Phyllis Martz skrifaði:
What is the striping pattern for the fronts and sleeves? This is not in the pattern,
22.10.2022 - 14:35DROPS Design svaraði:
Dear Phyllis, the stripe pattern is from the DROPS Delight ball itself; it has a mixture of beige and green so the stripes appear on their own as you work (you can see in the pictures that the stripes aren't symmetrical as they usually are when working a striping pattern). Happy knitting!
22.10.2022 - 18:41
Phyllis Martz skrifaði:
On the Forest Whispers pattern, is the chest measurement 41-43 inches the actual finished chest measurement? I don't understand the yarn requirements in grams. Can you translate them into yards for me.? I cannot use wool blends and am looking for a bulky acrylic yarn that gives me the gauge Thank you, Phyllis.
14.10.2022 - 22:44DROPS Design svaraði:
Dear Phyllis, the chest measurement is half of the chest (so if it's 41 inches, the actual chest would be 2 times 41 = 82 inches). For the yardage, you need to take into account the yardage of each yarn to calculate the amount of meters/yards needed. Each ball of DROPS Delight (50g) has 191 yds and each ball of DROPS Brushed Alpaca Silk (25gr) has 153 yds. Depending on the amount of each yarn needed for your size, you can calculate how many yds of each yarn you would need. Since it's a combination of 2 yarns and you want to use a single bulkier yarn, you can make all necessary calculations taking into account only DROPS Delight. Happy knitting!
16.10.2022 - 23:20
Gerard skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi il faut tricoter 4 poches. Pourquoi utiliser des aiguilles circulaires si le modèle est à monter. Je ne comprends pas le diagramme : est-ce que 77cm correspond à la largeur du dos ? Merci de votre réponse
23.06.2022 - 16:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gerard, lorsque vous tricotez le devant, vous tricotez d'abord la 1ère poche avec les mailles du devant en les rabattant en même temps, et, au rang suivant, vous tricotez les mailles de la 2ème poche au-dessus de l'ouverture et continuez le devant. À la fin, vous assemblerez le fond de ces 2 poches ensemble et les côtés. Bon tricot!
24.06.2022 - 08:46
Patricia R Szymkowski skrifaði:
My question regards sizing. Is is true that a small size is a 41-43 3/8 inch chest? Really? I also need help determining how many balls of each color I shall need. Thank you, Pat
22.05.2022 - 02:17DROPS Design svaraði:
Dear Patricia, size S has 52 cm, which is 40 ¹⁵/₁₆ inches for the whole circumference of the chest (the diagram usually shows half of it). This is the measurement of the actual garment, so your chest should be smaller than this measurement or you might need to work a larger size. For Size S, you need 6 balls of Delight and 8 balls of Brushed Alpaca Silk. Happy knitting!
22.05.2022 - 23:07
Edyta skrifaði:
Dziękuję serdecznie.
05.05.2022 - 10:06
Edyta skrifaði:
Dzień dobry. Nie rozumiem jak mam robić kołnierz. Od którego rzędu i po ile oczek mam je zamykać. Proszę o pomoc. Pozdrawiam serdecznie Edyta
04.05.2022 - 18:53DROPS Design svaraði:
Witaj Edyto, tutaj nie zamykasz oczek, tylko wykonujesz rzędy skrócone, jak w opisie (patrz RZĘDY 1-4). Jak wykonać rzędy skrócone znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!
04.05.2022 - 20:53
Sirkka-Liisa Koskinen skrifaði:
Paljonko alpaca- silk lankaa tarvitsen kokoon L ? Haluan tehdä sen yksin alpaca-silk langasta.
17.04.2022 - 20:45
J Wieman skrifaði:
Goedendag,\r\nPatroon 230-45. Vest met gekleurde banen. 2 soorten breiwol.\r\nPatroon spreekt van opzetten met 2 draden, van elk soort 1 draad . Geen wisseling of specifiek met 1 kleur draad breien volgens het patroon. Hoe ontstaan de strepen dan?\r\nWil dit graag weten voordat ik het breigaren aanschaf.
04.04.2022 - 15:22
Jocelyne COLAS skrifaði:
Bonjour, avec quelle taille d'aiguille doit-on faire l'échantillon svp. Merci
17.03.2022 - 17:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Colas, l'échantillon se tricote avec les aiguilles 7 (ou celles qui vous seront nécessaires pour avoir 13 mailles x 15 rangs jersey = 10 x 10 cm avec les 2 laines tricotées ensemble). Bon tricot!
18.03.2022 - 09:24
Savi Luisa skrifaði:
Come fare ad unire le spalle già con i punti chiusi e usare il punto maglia per cucirli. ? Grazie
17.02.2022 - 19:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Luisa, può usare una cucitura invisibile. Buon lavoro!
