Maria Saraiva skrifaði:
Gosto muito do modelo e comecei a fazê-lo. Não percebo quando mandam diminuir a gola após os 2cm (116malhas para 87 malhas, no TM), fica muito estranha! É para cozer depois? fica assim? obrigada, Maria
03.03.2022 - 23:53DROPS Design svaraði:
Bom dia, Parece estranho, mas é para evitar que o canelado alargue a peça, porque se vai passar para um tamanho de agulha maior. Não se cose a gola porque se está a tricotar em circular. O modelo é lindo! Bons tricôs!
04.03.2022 - 08:17
Maggie skrifaði:
Hello, I am currently knitting Tulip Season DROPS Design: Pattern no w-860. Size 5. For size S will I divide the stitches for sleeves once I completed the increases on A2 to get the 240 stitches ? Or do I complete A2 first before dividing?
28.02.2022 - 04:05DROPS Design svaraði:
Dear Maggie, you should increase to 240 sts before dividing, then divide piece when work measures 20 cm, and continue either A.2 if it is not finished or A.3 if you already start A.3 on yoke. Happy knitting!
28.02.2022 - 10:43
Darleen Werrebrouck skrifaði:
Beste, Is het mogelijk dat er een foutje in het patroon staat ? Bij de mouwen (bijna op het einde van het patroon) staat op een bepaald moment dat je 39-48-48-48-54-54 steken staan hebt. Dan minder je 9-9-9-9-12-12 steken en kom je op 48-57-57-57-66-66 steken. Moet dit niet 30-39-39-39-42-42 zijn ?
24.02.2022 - 12:43DROPS Design svaraði:
Dag Darleen,
Er staat wel een fout in maar vermoedelijk moet er staan dat je verdeelt meerdert in plaats van mindert. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling ter controle.
26.02.2022 - 14:22
Fran Foley skrifaði:
The neckband says 2 3/4 in- seems too long - is this correct? Picture of sweater seems to have much shorter neckband.
23.02.2022 - 14:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Froley, yes it's correct, neck edge will be afterwards folded down inside and sewn to get a double neck - this missing information will be added asap, thanks for your feedback. Hpapy knitting!
23.02.2022 - 15:41
Elisabeth skrifaði:
Bonjour,\r\nDans les explications de A1, vous dites après avoir tricoté le tour 2 on a 140 mailles. Mais partant de 120 mailles à la fin de l\'empiècement, je ne comprends pas où sont les augmentations après le tour 2.\r\nMerci de votre réponse.\r\nElisabeth
15.02.2022 - 13:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Élisabeth, en taille L, vous tricotez à la fin du col (et non de l'empiècement, on est d'accord?) 20 fois les 6 mailles de A.1 (= 6 x 20 = 120 m). Au 2ème rang, vous augmentez 1 maille dans chaque A.1, autrement dit, on a maintenant 7 m x 20 = 140 mailles; en L on n'augmente pas au rang avec la flèche, mais vous avez déjà vos 140 mailles requises ainsi. Bon tricot!
15.02.2022 - 17:25
Barbara Withers skrifaði:
I think there's a mistake. A1 has 20 pattern repeats. You increase to 180 stitches( shown by arrow marked 1) which makes 9 stitches per pattern. The pattern diagram shows 10 stitches per pattern ( row 7) this would mean 200 stitches ( 20x10). I need help ..........I am knitting size L
10.02.2022 - 10:22DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Withers, you had 120 sts and have to repeat A.1 a total of 20 times (= 6 sts on first row x 20 times = 120 sts); On 2nd row in diagram, increase as shown (= 7 sts x 20 times = 140 sts on needle). Then on the row with the arrow-1 = last row in A.1, increase evenly 40 sts = 180 sts on needle. And now work the 10 sts in A.2 a total of 18 times . Happy knitting!
10.02.2022 - 13:33
Helena Blomqvist skrifaði:
I diagrammets färgkarta saknas Lime och det finns två senapsgul. Vilken symbol hör till lime?
08.02.2022 - 14:03DROPS Design svaraði:
Hej Helena, tack för info - nu finns lime med :)
08.02.2022 - 14:45
Tavita Tolentino Calderón skrifaði:
Hola todos sus patrones son hermosos me encantan en especial este. quisiera saber si puedo enseñar como hacer algun patron de ustedes en un tutorial en YouTube, claro siempre diciendo de donde lo tome. disculpe la molestia, muchas gracias.
06.02.2022 - 05:24
Jacqueline Kleiwegt skrifaði:
Kan ik dit patroon wijzigen in een patroon voor een vest? Ik brei liever met gewone naalden dan met een rondbreinaald.
04.02.2022 - 19:36DROPS Design svaraði:
Dag Jacqueline,
Je zou dan een bies moeten maken midden voor aan beide kanten, zodat je heen en weer kunt breien van midden voor naar midden voor. Je hebt dan wel heel veel steken op de naald als je de pas breit, met name in de grote maten.
