DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Island

Heklaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-46
DROPS Design: Mynstur w-864
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 43, skógargrænn

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum, þær koma ekki í stað fyrsta stuðuls.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA-1 (á við um handveg):
Í byrjun umferðar: Skiptið út hvern stuðul sem á að fækka um með 1 keðjulykkju.
Í lok umferðar: Ekki er heklað yfir lykkjur sem fækka á um.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál):
Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla saman þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 56-60-66-74-83-90 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 5 með DROPS Paris.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 52-56-62-70-79-86 loftlykkjum – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 53-57-63-71-80-87 stuðla.
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 1-3-3-1-1-3 stuðlum, heklið A.1 þar til eftir eru 1-3-3-1-1-3 stuðlar og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu stuðlum.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Þegar stykkið mælist ca 10 cm, stillið af að næsta umferð sé 1., 5. eða 6. umferð, aukið út um 3 stuðla jafnt yfir = 56-60-66-74-83-90 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 1-3-3-1-1-3 stuðlum, heklið A.1 þar til eftir eru 1-3-3-1-1-3 stuðlar og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu stuðlum.

Þegar stykkið mælist ca 18 cm, stillið af að næsta umferð sé umferð 1., 5. eða 6. umferð, aukið út um 3 stuðla jafnt yfir = 59-63-69-77-86-93 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 1-3-3-1-1-3 stuðlum, heklið A.1 þar til eftir eru 1-3-3-1-1-3 stuðlar og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu stuðlum.

Klippið þráðinn þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm.
Heklið nú áfram yfir miðju 53-57-61-67-74-79 stuðla (ekki er heklað yfir 3-3-4-5-6-7 stuðla í hvorri hlið í handvegi).

Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja af 7-9-8-11-13-17 lykkjum, heklið A.1 þar til eftir eru 7-9-8-11-13-17 lykkjur og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu lykkjum.

Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð þannig:
Fækkið um 3 stuðla 1-1-1-2-2-3 sinnum – sjá ÚRTAKA-1, 2 stuðlar 0-1-1-1-2-2 sinnum og 1 stuðul 2-1-2-2-2-1 sinnum = 43-45-47-47-50-51 stuðlar.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 31-33-34-36-37-38 cm, stillið af að síðasta umferð sé umferð með stuðlum. Nú er stykkið heklað með 1 stuðli í hvern stuðul.
Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, heklið öxl yfir fyrstu 10-11-12-11-12-12 stuðla.
Heklið 3 stuðla næst hálsmáli saman í næstu umferð – sjá ÚRTAKA-2 = 8-9-10-9-10-10 stuðlar.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina öxlina á sama hátt yfir síðustu 10-11-12-11-12-12 stuðla.

FRAMSTYKKI:
Heklið eins og bakstykkið þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-40 cm. Heklið nú öxlina yfir fyrstu 14-15-16-15-16-16 lykkjur þannig:
Heklið 3 stuðla næst hálsmáli saman við næstu umferð. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 8-9-10-9-10-10 stuðlar.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina öxlina á sama hátt yfir síðustu 14-15-16-15-16-16 stuðla.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir ca 9 cm klauf neðst í hvorri hlið.

Mynstur

symbols = loftlykkja - Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull á milli 2 stuðla
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Birgitte Neerup Danielsen wrote:

Når jeg tager ind til ærmegab så bliver det hakkende og ikke en glidende kant. Hvad gør jeg forkert? Hilsen Birgitte

23.03.2024 - 11:55

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, øverst i opskriften klikker du på Videoer, her finder du en video: Hvordan får jeg lige hæklede kanter :)

03.04.2024 - 14:26

country flag Amber wrote:

I'm lost at what to do with A.1. Is it worked next to each other in one row or is it worked up? I'm also lost at what 'double crochet around chain stitch' means?

16.03.2024 - 13:26

DROPS Design answered:

Dear Amber, when working in the same row, you will work many repeats of the same row of A.1. Then, on the next rows you will work the chart upwards. You can read more information on our charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19. Working around a stitch means that you don't insert the hook inside a stitch but rather in the space (for example, chain space formed). You can see the difference between working in and around stitches in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=690&lang=en. Happy crochetting!