05.03.2022 - 22:17
Forest Whispers#forestwhisperssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með perluprjóni, sjalkraga, vösum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-45 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 101 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 37) = 2,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í A.1. LEIÐBEININGAR: Til að mynstrið gangi jafnt upp, prjónið 1 lykkju fleiri á milli vasa og hlið á vinstra framstykki en á hægra framstykki. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4 hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-109-119-129-141-153 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 37-39-41-45-49-53 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja). Skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 68-72-80-86-94-102 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 2-2-4-5-6-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-72-76-82-86 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 26-28-30-31-34-36 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af – sjá AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VASASTYKKI: Fitjið upp 24 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasastykkið mælist 7 cm, prjónið mynstur A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasastykkið mælist 16 cm, fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu 2 umferðum = 22 lykkjur – stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé 1. umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið gangi jafnt upp þegar vasastykkið er prjónaður við peysuna). Setjið lykkjur á hjálparprjón og geymið stykkið. Prjónið 3 vasastykki alveg eins til viðbótar = 4 vasastykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 73-77-81-91-97-103 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 27-29-29-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja). Skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé fyrsta umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið passi við mynstur á vasastykki), prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 23-25-27-27-29-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið næstu 22 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= 1 prjónamerki hvoru megin við vasaop), prjónið síðustu 2-2-4-8-10-12 lykkjur eins og áður. Snúið og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið fram að fyrra prjónamerki. Nú eru lykkjur prjónaðar ein og ein frá vasaopi saman með lykkjur eina og eina af vasastykki, jafnframt því sem fellt er af þannig (passið uppá að rangan á vasastykki liggi að röngu að hægra framstykki og að lykkjur séu prjónaðar saman í mynstri A.1): Prjónið fyrstu lykkju á vasastykki saman með fyrstu lykkju á vasaopi, jafnframt því sem fellt er af. Endurtakið þar til allar lykkjur á vasastykki og vasaopi hafa verið prjónaðar saman og felldar af. Prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð eins og áður. Takið prjónamerkin úr. Snúið og prjónið fram að vasaopi, prjónið frá réttu yfir 22 lykkjur á öðru vasastykki, prjónið út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur. Nú eru 2 vasastykki á hægra framstykki sem síðar eru saumuð saman. Haldið áfram með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af 2-2-4-5-6-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. í næstu umferð frá röngu) = 45-47-49-52-55-57 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af fyrstu 26-28-30-31-34-36 lykkjur í næstu umferð frá röngu fyrir öxl, prjónið síðustu 19-19-19-21-21-21 lykkjur í umferð. Prjónið nú kraga þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8 lykkjurnar. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir 11-11-11-13-13-13 lykkjur. Endurtakið umferð 1 til 4 þar til kraginn mælist 7-7-7-8-8-8 cm þar sem stykkið er styst (þ.e.a.s. á vinstri hlið séð frá réttu = að öxl). Fellið af – munið eftir AFFELLING. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 73-77-81-91-97-103 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 27-29-29-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 47-49-53-57-61-65 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé fyrsta umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið passi við mynstur á vasastykki), prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 3-3-5-9-11-13 lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið næstu 22 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= prjónamerki hvoru megin við vasaop), prjónið síðustu 22-24-26-26-28-29 lykkjur eins og áður. Snúið og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið fram að fyrra prjónamerki. Nú eru lykkjur prjónaðar ein og ein frá vasaopi saman með lykkjur eina og eina af vasastykki, jafnframt því sem fellt er af þannig (passið uppá að rangan á vasastykki liggi að röngu að vinstra framstykki og að lykkjur séu prjónaðar saman í mynstri A.1): Prjónið fyrstu lykkju á vasastykki saman með fyrstu lykkju á vasaopi, jafnframt því sem fellt er af. Endurtakið þar til allar lykkjur á vasastykki og vasaopi hafa verið prjónaðar saman og felldar af. Prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð eins og áður. Takið prjónamerkin úr. Snúið og prjónið fram að vasaopi, prjónið frá réttu yfir 22 lykkjur á öðru vasastykki, prjónið út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur. Nú eru 2 vasastykki á hægra framstykki sem síðar eru saumuð saman. Haldið áfram með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af 2-2-4-5-6-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. í næstu umferð frá réttu) = 45-47-49-52-55-57 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af fyrstu 26-28-30-31-34-36 lykkjur í næstu umferð frá röngu fyrir öxl, prjónið síðustu 19-19-19-21-21-21 lykkjur í umferð. Prjónið nú kraga þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8 lykkjurnar. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir 11-11-11-13-13-13 lykkjur. Endurtakið umferð 1 til 4 þar til kraginn mælist 7-7-7-8-8-8 cm þar sem stykkið er styst (þ.e.a.s. á vinstri hlið séð frá réttu = að öxl). Fellið af – munið eftir AFFELLING. ERMI: Fitjið upp 54-58-58-60-60-64 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-18-18-18-18-20 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Nú er prjónað mynstur A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4½-3-3-2½-2 cm millibili alls 7-7-9-9-10-11 sinnum = 52-54-58-60-62-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-42-41-39-37 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja byrjun á botni á handvegi. Prjónið þar til ermin mælist alls 46-46-45-45-43-43 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn sé ekki stífur. Saumið ermasauma saman, en skiljið eftir smá op/klauf ca 2-2-3-4-4-6 cm efst á ermi. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki – sjá teikningu. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni að stroffi (= 12 cm klauf í hvorri hlið). Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið kragann saman mitt að aftan og saumið síðan kragann við kant í hálsmáli. Leggið vasastykkin að hvoru öðru og saumið í kringum allan kantinn. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestwhisperssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.