DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wind Song

Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-19
DROPS Design: Mynstur r-793
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 18, hvítur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

ÚTAUKNING:
Stuðlar eru auknir út jafnt yfir þegar heklað er eftir A.2, það er gert með því að hekla 4 stuðla um nokkra loftlykkjuboga í stað 3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Heklið 86-90-94-100-104-108 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Muskat og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið 3 loftlykkjur, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju = 86-90-94-100-104-108 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið jafnframt út 28-30-32-32-34-36 stuðla jafnt yfir = 114-120-126-132-138-144 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið A.1, síðan er A.2 heklað alls 19-20-21-22-23-24 sinnum umferðina hringinn. A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og kemur sem viðbót við lykkjur í A.2.

Heklið A.1 og A.2, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út í hvert skipti sem 5. umferð í A.2 er hekluð. A.2 er heklað alls 3-3-4-4-5-5 sinnum á hæðina og stuðlar eru auknir út jafnt yfir þannig – sjá ÚTAUKNING.

Í fyrsta skipti sem 5. Umferð er hekluð:
Aukið út 36-36-36-42-36-42 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. heklið 4 stuðla í hvern loftlykkjuboga, en 2-4-6-2-10-6 sinnum jafnt yfir í umferð eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjuboga. Nú eru 150-156-162-174-174-186 stuðlar í umferð og það er pláss fyrir 25-26-27-29-29-31 mynstureiningar A.2 á breiddina.

Í annað skipti sem 5. umferð er hekluð:
Aukið út 36-48-36-42-36-42 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, en 14-4-18-16-22-20 sinnum í umferð eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjuboga. Nú eru 186-204-198-216-210-228 stuðlar í umferð og það er pláss fyrir 31-34-33-36-35-38 mynstureiningar A.2 á breiddina.

Í þriðja skipti sem 5. umferð er hekluð:
Aukið út 42-48-36-42-42-48 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, en 20-20-30-30-28-28 sinnum í umferð eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjuboga. Nú eru 228-252-234-258-252-276 stuðlar í umferð og það er pláss fyrir 38-42-39-43-42-46 mynstureiningar A.2 á breidd.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Í fjórða skipti sem 5. umferð er hekluð:
Aukið út 42-42-42-48 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, en 36-44-42-44 sinnum í umferð eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjuboga. Nú eru 276-300-294-324 stuðlar í umferð og það er pláss fyrir 46-50-49-54 mynstureiningar A.2 á breidd.

STÆRÐ XXL- XXXL:
Í fimmta skipti sem 5. umferð í A.2 er hekluð:
Aukið út um 42-48 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, en 56-60 sinnum í umferð eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjuboga. Nú eru 336-372 stuðlar í umferð og það er pláss fyrir 56-62 mynstureiningar A.2 á breidd.

Nú eru 228-252-276-300-336-372 stuðlar í umferð.

Heklið A.1, heklið síðan A.2 alls 38-42-46-50-56-62 sinnum í umferð, endið eftir 3. umferð. Nú hafa verið heklaðar alls 3-3-4-4-5-5 heilar mynstureiningar A.2 á hæðina + 3 umferðir af A.2.

Næsta umferð er hekluð þannig – þetta er 4. umferð í A.2:
Heklið 12-13-14-15-17-19 mynstureiningar af A.2 á breidd, heklið síðan fyrsta stuðul í mynstureiningu, heklið 8 loftlykkjur, hoppið síðan yfir 7-8-9-10-11-12 mynstureiningar af A.2 (fyrir utan fyrsta og síðasta stuðul sem tilheyrir bakstykki/framstykki), heklið 12-13-14-15-17-19 mynstureiningar af A.2 (byrjið og endið með 1 stuðul), heklið 8 loftlykkjur, hoppið síðan yfir 7-8-9-10-11-12 mynstureiningar af A.2 (fyrir utan fyrsta stuðul sem tilheyrir bakstykki/framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú er síðasta umferð í A.2 hekluð, að auki eru heklaðir 9 stuðlar um hvern loftlykkjuboga sem fitjaðir voru upp undir ermum = 162-174-186-198-222-246 stuðlar. Haldið áfram hringinn með A.1 og A.2 þar til stykkið mælist ca 8 cm. Þegar 5. umferð í A.2 er hekluð, aukið út um 6 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. í 6 af loftlykkjubogum eru heklaðir 4 stuðlar í stað 3 stuðla = 168-180-192-204-228-252 stuðlar. Haldið áfram með A.1 og A.2, nú er pláss fyrir 28-30-32-34-38-42 mynstureiningar af A.2. Haldið áfram hringinn með A.1 og A.2 þar til stykkið mælist ca 16 cm. Þegar 5. umferð í A.2 er hekluð, aukið út 6 stuðla jafnt yfir alveg eins og áður = 174-186-198-210-234-258 stuðlar. Haldið áfram með A.1 og A.2, nú er pláss fyrir 29-31-33-35-39-43 mynstureiningar af A.2. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 23-25-21-23-20-22 cm frá skiptingu, endið eftir 3. umferð í af A.2. Klippið þráðinn og festið. Toppurinn mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl.