17.03.2024 - 21:43

country flag Mary wrote:

In the diagram A1, I do not understand what to do where it says, \"treble crochet between 2 treble crochets\". Please could you explain. \r\nFrom the photo, it just looks like another row of trebles.\r\nThank you.

26.07.2023 - 19:20

DROPS Design answered:

Dear Mary, yes, it's a row of trebles but the treble crochet is worked in the space between 2 treble crochets instead of inside the treble crochet. In the end, you will have the same amount of treble crochets at the end of the round. Happy crocheting!

27.07.2023 - 09:53

country flag Marjon Zwirs wrote:

Green Island heeft geen tel patroon . Tel patroon A1 mist bij beschrijving

12.07.2023 - 23:32

DROPS Design answered:

Dag Marjon,

Het telpatroon vind je rechts naast de maattekening.

13.07.2023 - 19:41

country flag Marie-Thérèse Vollemaere wrote:

Ik zie nergens aangeduid hoeveel ik nodig heb voor dit model ??

28.06.2023 - 18:45

DROPS Design answered:

Dag Marie-Thérèse,

Bovenaan bij de materialen staat aan gegeven hoeveel gram je nodig hebt (1 bol weegt 50 gram). De reeks getallen slaan op de maten, dus het eerste getal geldt voor maat S, het tweede getal voor maat M, enzovoorts.

29.06.2023 - 07:09

country flag Anitta wrote:

Hvorfor bliver min kant næsten rund, er det fordi at når jeg starter at lm bliver for stram

15.06.2023 - 17:21

DROPS Design answered:

Hej Anitta, hvilken kant, hvor langt er du kommet i opskriften?

16.06.2023 - 13:43

country flag Anitta wrote:

Hej Er det muligt at hækle rundt, i stedet for at hækle for og bagstykke hver for sig

11.06.2023 - 14:49

DROPS Design answered:

Hei Anitta. Det går sikkert helt fint, men du må tilpasse oppskriften. Starten på både forstykket og bakstykket hekles frem og tilbake pga splitten og når du da skal hekle rundt må du passe på at mønstret stemmer overens med maskeantallet. F.eks skal du ha staver i siden eller hekle A.1 rundt hele omgangen. mvh DROPS Design

12.06.2023 - 13:19

country flag Kmg wrote:

I’m not understanding “work one dc in each of the first 1-3-3-1-1-3 double crochet😔\r\nI’ve got my first row of dc completed and chained 3…

29.03.2023 - 07:14

DROPS Design answered:

Dear Kmg, each number refers to the size, ie in first size as well as in the 4th and 5th size, work 1 dc in the first dc, in the 2nd and 3rd as well as in the 6th size, work 1 dc in each of the first 3 dc. Happy crocheting!

29.03.2023 - 10:29

country flag Raluca wrote:

Hello! I really don't understand the treble crochet around the chain stich part Which chain is it referring to? I understand what crocheting around means, but what am I supposed to do at A.1

13.03.2023 - 21:52

DROPS Design answered:

Dear Raluca, on 3rd row in A.1 you worked *skip 1 treble crochet, in the next treble crochet work: (1 treble crochet, 1 chain stitch, 1 treble crochet), skip 1 treble crochet*, repeat from *-* - on next round work 3 treble crochets around each chain stitch, this means work these treble crochets in the 1-chain-space on row below. Happy crocheting!

14.03.2023 - 09:39

country flag Marie wrote:

Bonjour, je ne comprends pas la deuxième partie de la phrase " Commencer chaque rang de brides par 3 mailles en l’air, elles ne remplacent pas la 1ère bride." Comment prendre en compte ces 3 mailles en l'air ? Exemple : pour la troisième taille du modèle : 3 mailles en l'air - 3 brides - motif A1 - 3 brides ? Si oui ça ne tombe pas juste au 4 ème rang du motif... Merci d'avance

12.03.2023 - 14:06

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, ces 3 mailles en l'air se font simplement en plus, en début de rang pour avoir la bonne hauteur, mais comme on ne les compte pas, vous aurez simplement ensuite à crocheter comme indiqué: 3 brides, répétez A.1 jusqu'à ce qu'il reste 3 brides (19 fois au total), et terminez par 3 brides vous avez bien: 3+ (19x3) + 3 = 63 mailles. Bon crochet!

13.03.2023 - 09:48