11.02.2022 - 15:14
Zabeth skrifaði:
Très joli, très printanier toutes ces felurs
03.02.2022 - 23:09
Tulip Season#tulipseasonsweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, gatamynstri og norrænu mynstri með túlipönum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði örlítið hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið við prjónamerki frá réttu, prjónið 15-16-16-17-17-18 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 30-32-32-34-34-36 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 45-48-48-51-51-54 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 60-64-64-68-68-72 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 75-80-80-85-85-90 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræðinum og prjónið 90-96-96-102-102-108 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að prjónamerki mitt að aftan. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-128-132-136-140 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur í DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm, fækkið allar 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni einingu = 87-90-96-99-102-105 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 7-7-7-9-9-9 cm frá uppfitjunarkanti. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn saman tvöfalt og við frágang þá verður kanturinn í hálsmáli ca 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 25-26-24-25-26-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 112-116-120-124-128-132 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð = mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón með litnum natur í 2-2-3-3-4-4 cm, mælt frá prjónamerki mitt að framan – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 114-120-120-126-132-132 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig: A.1: Prjónið A.1 alls 19-20-20-21-22-22 sinnum hringinn á berustykki. Þegar 2. umferð í A.1 hefur verið prjónuð, eru 133-140-140-147-154-154 lykkjur í umferð. Í næstu umferð merkt með ör-1 í A.1 er aukið út um 27-30-40-33-36-46 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 160-170-180-180-190-200 lykkjur. A.2: Prjónið A.2 alls 16-17-18-18-19-20 sinnum hringinn á berustykki. Aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar 8. umferð í A.2 hefur verið prjónuð, eru 192-204-216-216-228-240 lykkjur í umferð. Að auki eru lykkjur auknar út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör eins og útskýrt er að neðan: Ör-2: Aukið út um 12-12-12-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 204-216-228-240-252-270 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 12-24-24-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 216-240-252-264-276-300 lykkjur. Ör-4: Aukið út um 12-12-12-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 228-252-264-288-300-336 lykkjur. Ör-5: Aukið út um 12-12-12-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 240-264-276-312-324-360 lykkjur. A.3: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn, en takið vel eftir að í flestum stærðum byrjar A.3 á fram- og bakstykki og ermum, þ.e.a.s. eftir að berustykkinu hefur verið skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING Á BERUSTYKKI FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsinn, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-39-41-47-49-55 lykkjur með mynstri eins og áður (½ bakstykki), setjið næstu 48-54-56-62-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 72-78-82-94-98-110 lykkjur mynstur eins og áður (framstykki), setjið næstu 48-54-56-62-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 36-39-41-47-49-55 lykkjur í mynstri eins og áður (½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-180-204-216-240 lykkjur. Haldið áfram með mynstur hringinn. ATH: Ef A.2 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki, prjónið A.2 til loka áður en A.3 er prjónað hringinn yfir allar lykkjur á fram- og bakstykki. ATH: Ef stykkinu er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar mitt í mynsturbekk í A.2/A.3, kemur þessi mynsturbekkur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermum eftir skiptingu. Prjónið mynsturbekkinn til loka á framstykki og bakstykki eins langt og hægt er mitt undir hvorri ermi. Prjónið síðan næsta mynsturbekk í A.2/A.3 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. Þegar stykkið mælist 24 cm frá skiptingu, prjónið A.5 hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 33-36-36-42-45-48 lykkjur jafnt yfir = 189-204-216-246-261-288 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-54-56-62-64-70 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-64-70-74-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Að auki er sett 1 prjónamerki í 27.-30.-32.-35.-37.-40. lykkju í umferð. Látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið á að passa við miðjulykkju í mynsturteikningu – teljið út frá þessu prjónamerki hvar umferðir byrjar í næsta mynsturbekk. Byrjið umferð við prjónamerki mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur hringinn alveg eins og á fram- og bakstykki – mynsturbekkurinn sem heldur áfram frá berustykki kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Þegar næsti mynsturbekkur byrjar, teljið byrjun á mynstri út frá miðjulykkju í mynsturteikningu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5½-4-2½-3-2 cm millibili alls 7-6-8-11-9-12 sinnum = 40-48-48-48-56-56 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum natur. Prjónið þar til ermin mælist 34-33-32-29-28-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan gatamynstri í A.4. Nú er prjónað A.4 alls 5-6-6-6-7-7 sinnum í kringum ermi. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 38-37-36-33-32-30 cm frá skiptingu – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1-0-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 39-48-48-48-54-54 lykkjur. Prjónið A.5 alls 13-16-16-16-18-18 sinnum hringinn á ermi. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 9-9-9-9-12-12 lykkjur jafnt yfir = 48-57-57-57-66-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 44-43-42-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tulipseasonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.