ERMI:
Byrjið umferð undir ermi þannig: Heklið 1 keðjulykkju mitt í loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 5 stuðlar um loftlykkjuboga undir ermi, haldið áfram með 4. umferð af A.2 yfir lykkjur sem hoppað var yfir. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul undir ermi og 5. umferð af A.2, jafnframt er aukið út um 18-18-18-24-24-24 stuðlar jafnt yfir = 66-72-78-90-96-102 stuðlar. Heklið A.1 og A.2 (A.2 er heklað 11-12-13-15-16-17 sinnum umferðina hringinn), þegar 5. umferð í A.2 hefur verið hekluð, aukið út 18 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, en 4-6-8-12-14-16 sinnum jafnt yfir í umferð eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjuboga = 84-90-96-108-114-120 stuðlar. Heklið A.1 og A.2 (A.2 er heklað 14-15-16-18-19-20 sinnum umferðina hringinn), þegar 5. umferð í A.2 er hekluð, aukið út um 18 stuðla jafnt yfir, þ.e.a.s. heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, en 10-12-14-18-20-22 sinnum jafnt yfir í umferð eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjuboga = 102-108-114-126-132-138 stuðlar.
Heklið síðustu mynstureiningu A.1 og A.2 (= 17-18-19-21-22-23 mynstureiningar á breidd), en endið eftir 3. umferð. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig á að hekla næstu umferð
symbols = keðjulykkja
symbols = fyrsta umferð í mynsturteikningu
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Hafsa wrote:

What does this mean in row 4 ? Does it mean i work half repeat and chain after the center dc ? “Then work first double crochet next repetition, work 8 chain stitches, skip 7-8-9-10-11-12 repetitions of A.2 (except for first and last double crochet which belong to back piece/front piece),”

24.04.2024 - 16:27

DROPS Design answered:

Dear Hafsa, it means, that ypu should crochet the first dc of the next repetition, crochet 8 chain stitches, leave out the next 7-8-9-10-11-12 repetition of the A.2 pattern (including the one from which you only crocheted the very first double crochet), then make one double crochet (that is actually the last dc of the last repetition you left out), and continue to crochet the round. HERE is a video that might help you. Happy Crafting!

24.04.2024 - 22:43

country flag Hervé wrote:

Concernant le empiècement, pourquoi n y a t il pas de mode d emploi pour la taille M, seulement Xxxxxxl ?

20.04.2024 - 07:49

DROPS Design answered:

Bonjour Hervé, c’est parce que les augmentations dans votre taille sont deja terminees. Vous devez avoir 252 brides a ce moment. Vous recommencez par : ‘Crocheter A.1, puis crocheter A.2 38-42-46-50-56-62 fois au total, arrêter après le 3ème tour. On a crocheté 3-3-4-4-5-5 motifs de A.2 au total en hauteur + les 3 premiers tours de A.2’. Bon crochet !

20.04.2024 - 08:32

country flag Birgitta Sandström wrote:

En stolpe = vad är det

23.03.2024 - 15:58

DROPS Design answered:

Hej Birgitta, øverst på mønsteret, sammen med beskrivningen på LUFTMASKA får du även en forklaring på stolpe. Du kan også klikke på Videor øverst i opskriften, her finder du en video som viser hvordan man gør :)

03.04.2024 - 14:43

country flag Janny Spies wrote:

Bij de pas staat op het laatst: er zijn nu zoveel stokjes op de toer en er is ruimte voor nog 56 herhalingen in de breedte. dit snap ik niet want je bent van boven naar beneden aan het werk. lees ik dit nu verkeerd? ik heb geen flauw idee hoe nu verder. Graag uitleg en alvast bedankt.

