the cardigan. Am I correct? Thanks
29.03.2022 - 22:48
Helena skrifaði:
Goedenavond, geeft het telpatroon de goede en de verkeerde kant weer of alleen de goede kant? Ik ben met het 2e motief (A1) bezig, de helft van het telpatroon A1 en mijn werk meet nu al 19 cm.. Ik heb de verkeerde kant niet meegeteld. Ik heb het idee dat ik fout zit. Klopt het? Alvast bedankt voor jullie hulp!!
10.03.2022 - 21:44DROPS Design svaraði:
Dag Helena,
Het telpatroon geeft alle naalden in het patroon weer, dus zowel de goede als de verkeerde kant.
14.03.2022 - 13:11
Elena skrifaði:
Hi, thx for the pattern. in the section DIVIDE is a small error: 6 band stitches shall be included before 42-... and 43-... . they are missed in english but correctly mentioned in the norwegian version. ;)
04.03.2022 - 12:10DROPS Design svaraði:
Dear Elena, thanks for your feedback, pattern has been now edited. Happy knitting!
04.03.2022 - 16:21
Sonja skrifaði:
Tulip Gardens
05.02.2022 - 06:46
Linda skrifaði:
Tulip wins
18.01.2022 - 14:38
Lovely Flowers skrifaði:
Eine Herausforderung, die ich gerne annehmen werde. Oder ein anderes flower Modell.
16.01.2022 - 19:53
Trine-lise Tande skrifaði:
Lun sommer
13.01.2022 - 22:33
Spring Parade Cardigan#springparadecardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, blómum / þjóðlegu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 115 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-115-121-124-133-136 lykkjur á hringprjón 3 með litnum fjólublá þoka í DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í litinn hvítur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 33-42-36-45-48-57 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 145-157-157-169-181-193 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan mynstur (með byrjun frá réttu) þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið nú út jafnt yfir í mynstri við hverja ör þannig (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan): Ör 1: aukið út um 36-36-48-36-48-48 lykkjur = 181-193-205-205-229-241 lykkjur. A.1 er prjónað 14-15-16-16-18-19 sinnum á breiddina. Ör 2: aukið út um 36-36-36-36-48-48 lykkjur = 217-229-241-241-277-289 lykkjur. A.1 er prjónað 17-18-19-19-22-23 sinnum á breiddina. Ör 3: aukið út um 36-36-36-36-36-48 lykkjur = 253-265-277-277-313-337 lykkjur. A.1 er prjónað 20-21-22-22-25-27 sinnum á breiddina. Ör 4: aukið út um 24-36-36-36-36-36 lykkjur = 277-301-313-313-349-373 lykkjur. A.1 er prjónað 22-24-25-25-28-30 sinnum á breiddina. Ör 5: aukið út um 24-24-36-36-36-36 lykkjur = 301-325-349-349-385-409 lykkjur. A.1 er prjónað 24-26-28-28-31-33 sinnum á breiddina. Ör 6: aukið út um 0-12-36-36-24-24 lykkjur = 301-337-385-385-409-433 lykkjur. A.1 er prjónað 24-27-31-31-33-35 sinnum á breiddina. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 23 cm frá prjónamerki. Prjónið nú mynstur JAFNFRAMT skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram! MYNSTUR: Prjónið A.2 þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 alls 24-27-31-31-33-35 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu lykkju í A.2 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Aukið út jafnt yfir í síðustu útauknings umferð þannig: Ör 7: Aukið út um 0-0-0-0-12-12 lykkjur = 301-337-385-385-421-445 lykkjur. A.2 er prjónað 24-27-31-31-34-36 sinnum á breiddina. SKIPTING: Þegar stykkið mælist 23-23-24-26-28-30 cm frá kanti í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 42-48-54-54-60-66 lykkjur, setjið næstu 60-66-78-78-84-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 84-96-108-108-120-132 lykkjur, setjið næstu 60-66-78-78-84-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-12-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið 43-49-55-55-61-67 lykkjur og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 193-217-241-253-277-301 lykkjur. Prjónið A.2 með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið fyrstu 0-0-0-16-16-16 umferðir af A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú stykkið með litnum hvítur og sléttprjóni með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20-22-23-23-23-23 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 6-6-6-12-12-12 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 199-223-247-265-289-313 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-66-78-78-84-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-84-90-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið nú mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað, lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! MYNSTUR: Prjónið A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið fyrstu 0-0-0-16-16-16 umferðir með A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú ermina með litnum hvítur og sléttprjóni. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 8-10-15-17-19-18 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 34-34-34-32-30-29 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-3-1-2-0 lykkjur jafnt yfir = 54-54-57-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springparadecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.