20.03.2024 - 12:21

DROPS Design answered:

Dag Janny,

Er wordt inderdaad van boven naar beneden gehaakt en de pas wordt vanaf de hals steeds wijder. Wanneer je 336 stokjes hebt kun je A.2 56 keer haken over de hele toer (56 x 6 = 336).

21.03.2024 - 20:54

country flag Maria wrote:

Problem med antal när jag börjar med armarna i storlek XL. Om jag ska börja med 5 stolpar och varv 4 över de 10 rapporterna och sen 9 stolpar över de 9 stolparna från föregående varv. Då får jag till till att antal stolpar i nästkommande varv blir 5 (över de 5) + 60 (över de 10 rapporterna+ 9 (över de 9) + 24 som det ska ökas med 5+60+9+24=98 men enligt beskrining ska det vara 90 stolpar. Varför får jag 8 stolpar för mycket?

05.03.2024 - 08:55

DROPS Design answered:

Hei Maria. Litt usikker på hva du mener med de 9 stavene (=stolparna). Du starter med 3 luftmasker (=1 stav) + 5 staver = 6 staver under ermet, så fortsettes det med 4. omgang av A.2 over maskene som ble hoppet over = 6+60 = 66. Fortsett med 1 stav i hver stav under ermet (6 staver), og 5.omgang av A.2, samtidig økes det 24 staver jevnt fordelt = 6+60+24 = 90 staver. mvh DROPS Design

18.03.2024 - 08:22

country flag Karen Langer Schmidt wrote:

Er det rigtigt at der kun skal være 4 gange med 3 stgm for 2. Runde på 5. Omgang for 2. Str. Ved bærestykke

11.02.2024 - 14:51

DROPS Design answered:

Hej Karen, ja og i alle de andre luftmaskebuer hækler du 4 st, så du tager 36 masker ud :)

23.02.2024 - 09:44

country flag Anna wrote:

Hej, För ärmarna står det att jag ska börja mitt på luftmaskkedjan och virka 5 stolpar. Men, hur många maskor ska det vara under armen efter ett varv? När jag kommer till varvet där jag ska öka får jag inte till rätt antal maskor.

22.10.2023 - 08:11

DROPS Design answered:

Hei Anna. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men vi trenger å vite hvilken str. hekler du ? Og hvor mange masker har du? mvh DROPS Design

30.10.2023 - 07:53

country flag Letellier wrote:

Très bel ouvrage bravo et merci pour toutes ces explications

26.07.2023 - 11:06

country flag Karoline wrote:

Hej. Hvilke masker skal jeg bruge for at tjekke hækle fastheden? 18 stangmasker i bredden, men hvilke masker skal jeg bruge til de 9 rækker i højden? Er det mønstret på blusen, jeg skal hækle? Eller er det stangmasker?

12.07.2023 - 22:45

DROPS Design answered:

Hei Karoline 18 staver i bredden og 9 staver i høyden. mvh DROPS Design

24.07.2023 - 14:54

country flag Marylène RETEL wrote:

Bonjour, je commence juste ce modèle en taille S et déjà j'ai une question : comment peut-on passer la tête à travers l'ouverture de 86 ml ?? j'ai monté ma chainette assez lâche, et fait mon 1er rang de brides et j'arrive avec un tour de 48 cm... quand on sait qu'une tête de femme adulte fait entre 55 et 59 cm... l'échantillon que j'ai réalisé est conforme. Ou alors j'ai raté quelque chose ?

22.06.2023 - 12:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Retel, si votre chaînette de base n'est pas suffisamment souple, vous aurez effectivement peut être du mal, essayez avec un crochet plus gros (1/2 ou 1 taille au-dessus en fonction), et continuez ensuite en conservant bien la bonne tension; votre premier tour doit être suffisamment large pour y passer la tête (48 cm autour du cou est largement suffisant comme encolure). Bon crochet!

22.06.2023 - 14:22